Spjöld sögunnar

Einhvern veginn fannst mér eins og þetta færi svona með bangsann, sérstaklega þegar ég heyrði kokhreysti danska villidýrafangarans í sjónvarpinu sem ætlaði að fanga björninn. Ekkert mál, sagði hann.

Ólánið lá í loftinu. 

Þessi þjóðhátíðardagur kemst þá á spjöld sögunnar eftir allt saman fyrir það að ísbjörn var felldur.

Og nú er bara að bregða sér á ballið í bænum í kvöld! Villt djamm! Lífið heldur áfram!

Nema náttúrlega fyrir bangsann.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Elías Halldór Ágústsson

Gættu þín bara á að hvað sem þú gerir, ekki hlaupa í átt til sjávar!

Elías Halldór Ágústsson, 17.6.2008 kl. 23:09

2 identicon

Vona að það hafi verið stuð á balli!!

alva (IP-tala skráð) 17.6.2008 kl. 23:12

3 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Fór ekki á ballið. Þetta var bara retórík.

Sigurður Þór Guðjónsson, 17.6.2008 kl. 23:18

4 Smámynd: halkatla

þetta setti auðvitað dálítið svartan blett á daginn en Kassí fékk ekki að heyra þetta fyrren hún hafði skemmt sér vel, hún þakkar allar kveðjurnar :)

halkatla, 18.6.2008 kl. 00:25

5 identicon

hahahaha, ókei. retótík þá.

Sko, það vantar stað á Íslandi fyrir svona flakkara, förum að byggja hann upp strax, er það ekki eina ráðið, vera stórtæk og búa til flottan ísbjarnarverndardýragarð!!!

alva (IP-tala skráð) 18.6.2008 kl. 02:24

6 identicon

Já þetta var skrítið... um leið og björninn fór að hlaupa þá varða að skjóta hann!!

Uuuuu ég spyr mátti ekki gera ráð fyrir því??

Héldu menn að það væri bara hægt að labba upp að bangsa og biðja hann um að vera rólegan með hann yrði deyfðu??

 Jæja ég vona að menn safni reynslu í sarpinn og geri ráð fyrir að næsti björn geti lagt á flótta þegar reynt er að nálgast hann..

En að öðru...  Sigurður af hverju liggur færsla þín "Ofsatrú og öfgatrúleysi" niðri??

Tinni (IP-tala skráð) 19.6.2008 kl. 07:53

7 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Guðlaug Helga: Það rigndi dálítið síðdegis 19. júní 1953 í Reykjavík, úrkoman var 0,2 mm í mælinun kl. 18 og  mældi það sem hafði fallð frá kl. 9 en þessi úrkoma kom þegar leið á daginn. Um kvöldið eða nóttina hélt svo áfram að rigna dálítið og höfðu bæst við 0,3 mm þegar litið var í mælinn kl. 9 þ. 20. Dálðítið mistur var í lofti en suðaustan átt var í meginatriðum yfir landinu. Fremur hlýtt var í veðri, hámarkið var 14,7 stig og var mestur hitinn fyrir hádegi en eftir hádegi var 11-12 stiga hiti. Sólin lét sjá sig í þrjár klukkustundir. Mikið er svo notalegra að fá svona fyrirspurn en skýringarlausa staðhæfingu um það að skrif manns á blogginu séu merkingarlaust rugl.   

Sigurður Þór Guðjónsson, 19.6.2008 kl. 10:58

8 identicon

Geri því ráð fyrir að þú (Sigurður) hafir fjarlægt færslu þína v/ummæla um að hún væri "merkingarlaust rugl"?

Er þetta ekki óþarfa viðkvæmni hjá þér ef tekið er tillit til þess að það málefni sem þú fjallaðir um er nú í meira lagi umdeilt og hætta er því á skotið verði föstum skotum á báða bóga..   Ég gat nú ekki séð að farið væri út fyrir velsæmi og fannst mér menn takast málefnalega á...  en þú ræður..

Líklega eru hvatir fólks til að stofna bloggsíðu margar, en má ekki búast við því að það sem sett er á netið sæti gagnrýni og jafnvel harðri gagnrýni? Þú ert t.d. með þína síðu opna fyrir alla. Því geta menn og konur komið með ath.semdir við skrif þín, hvort sem, verið er að mæra þig í bak og fyrir (eins og núna) eða lasta (sbr. áður)...  Fyrst síða þín er opin geri ég ráð fyrir að þú viljir leyfa öllum að koma með ath.semdir? Því átta ég mig ekki á þessum viðbrögðum hjá þér. Það getur oft komið manni í koll að hlaða á sig eintómum jábræðrum?

Tinni (IP-tala skráð) 19.6.2008 kl. 14:05

9 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ástæðan sem þú tilgreinir Tinni að ég tók út færsluna er ekki ástæðan. Hér standa á síðum ýmsi lastmæli um mig sem fá að standa. En ég má auðvitað fjarlægja síður að vild og það hef ég stundum gert án þess að tilgreina ástæður. Og það mega allir gera og gera. Ég er ekkert að hlaða kringum mig einhverjum jábræðrum og finnst hól um sjálfan mig óþægilegt fremur en hitt. 

Sigurður Þór Guðjónsson, 19.6.2008 kl. 14:18

10 identicon

Gott og vel...  að sjálfsögðu mátt þú gera við síðu þína það sem þú vilt... er ekkert að vefengja það þó ég gagnrýni að þessi færsla þín hafi verið fjarlægð.. þú hefur væntanlega góðar og gildar ástæður fyrir því..

Get þó ekki látið hjá líða að minnast á að mér fannst þessi umræða mjög skemmtileg og spennandi og fjarri því að vera merkingarlaus....   Kemur flestum við .. Hefði bara verið holt fyrir fólk að lesa..  því leiðinlegt að hún skild tekin niður..

Oft finnst manni að margir bloggara hafi ekkert til málana að leggja aðnnað en "merkingarlaust rugl" eins og ég fór út í búð í dag eða ég þreif klósettið osfrv. en það varst þú ekki að gera í þessu tilviki..  læt þá liggja á milli hluta hvort veðurfar 19. jún. 1953 gæti flokkast undir slíkt.

Góðar stundir..

Tinni (IP-tala skráð) 19.6.2008 kl. 14:58

11 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Málið er það að ég var ekki ánægður með færsluna, sem var sett saman í of miklum flýti áður en ég varð að fara í bæinn, ég gerði mig t.d. sekan í ónákvæmni í orðavali, eins og ég nefndi reyndar í athugasemdum, sem hæglega gat valdið vissum misskilningi og ég held að hafi reyndar gert það. Þegar ég sá svo afleiðingarnar af því og svo ýmislegt annað fannst mér betra að taka færsluna niður. Það kemur fyrir að ég tek niður færslur sem ég er ekki ánægður með enda hlýtur manni sem ritstjóra síðunnar að vera það frjálst. Kannski var það misráðið að taka færsluna niður. Það hringdi í mig t.d. einn ágætur maður til að grennslast fyrir um hverju það sætti. Honum fannst umræðan áhugaverð. Svo viðurkenni ég það fúslega að ég er óþarflega viðkvæmur karakter. Það stafar ekki af merkikertahætti heldur tilfinningalegu súpersensitívu sem stundum verður jafnvel líkamlega mjög óþægileg. Þessi færsla og það sem henni fylgdi fannst mér einmitt virka þannig á mig. Ég hef náttúrlega við engan að sakast nema sjálfan mig. Þakka þér skynsamlegar athugasemdir.   

Sigurður Þór Guðjónsson, 19.6.2008 kl. 21:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband