Lífsspeki

Því lengur sem maður lifir því langdregnara verður lífsdramað. Fer ekki bráðum að koma happy end?  

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Siggi... sjáðu þetta. Gæti glatt þig!

Lára Hanna Einarsdóttir, 10.3.2008 kl. 10:10

2 Smámynd: Þórbergur Torfason

Sæll Sigurður. Vel heppnuð dagskrá tengd 120 ára ártíð meistara Þórbergs í Háskólanum um helgina.

Þórbergur Torfason, 10.3.2008 kl. 11:42

3 Smámynd: Þórbergur Torfason

Sjálfur hlustaði ég á Þórunni Hrefnu ásamt fullri stofu af öðrum áheyrendum. Glymrandi gott erindi hjá henni.

Þórbergur Torfason, 10.3.2008 kl. 11:45

4 Smámynd: Þórbergur Torfason

Eftir að hafa lesið skrif þín síðustu daga Sigurður minn, verður mér ljóst hve illa umhleypingar vetrarveðursins fara í rithöndina á þér. Eitt virðist mér ljóst. Meistari Þórbergur mun væntanlega verða meira lesinn og haldið meira á lofti um ókomna tíð en nokkur annar rithöfundur sem horfinn er á braut.

Þórbergur Torfason, 10.3.2008 kl. 12:04

5 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Þetta er nú eins og talað út úr í mínu gamla hjarta - innst inni. Og  þetta var sómaþing og pönkínan tók sig vel út. Þú hefðir mátt gera vart við þig.  

Sigurður Þór Guðjónsson, 10.3.2008 kl. 14:12

6 Smámynd: Þórbergur Torfason

Ég hefði gert það elsku drengurinn en af þessari mynd þekkti ég þig ekki.

Þórbergur Torfason, 10.3.2008 kl. 23:25

7 Smámynd: Þórbergur Torfason

Ég hefði þekkt þig, hefðirðu haft köttinn með þér.

Þórbergur Torfason, 10.3.2008 kl. 23:26

8 identicon

Ég hefði nú fegin viljað hrista lúku á frænda goðsins, en bar ekki kennsl á hann. Talaði þó ögn við Fjölni, sem er bróðir ÞT og svo kenndi mér eitt sinn þriðji bróðirinn, Zophonías. Halafólk sýnist mér einstaklega vel af guði gert og kom það ekki á óvart. Ó, þú hreinlífa Suðursveit!

Til þess að reyna að átta mig á ættarmenginu, þá fletti ég upp í Íslendingabók og sá að kommentarinn ÞT á afmæli 12. mars, sama dag og ÞÞ! Það finnst mér merkilegt.

Þórunn Hrefna (IP-tala skráð) 11.3.2008 kl. 00:16

9 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Stórmerkilegt! Og hann var í sömu stofu og við og við vissum það ekki. Enn þá merkilegra!

Sigurður Þór Guðjónsson, 11.3.2008 kl. 00:35

10 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Hlustaðirðu á Víðsjá í dag?  Meira næstu daga.

Lára Hanna Einarsdóttir, 11.3.2008 kl. 03:02

11 identicon

Þórbergur Torfason skrifaði í gær og nefndi "120 ára ártíð meistara Þórbergs".  Það eru reyndar 120 ár frá fæðingu Þórbergs en ekki andláti hans.  Orðið "ártíð" þýðir nefnilega tími frá andláti en ekki tími frá fæðingu, en mjög oft er farið rangt með þetta hugtak.

Haukur Harðarson (IP-tala skráð) 11.3.2008 kl. 15:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband