Endanleg svör

Ég sá þessar spurningar á bloggsíðunni hennar Önnu Karen, sem fann þær einhvers staðar annars staðar og ég vil alveg ólmur og uppvægur svara þeim.

1.ERTU SKÍRÐ/UR Í HÖFUÐIÐ Á EINHVERJUM ? 
Ég heiti eftir móðurafa og ömmu minni.

2. HVENÆR FÓRSTU SÍÐAST AÐ GRÁTA ?
Þegar ég fæddist.

3. FINNST ÞÉR ÞÚ SKRIFA VEL ?
Ég má heita ólæs og óskrifandi.   

5. ÁTTU BÖRN ? EF JÁ HVE MÖRG ?
Mali er minn einkasonur og situr til hægri handar föðurins.

6. EF ÞÚ VÆRIR EINHVER ANNAR EN ÞÚ ERT,VÆRIRÐU VINUR ÞINN ? 
Erkifjandi.

7. NOTARÐU KALDHÆÐNI MIKIÐ ? 
Aldregi í lífinu!

8. FÆRIRÐU Í TEYGJUSTÖKK ? 
Ég læt ekki teygja mig og toga.

9. HVAÐA MORGUNMATUR ER Í UPPÁHALDI HJÁ ÞÉR ?
Hákallalýsi.  

10. REIMARÐU FRÁ ÞEGAR ÞÚ FERÐ ÚR SKÓNUM ?
Kann nú bara ekki að reima skó. 

11. TELURÐU ÞIG ANDLEGA STERKAN ?
Gífurlega.  

12. HVERNIG ÍS ER Í UPPÁHALDI HJÁ ÞÉR ? 
Hafís.

13. HVAÐ ER ÞAÐ FYRSTA SEM ÞÚ TEKUR EFTIR Í FARI FÓLKS ?
Hvort stelpur eru sætar en ekkert sérstakt hjá strákunum.

14.RAUÐUR EÐA BLEIKUR VARALITUR?
Eldrauður og æsandi.  

15. HVAÐ MISLÍKAR ÞÉR MEST VIÐ SJÁLFAN ÞIG ? 
Helvítis góðmennskan alltaf hreint!

16. HVAÐA MANNESKJU SAKNAR ÞÚ MEST ? 
Míó Krítarkattar sem var fyrsti kötturinn í lífi mínu.
 
17. VILTU AÐ ALLIR SEM LESA ÞETTA SVARI ÞESSUM LISTA ?
Segi eins og Anna Karen að annað væri guðlast. En líka klám.  

18. HVAÐA LIT AF BUXUM OG SKÓM ERTU Í NÚNA ?
Ég er núna buxnalaus og skólaus.

19. HVAÐ VAR ÞAÐ SÍÐASTA SEM ÞÚ BORÐAÐIR ?
Gamaldags ýsa með kartöflum.

20. Á HVAÐ ERTU AÐ HLUSTA NÚNA ?
Bullið í sjálfum mér.

21. EF ÞÚ VÆRIR LITUR, HVAÐA LITUR VÆRIR ÞÚ ?
Helblár og ógnvænlegur.

22. HVAÐA LYKT FINNST ÞÉR BEST ? 
Það er skítalykt af þessari spurningu.  

23. VIÐ HVERN TALAÐIRÐU SÍÐAST Í SÍMA ? 
Algjöra mektarpersónu.   

24. LÍKAR ÞÉR VEL VIÐ ÞÁ MANNESKJU SEM SENDI ÞÉR ÞESSAR SPURNINGAR? 
Hún er algjört æði!  

25. UPPÁHALDSÍÞRÓTT SEM ÞÚ HORFIR Á ? 
Þegar Íslendingar tapa stórt.

26. ÞINN HÁRALITUR ? 
Gamall og grár.

27. AUGNLITUR ÞINN ?
Vatnsglær í gegn.

28. NOTARÐU LINSUR ? 
Ég er gleraugnaglámur. 

29. UPPÁHALDSMATUR ?
Kjet.

30. HRYLLINGSMYND EÐA GÓÐUR ENDIR?
Skelfilegur endir!

31. SÍÐASTA BÍÓMYND SEM ÞÚ SÁST Í BÍÓ ? 
Borat.

32. KNÚS OG KOSSAR EÐA LENGRA Á FYRSTA DEITI ? 
Ég vil bara gera það strax án tafar.  

33. UPPÁHALDS EFTIRRÉTTUR ?
Ét aldrei neitt á eftir að ég er búnn að borða. Mér finnst það algjör tvíverknaður.

34. HVER ER LÍKLEGASTUR TIL AÐ SVARA ÞESSU OG BIRTA ?
Björn Bjarnason.   

35. HVER ER ÓLÍKLEGASTUR ?  
Það veit sá sem allt veit. 

36. HVAÐA BÓK ERTU AÐ LESA ? 
Illviðri á Íslandi í þúsund ár.

37. HVAÐA MYND ER Á MÚSAMOTTUNNI ÞINNI ? 
Músin mín notar ekki mottu. Hún ryðst bara inn á skítugum tánum.  

38. Á HVAÐ HORFÐIRÐU Í SJÓNVARPINU Í GÆR ?
Veðurfréttir.

39. ROLLING STONES EÐA BÍTLARNIR ?
Bach er bestur!
 
40. HVAÐ ER ÞAÐ LENGSTA SEM ÞÚ HEFUR FARIÐ FRÁ ÍSLANDI ?
Til Krítar þar sem ég hitti hann Mió og varð aldrei samur maður eftir og hann ekki samur köttur.

41. HVERJIR ERU ÞÍNIR HELSTU EIGINLEIKAR ?
Allir þeir sem prýða mega einn mann.   

42. HVAR FÆDDISTU ?
Í Vestmó.

43. SVÖR FRÁ HVERJUM ERTU SPENNTUST/SPENNTASTUR AÐ FÁ SJÁ ?
Anna Karen er búin að svara og ætli það sé þá ekki páfinn sjálfur.   


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: halkatla

ég var leynilega langspenntust að sjá þín svör

halkatla, 10.6.2008 kl. 18:17

2 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Vel svarað! 

Lára Hanna Einarsdóttir, 10.6.2008 kl. 20:43

3 identicon

oooo, svo gaman !!

alva (IP-tala skráð) 11.6.2008 kl. 01:37

4 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

ég svaraði 34. lið eins og þú, þótt aðrir fengju að fljóta þar með.

hef síðan verið á 'refresh' hnappnum, á síðunni hans Björns. Bíðandi eftir hans svörum.

Brjánn Guðjónsson, 11.6.2008 kl. 11:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband