Áfram Wikileaks

Því fleiri ríkisstjórnir sem fordæma uppljóstranir Wikileaks því mikilvægari eru þær. 

Ef þeir vilja fordæma einhverja ættu þeir að líta í eigin barm því uppspretta alls þess sem ljóstrað er upp um og á að vera svona skaðlegt er hjá þeim sjálfum og engum öðrum. Þeir tala um að mannslíf séu í hættu en standa sjálfir fyrir manndrápum í stórum stíl eins og ekkert sé. Hvetja jafnvel opinberlega til morða á þeim sem ljóstra upp um þá.

Hræsnarar og aumingjar! 

Það er alveg sjálfsagt að almenningur um allan heim fái vitneskju um þær blekkingar og skuggastarfsemi sem viðgengst bak við tjöldin í refskák ríkja.

Hverjir gera til dæmis staði víða um heim hugsanleg skotmörk hryðjuverkamanna, Bandaríkjamenn sem hafa útvalið staðina sem slíka í vænisýki sinni, eða þeir sem segja frá því? 

Þetta er líka spurning um frelsið á netinu. Hvort ríkisstjórnir heimsins eigi að ráða þar lögum og lofum fremur en netverjar sjálfir. 

Áfram Wikileaks! 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Stundum tala diplómatar sín á milli "off the record". Slík samtöl eru ekki til útflutnings. Þau geta valdið misskilningi og stórtjóni.... og já, geta jafnvel teflt mannslífum í hættu.

Kannski er þetta með "mannslífin í hættu" uppspuni, en hvað veit maður

Gunnar Th. Gunnarsson, 6.12.2010 kl. 13:32

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ef þessu samtöl eru ''off the record'' ættu þau þá ekki að vera í recordinu.

Sigurður Þór Guðjónsson, 6.12.2010 kl. 13:43

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ef þau eru "off.." þá skil ég ekki hvernig þau gátu orðið "on.." Kannski eru þetta persónulegir minnispunktar og vangaveltur viðkomandi sendiráðsmanns, sem hann hefur ekki gætt nægilega vel. 

Tölvuhakkarar eru glúrnir. 

Gunnar Th. Gunnarsson, 6.12.2010 kl. 13:51

4 identicon

Hver sá sem er á móti Wikileaks, sá hinn sami á ekkert skilið nema það að verða aumur þræll fávita.
Það sem þolir ekki dagsljósið, það er einskis virði.

Við erum bara að sjá það að skíturinn flýtur upp, galgopar og vitleysingar eru við stjórn... Ekkert minna en heimsbylting dugar til að lagfæra málin.
Kisa í bónus, í tilefni jóla

doctore (IP-tala skráð) 6.12.2010 kl. 14:22

5 identicon

Damn it, Jesú smyglaði sér þarna inn :)

doctore (IP-tala skráð) 6.12.2010 kl. 14:30

6 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Kominn tími til að kisur færu að sjást á þessari hálfdauðu síðu.

Sigurður Þór Guðjónsson, 6.12.2010 kl. 14:37

7 identicon

Nú skulu menn hægja ferðina, því þetta er ekki alveg svona einfalt ...

Kíkið nánar, og þið hljótið að komast að þeirri niðurstöðu að gögnin að stórum hluta eru ekki einungis CIA, heldur einnig leyniþjónustur Evrópu, eins og SÄPO í svíþjóð.

Og, að halda að maður "steli" einhverju frá þessum leyniþjónustum ... þá er maður bara illa gefin, sagt á einföldu máli.  Þessar leyniþjónustur "leka" þessu út.  ûr því svo er komið, þá getur maður líka "bókað" að það standi eitthvað að baki "lekanum" ... einhver ásettningur og það ekki af því góða taginu ...

Ein af niðurstöðum þessara "uppljóstrana" er að, menn munu setja reglugerðir um að "vakta" internet enn betur.  Þessi "síðasti" frjálsi miðill, verður ekki lengur frjáls.  Sumir, munu segja að þarna sé bara "porr" á ferðini, svo það sé "guði sé lof".  En þið skuluð fá að vita það að verstu níðingarnir á netinu, eru á meðal lögreglunnar sjálfrar ... sem alltaf er að leita að sjálfum sér ... með því að níðast á öðrum.

Með öðrum orðum ... "treystið þessu ein langt og þið getið kastað því" ... eins og kaninn segir vanalega.

Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráð) 6.12.2010 kl. 18:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband