Litlir karlar

Það er ekki hægt að segja annað en Páfagarður leggist lágt með því að líkja við gyðingaofsóknir fréttum mjög virtra fjölmiðla sem virðast benda til þess að páfinn hafi hylmd yfir kynferðisbrot gegn börnum. Enda hafa talsmenn gyðinga og fórnarlamba barnakynferðisofbeldis lýst yfir viðbjóði sínum á orðum þessa húsprédikara Páfagarðs.

Sumir hafa fundið að því að menn setji út á kaþólsku kirkjuna vegna misnotkunar presta á börnum. Segja að slík misnotkun sé svo algeng í mannlífinu og barnaníðingar finnist alls staðar, í skólum, barnaheimilum og svo framvegis. En þetta með kaþólsku kirkjuna snýst ekki um einstaklinga endilega heldur afstöðu. Það er leyndin sem virðist hafa verið kerfisbundin, aðgerðaleysið, sem ýmsir yfirmenn kaþólsku kirkjunnar viðhöfðu EFTIR að þeim var ljóst að kynferðismisnotkun var beitt sem hneykslar fólk. Veraldlegar stofnanir hafa ekki kóað eins mikið með brotlegum einstaklingum í sínum röðum.

Kaþólska kirkjan er afar voldug stofnun. Gagnvart henni voru varnarlaus börn sem voru í hennar umsjá. Þetta er því mjög alvarlegt mál frá mörgum sjónarhornum. Ekki nema von að menn hneykslist og það á ekki á nokkurn hátt að bera í bætifláka fyrir kikjuna. En  nú gerist gamla sagan: þolendurnir breytast jafnvel í sökudólga, misgerðarmennirnir, kirkjunnar þjónar og sú stofnun sem kóaði með þeim og gerði þeim fært að halda misnotkuninni áfram, verður að nokkurs konar fórnarlambi.

Það kemur ekki síst vel fram í þessu dæmi um frétt sem bendir til þess að páfinn hafi vitað af kynferðismisnotkun án þess að hafast neitt að. 

 


mbl.is Gagnrýna samlíkingu í Páfagarði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er varla við öðru að búast af mönnum sem dýrka bók sem hreinlega lofsamar nauðganir... og þá einna helst á hreinum meyjum...

En hey kannski ætti kaþólska kirkjan að spá í því að hún sjálf stundaði gyðingaofsóknir í margar aldir...

DoctorE (IP-tala skráð) 3.4.2010 kl. 11:23

2 Smámynd: Hamarinn

Sussss DoctorE

Hamarinn, 3.4.2010 kl. 12:56

3 Smámynd: Haraldur Davíðsson

Helvíti er svo sneisafullt af prestum og kirkjunnar fólki, að þar er ekkert pláss fyrir mig og þig Doctor....ef djöfulinn er að finna einhversstaðar, þá er það í kirkju...

Hroki kirknanna gagnvart manneskjum er botnlaus, og sú andskotans ósvífni sem er falin í afstöðu stofnunarinnar gagnvart brotum sinna manna er djöfulleg...í mínum huga er prestshempan ávísun á spillingu og mannfyrirlitningu...

Haraldur Davíðsson, 3.4.2010 kl. 22:30

4 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Húsprédikarinn hefur nú beðið gyðinga og þolendur kynferðisofbeldis afsökunar á ummælum sínum og ber að virða það.

Sigurður Þór Guðjónsson, 5.4.2010 kl. 12:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband