Bloggfærslur mánaðarins, október 2008

Gömul orð í tíma töluð um ríkisbubba

Í maí síðastliðnum að afliðnum kosningum skrifaði ég þennan pistil um auðmenn á þessa aflögðu bloggsíðu. Hann heitir "Hvað á að gjöra við ríka fólkið?" Betur að menn höfðu farið að ráðum mínum í næstsíðustu línunni:

Ég held að ég sé kominn með heilablóðfall. Ég er svo sljór og heimskur eitthvað. Og þungur í hausnum. Einn vinur minn segir að ég sé með léttustu mönnum. En nú er ég með þyngstu mönnum. Kosningavindurinn er líka alveg rokinn úr mér. Mér leiðist reyndar pólitík eins og hún nú er orðin. Ef ég má orða það mjög ófrumlega: Það er sama rassgatið undir þeim öllum. Mér er reyndar ekkert verr við Framsóknarflokkinn en aðra flokka ef einhver hysterískur aðdáandi þessarar síðu skyldi halda það. Bye the way. Lesturinn á síðunni hefur tekið  fjörkipp eftir að ég aflaði mér þessara fræknu og allsvakalegu bloggóvina. 

En ég kaus núna í fyrsta skipti í nokkur ár vegna þess að ég er svo gamaldags að mér hrýs hugur við því hvernig þjóðfélagið er að breytast annars  vegar í samfélag hinna ofurríku og hins vegar samfélag hinna blásnauðu. Ég kaus þess vegna með veika von um úrbætur í þeim efnum. Þegar ég var lítill og ég var víst alveg hlægilega lítill þegar  ég var lítill eins og ég hef oft sagt á þessari síðu var bara einn og einn miljónamæringur á stangli og voru að mestu leyti til friðs. Og þeir voru öreigar í samanburði við ríkisbubba nútímans.

Ég trúi því ekki að það hafi eitthvað með dugnað, því um síður mannkosti, að gera að verða svona óskaplega  ríkur. Óþolandi duglegt  fólk er út um allt og nær frábærri færni í sínu starfi en verður ekki forríkt. Nei, þetta hefur eitthvað með skapgerð og viðfangsefni að gera að verða svona moldríkur. Að nenna að standa í því að vasast í viðskiptum eða bankastandi. Að vera gráðugur og svífast einskis.

Ég held að þetta sé fyrst og fremst andlegt undirmálsfólk. Og mér finnst að eigi að meðhöndla það eftir því en ekki að vera setja það á háan hest fyrir allra augum sem eitthvert yfirburðafólk.

Mér finnst að ætti að gera það höfðinu styttra.

En þar sem ég var að fá heilablóðfall og hugsanir mínar eru nú mjög blóðidrifnar ætla ég nú bara að halda þessari meiningu fyrir sjálfan mig.


Ekki víst að veturinn sé kominn til að vera

Þó nú sé snjór fyrir norðan er ekki þar með sagt að veturinn sé kominn til að vera næstu mánuði. Þær spár sem ég hef séð, að vísu nokkuð misvísandi, benda til að mjög hlýtt loft muni koma til landsins um mánaðamótin. Gangi það eftir mun verða brátt um snjóinn.

En ef veturinn er kominn til að vera verður hann með lengsta móti því enn er nú ekki nema október. Sumir vilja víst óðir fá slíkan vetur - svona rétt til að létta landsmönnum lundina. 

Ég hef samt enga trú á því að þeim veðri að ósk sinni.   


mbl.is Veturinn kominn fyrir alvöru
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslendingar eru ekki svína bestir

Það var blindafyllirí sem skapaði allan blæinn á þessu sukki á bíladögum á Akureyri. Hvað hefði verið sagt ef það hefðu verið ólögleg fíkniefni?

Viðhorf Íslendinga til fíkniefna er einkennilegt. Næstum allir úthrópa ólögleg fíkniefni og fordæma þá sem neyta þeirra. Enginn vill að neysla þeirra aukist. Þegar að áfengi kemur, sem veldur meiri skaða, ofbeldi, slysum og þjáningum en öll hin fíkniefnin til saman, er allt annað hljóð í strokknum. Neyðsla áfengis verður aldrei svo groddaleg að menn haldi samt ekki áfram að vilja opna allar gáttir fyrir því, svo sem selja það í matvöruverslunum. Unglingum er sagt að neyta ekki ólöglegra fíkniefna en þeim er aldrei sagt að neyta ekki áfengis - bara að láta það bíða. Endilega að drekka það á endanum. Sú skoðun þykir sem sagt hallærisleg - eitthvað í ætt við gömlu temnplarana sem þó eru öllum löngu gleymdir - að það sé holt og eðlilegt að drekka ekki brennivín líkt og það er holt og eðlilegt að reykja ekki.

Áfengisneysla triggerar einhverju hömlulausu æði við vissar kringumstæður, blindafylleríi og óspektum, til dæmis á útihátíðum, þar sem fæstir sem taka þátt í svínaríinu drekka þó áfengi úr hófi við aðrar aðstæður. Svona skemmtanir er ekki hátíðir alkahólista fyrst og fremst heldur bara venjulegs fólks. Þær hafa samt öðlast eins konar löghelgun með það að allir megi sleppa fram af sér beislinu. Hátíðirnar eru haldar ár eftir ár þó þær fari úr böndunum í hvert sinn. Kvartanir íbúa í grennd eru ekki teknar til greina. Svínaríið er tekið fram yfir heilbrigt og eðlilegt  líf friðsamra borgara.  

Áfengismórallinn í landinu, sem umber allt og þolir allt, er í sjálfu sér eiginlega alkóhólískt fyrirbrigði. Íslendingar hafa aldrei getað drukkið eins og manneskjur. Þeir drekka alltaf eins og svín. 

Og ekki eru þeir svína bestir.  

 


mbl.is Erfið nótt á Akureyri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dómsmálaráðherra frammi fyrir staðreyndum

Dómsmálaráðherra hampaði á bloggsíðu sinni ónákvæmri frétt þess efnis að flóttamenn frá Keníu þekktust ekki utan einn. Nú hefur Jón Bragi í Svíþjóð sent mér sem athugasemd á mína síðu með opinberri tölfræði frá Svíþjóð sem sýnir svart á hvítu að í fyrra, hvað þá eftir rósturnar á þessu ári, leitaði 31 flóttamaður hælis í landinu.  

Þetta eru staðreyndir. Þær sýna, með mörgu öðru, að umrædd frétt stenst ekki.

Dómsmálaráðherra notaði hana samt til að verja málstað sinn um að ekkert athugavert hefði verið að víkja Paul Ramses úr landi. Kannski hefur hann trúað henni eins og saklaus drengur.

Nú geri ég þá ráð fyrir að Björn hampi þessum óræku staðreyndum um flóttamenn í Svíþjóð á bloggsíðu sinni til að draga úr þeim áhrifum sem tilvísunin til hinnar ónákvæmu fréttar á síðu hans um flóttamenn frá Kenía kann að hafa valdið meðal lesenda hans.

Ekki trúi ég að ráðherra i ríkisstjórn Íslands vilji leiða almenning á villigötur um mál sem nú er eitt af þeim sem mest er rætt.   


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband