Flengingar barna eru alltaf ruddalegt athæfi

Það finnst mér skrýtinn skoðun hjá dómaranum þegar hann segir að flengingar á "óþekkum" börnum séu ekki sjálfkrafa yfirgangur, ruddalegt eða ósiðlegt athæfi.

Mikið er ég ósammála. Ef einhver tæki sig nú til og hýddi dómarann á beran bossann ætli honum myndi ekki finnast það vera yfirgangur, ruddalegt og fullkomlega ósiðlegt athæfi?

Mín skoðun á flengingum barna er einföld og jafnréttissinnuð með afbrigðum. Það er alveg jafn ruddalegt og lítillækkandi að rassskella börn og að rassskella fullorðinn mann gegn vilja hans. En rassskellingar ku vera iðkaðar með upplýstu samykki  í sumum kinkyleikjum fullorðinna. Það er önnur saga og ekki par falleg eður kristileg. 

En nú þarf ég að fara að flengja hann Mala fyrir déskotans óþekktina í honum alltaf hreint.


mbl.is Flengingar ekki alltaf ruddalegt eða ósiðlegt athæfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

ekki ætla ég að mæla flengingum bót sem uppeldisaðferð. finnst það gamaldags hugsunarháttur. en hvað var þetta með olíuna? hví bar hann olíu á þá?

ég hefði frekar haldið hann bæri olíu á konuna, þegar hún er óþekk á kvöldin og fær flenginu.

en svona án gríns. mér þykir þetta með olíuna heldur weird.

Brjánn Guðjónsson, 15.8.2008 kl. 16:14

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Nú er ég brjáluð.  Veit dómara********** ekki að ofbeldi er bannað skv. barnalögum?

Jenný Anna Baldursdóttir, 15.8.2008 kl. 16:29

3 Smámynd: Ríkharður Hjartar Magnússon

Kunningi minn rassskellti son sinn. Sonurinn sagði frá því í skólanum daginn eftir, vinum sínum til að grobba sig af glæpnum sem varð til þess að hann varð rassskelltur.  og allt varð vitlaust. barnaverndarnefnd ruddist inn til hans og gramsaði í öllum skápum, meðal annars niður á botn í frystikistunni til að finna vísbendingar um meinta misþyrmingu á börnum. Það sem stráksi gerði af sér var svo sem ekki mikið, stal bara bílunum AFTUR og var að dunda sér við að skrensa fyrir vini sína þegar pabbi hans kom heim. Áður hafði hann keyrt hann á hús, en reyndar bara með því að taka hann úr parki og handbremsu, ekki með því að setja hann í gang. Fyrst hann lærði ekki lexíu af því var greip pabbinn til þessara ráða. Og væli nú hver sem vill.

Ríkharður Hjartar Magnússon, 15.8.2008 kl. 16:50

4 identicon

Maður beitir aldrei ofbeldi NEVER
Ofbeldi er uppgjöf og getur bara leitt illt af sér.

DoctorE (IP-tala skráð) 15.8.2008 kl. 17:07

5 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Það er enginn að væla hér. Ég skal samþykkja hýðingar og annað líkamlegt ofbeldi ef það er hinn veikari sem fær að láta hinn sterkarii fá að kenna á því. En þetta gengur allt út á það að sá sem er sterkari beiti hinn veikari ofbeldinu. Það rassskellir enginn eða lúber mann sem er miklu sterkari og stærri en hann sjálfur. Hvað sem hver segir þá er rassskelling líka í grunninn kynferðisleg niðurlæging og því meira sem sá sem rassskeltur er er stálpaðari. Þetta held ég að flestir skynji og það breytir engu um þetta eðli flengingarinnar, sem fyrst og fremst er gerð til að niðurlægja, að hún hefur verið notuð um aldir - til þess að niðurlægja börn með kynferðislegum blæbrigðum en það þykir sumum einmitt mjög flott og viðeigandi refsing - af því að hún svíður flestum öðrum refsingum sárara.

Sigurður Þór Guðjónsson, 15.8.2008 kl. 17:17

6 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Þessi maður var rassskelltur sem barn, og foreldrar hans þar á undan, allir rassskelltir ættlið eftir ættlið alveg aftur á landnámsöld, en í Sögu Daganna eftir Árna Björnsson er upplýst að á miðöldum báru menn lýsi á meiddið á Rassmessu. Mjög kinký, en ekki að furða ef þessi siður er kominn frá Noregi með landnámsmönnum. Sumir telja hann þó kristinn. Nú verðum við að hafa siðaskipti og gefa bara börnunum beint á kjaftinn. Það sést og er því miklu heiðarlegra.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 15.8.2008 kl. 18:17

7 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Nú, það er þá ekki að furða þó téður maður sé alltaf að steyta görn!

Sigurður Þór Guðjónsson, 15.8.2008 kl. 18:56

8 identicon

Flengingar barna eru háalvarlegt mál, og eins og hefur komið fram hérna, er gamaldags hugsunarháttur að nota slíkt sem uppeldisaðferð.  Þessi aðferð tíðkaðist nokkuð í samfélaginu í mínu ungdæmi en er sem betur fer að leggjast af núna (vona ég!).  Þetta skilur líklega alltaf eftir einhver ör á barnssálinni - varanlegri í sumum tilfellum en öðrum.

Bæ ðe vei:  Ég tala af reynslu hér - ég fékk sjálf minn skerf af þessari miðalda "uppeldisaðferð".  Og ég er ekki viss um að ég eigi nokkurn tíma eftir að fyrirgefa viðkomandi geranda fyrir þessa lífsreynslu - nema kannski þegar ég verð komin með Alzheimer!

Malína (IP-tala skráð) 15.8.2008 kl. 19:26

9 Smámynd: halkatla

þetta er vibbi

halkatla, 16.8.2008 kl. 19:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband