Því er ekki að leyna

Að ýmislegt er óljóst varðandi mál Paul Ramses.  Mér finnst til dæmis að þau hjá ABC, sem sagt er að hafi sönnungargögn um það að Ramses sé á dauðalista í Keníu, ættu að birta gögnin opinberlega. Gögnin hafa hvergi birst svo ég viti. Þessi líflátsógnun er sterkasta röksemdin fyrir því að Paul Ramses verði veitt hér hæli sem pólitískum flóttamanni.

Nú er ég ekki að draga trúverðugleika Paul Ramses í efa. Aðeins að benda á það að beinar staðreyndir eru grundvöllur allra mála.

Sitt hvað fleira sem mál hans varðar mætti vera stutt órækum gögnum frá hlutlausum aðila. Ekki treysti ég Útlendingastofnun og vitnisburður annarra þarf auðvitað líka traustra heimilda við.

Útvarpið var að skýra frá því að utanríkisráðherra vildi ekki gefa upp afstöðu sína til þess hvort hún vilji að reynt verði að fá Paul Ramses aftur til Íslands. Hvers vegna ekki? Hún hefur sagt að sér sé umhugað um málið. Afhverju getur ráðherran þá ekki gefið hug sinn upp til þjóðarinnar? Þjóðin hlýtur að eiga heimtingu á því miðað við fyrri yfirlýsingar utanríkisráðherra. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Það er nú auðvelt að sjá hvaða skoðun utanríkisráðherra hefur í þessu máli með því að skoða hennar aðgerðir í málinu.

Rosemary, eiginkona Pauls Ramses, fékk dvalarleyfi í Svíþjóð til ársins 2012, trúlega vegna þess að það væri svo leiðinlegt að búa í Kenía, samkvæmt Ómari Valdimarssyni.

Og gruni lögregluna í Kenía Paul um að hafa stolið peningum, sem sendir voru héðan til Kenía á vegum ABC Barnahjálpar, bar henni að krefjast framsals á Paul til Kenía. Og lögreglan hér hefði átt að rannsaka það mál, gruni hana slíkt hið sama, og ekki hefði nú Útlendingastofnun látið happ úr hendi sleppa að minnast á slíkt í sínum yfirlýsingum.

Það er ekki nóg að vera svartur eða geðveikur, maður þarf líka að geta sannað það. Tala nú ekki um ef maður er bæði svartur og geðveikur.

Þorsteinn Briem, 7.7.2008 kl. 14:46

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

við Mali viljum koma á framfæri óskum um svör - undir þetta skrifar Anna Karen

Sigurður Þór Guðjónsson, 7.7.2008 kl. 16:28

3 Smámynd: Þorsteinn Briem

Sá sem sækir um pólitískt hæli á Íslandi er klárlega geðveikur. Hann þarf ekki að sanna það. Bobby Fischer fékk hér pólitískt hæli á grundvelli sérstakra tengsla sinna við landið, án þess að hafa búið hér eða dvalið í rúmlega þrjá áratugi, átt hér ættingja eða maka. Hann hafði einungis verið hér í nokkrar vikur sumarið 1972 vegna heimsmeistaraeinvígis í skák.

Fyrst fékk Bobby Fischer hér dvalarleyfi og þegar það dugði ekki til að fá hann lausan úr varðhaldi í Japan fékk hann nokkrum mánuðum síðar íslenskan ríkisborgararétt.

Kenía, Bandaríkin og Japan eru öll utan Evrópu. Bobby Fischer var hins vegar hvítur og bar hróður Íslands út um allar koppagrundir með því að láta svo lítið að koma hingað fyrir 36 árum. Þess vegna slapp hann við fangelsisvist í Bandaríkjunum. Það borgar sig alltaf að koma til Íslands.

Þorsteinn Briem, 7.7.2008 kl. 17:04

4 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Anna Karen var hér í heimsókn að heilsa upp á Mala og láta gott af sér leiða.

Sigurður Þór Guðjónsson, 7.7.2008 kl. 17:12

5 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Í dag segir leiðari Morgunblaðsins að taka ætti mannúðarsjónarmið til greina í Ramsesmálinu. Sama var haft eftir varaformanni Smfylkingarinnar í sjöfréttum RÚV. Þetta hef ég verið að segja hér á blogginu og bent á að mannúðarsjónarmið eru ekki eitthvað sem er utan við lögin sem fara á eftir heldur er beinlínis gert ráð fyrir þeim í lögunum.

Sigurður Þór Guðjónsson, 7.7.2008 kl. 18:14

6 Smámynd: Þorsteinn Briem

Samkvæmt lögum um útlendinga er beinlínis bannað að senda flóttamann héðan til annars ríkis, hafi hann sérstök tengsl við Ísland, þrátt fyrir að viðkomandi hafi komið hingað frá öðru Schengen-landi.

Í því tilfelli þarf einungis að skilgreina hvaða merkingu "sérstök tengsl" hefur og það gefur auga leið að þau merkja hér fleira en eingöngu það að viðkomandi flóttamaður eigi hér fjölskyldu eða maka, því þá myndi slíkt vera beinlínis tekið fram í lögunum, í staðinn fyrir "sérstök tengsl".

Mestu tengsl við landið eru að eiga hér fjölskyldu eða maka og þau næstmestu eru að hafa búið hér, líkt og Paul Ramses hefur gert. Og ekki er hægt að ætlast til að pólitískir flóttamenn hafi búið hér lengi til að þeir teljist hafa sérstök tengsl við landið.

Hér er hins vegar um undanþáguákvæði að ræða og því ber að túlka það þröngt, þannig að ekki getur verið um margt annað að ræða í þessum efnum. Þeir sem hafa einungis komið til Íslands sem ferðamenn hafa til dæmis ekki sérstök tengsl við landið í þessum skilningi.

Bobby Fischer fékk hér hæli sem pólitískur flóttamaður á grundvelli sérstakra tengsla sinna við landið, sem hann taldist hafa, þar sem hann hafði teflt hér sumarið 1972. En hann átti hér "eingöngu" vini en ekki ættingja eða maka og hann hafði aldrei búið hér.

Paul Ramses sótti hér um pólitískt hæli 31. janúar síðastliðinn og þá voru bæði hann og eiginkona hans hér löglega. Hann kom hingað frá Ítalíu um miðjan janúar í ár og dvalarleyfi hans á Ítalíu rann út 20. febrúar síðastliðinn, samkvæmt Útlendingastofnun.

Lög um útlendinga nr. 96/2002:


46. gr. Réttur til hælis.

Ekki skal endursenda flóttamann til annars ríkis skv. c-, d- og e-lið 1. mgr. ef hann hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd.

Maki flóttamanns, sambúðarmaki eða samvistarmaki og börn undir 18 ára aldri án maka, sambúðarmaka eða samvistarmaka eiga rétt á hæli nema sérstakar ástæður mæli því í mót."

Þorsteinn Briem, 7.7.2008 kl. 21:01

7 Smámynd: halkatla

ég fann svörin við skuggalegustu spurningunum okkar Mala í bakþönkum Þráins Bertels í dag, allavega sumt af þeim Mali getur ábyggilega bitið mjög fast í helbláu höndina!

halkatla, 7.7.2008 kl. 21:13

8 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Það kom vel fram í Kastljósi, sem Steini Briem hefur reyndar bent á einhvers staðar á netinu, að kona Ramses kom hér löglega en svo rann dvalarleyfið út vegna seinagangs Útlendingastofnunar við afgreiðslu málsins. Svo fjallar Haukur Guðmundsson um hana sem afbrotamann og hótar að reka hana úr landi, væntanlega með samþykki dómsmálaráðherra. Þetta er að koma eigin sök upp á aðra og er fáheyrður skepnuskapur.

Sigurður Þór Guðjónsson, 7.7.2008 kl. 21:48

9 Smámynd: Þorsteinn Briem

"Ættingja eða maka" átti að sjálfsögðu að standa hér að ofan en ekki "fjölskyldu eða maka".

Davíð Oddsson, þáverandi utanríkisráðherra, beitti sér fyrir því á sínum tíma að Bobby Fischer fengi íslenskan ríkisborgararétt og þar með pólitískt hæli hér. Sú umsókn fór fyrir Allsherjarnefnd Alþingis og Alþingi veitt honum ríkisborgararéttinn í mars 2005, en Fischer hafði fengið hér dvalarleyfi í desember 2004, sem dugði ekki til að Japanir slepptu honum úr haldi.

Bandarísk stjórnvöld óskuðu eftir að fá Fischer framseldan frá Japan til Bandaríkjanna, þar sem hann átti yfir höfði sér allt að tíu ára fangelsi fyrir að brjóta viðskiptabann Bandaríkjanna gegn Júgóslavíu með því að tefla við Boris Spassky í Belgrad árið 1992.

Þorsteinn Briem, 7.7.2008 kl. 21:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband