Aumingja Fagurhólsmýri!

Sú var tíðin að Fagurhólsmýri var ein af elstu og virðulegustu mönnuðu veðurathugunarstöðvum á landinu. En í apríllok síðastliðnum var mönnuðum athugunum hætt en stöðin hélt áfram sem sjálfvirk stöð.

Nú hafa svo engar sjálfvirkar athuganir komið á vef Veðurstofunnar á netinu síðan 25. nóvember.

Fagurhólsmýri má muna sinn fífil fegri. Og þetta er sú stöð sem oftast hefur mælt mesta dagshita á landinu! 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Njörður Helgason

Ég fór austur um land í sumar. Þá liggur leiðin gegnum Fagurhólsmýri. Þar finnst mér Snorrabúð stekkur. Þessi stoppistöð er ekki aðeins horfin af veðurathugunarkorti. Einnig er verslun ekki lengur á staðnum. Rétt sjálfsali á eldsneyti. Vissulega er KASK farið á haus, líkt og flestöll kaupfélög á landinu. Að koma á Fagurhólsmyri er líkast því að koma að eyðibýli. Búskapur að vísu enn stundaður, en dyr þjónustunnar lokaðar.

Njörður Helgason, 10.12.2008 kl. 22:06

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Þetta er vont að lesa. Allt að hverfa. Einu sinni var þarna mikið um að vera, meira að segja áætlunarflug til Fagurhólsmýrar.

Sigurður Þór Guðjónsson, 10.12.2008 kl. 22:52

3 Smámynd: María Kristjánsdóttir

Ætli þetta orð Fagurhólsmýri sé ekki eitt af fyrstu orðunum sem maður féll fyrir.

María Kristjánsdóttir, 10.12.2008 kl. 23:42

4 Smámynd: Steingrímur Helgason

Ég man þá tíð að Flugfélagið hélt uppi áætlun þarna niður á sandi.

Steingrímur Helgason, 11.12.2008 kl. 01:29

5 identicon

Þar er nú reyndar ekki við Vesðurstofuna að sakast í þessum efnum. Landeigandi vildi hætta gerð veðurathugana og í framhaldi vildi landeigandi láta fjarlægja alla mæla veðurstofunnar af landareigninni. Í framhaldinu verður líklega komið fyrir sjálfvirkri stöð hjá gamla flugvellinum þ.e. ef niðurskurðardraugurinn verður ekki of ágengur.

Óli Þór Árnason (IP-tala skráð) 11.12.2008 kl. 10:04

6 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég var ekki að saka neinn um neitt. Hins vegar get ég svo sem alveg gert það núna: Mér finnst það illt ef landeigandinn hefur látið fjarlægja alla mæla af landareign sinni. Ekki fer nú mikið fyrir þessu sjálfvirka mastri. Þarna hafa verið veðurathuganir frá 1903 og mér finnst það ekki bara skilningsleysi heldur nánast skemmdarverk að flæma athuganirnar alveg burt þó enginn efist um að landeigandinn ráði yfir sínu landi en ég ræð yfir minni hugusn. Þetta álit mitt má því alveg koma hér fram og verður eflaust það eina í þessa átt sem farm kemur opinberga. Verði veðurstöðin flutt á flugvöllin er vafamál hvort um sömu stöð sé að ræða. Verði hins vegar engin stöð sett upp er það enn verra mál.

Sigurður Þór Guðjónsson, 11.12.2008 kl. 12:29

7 Smámynd: Þórarinn M Friðgeirsson

Man eftir að hafa hlustað á þetta í gufunni í "gamla daga" í sveitinni hjá afa og ömmu. Fagurhólsmýri aust suðaustan 4. Skúr á síðustu klukkustund, loftvogin 1004 millibör, fallandi. Þetta situr í minningunni og algjör synd að þetta sé dottið út. kv. Tótinn

Þórarinn M Friðgeirsson, 11.12.2008 kl. 14:24

8 Smámynd: Sigrún Sigurgeirsdóttir

Sem síðasti veðurathugunarmaður og landeigandi á Fagurhólsmýri langar mig að fá að blanda mér í þessa umræðu.  Veðurathuganir eru skemmtilegar, það er gaman að fylgjast með veðrinu og upplýsingar sem fást með því móti geta komið að gagni á margvíslegan hátt.  Ástæða þess að ég sagði upp starfi mínu sem veðurathugunarmaður var tvíþætt: í fyrsta lagi er starfið mjög bindandi þar sem gert er ráð fyrir veðurskeytum hvern einasta dag ársins (hvorki gert ráð fyrir helgarfríum, sumarfríum né öðrum fríum): það er ekki einu sinni hægt að fara í góða göngu í Þjóðgarðinum í Skaftafelli sem er hér skammt frá, nema skrópa í vinnunni (sleppa úr veðurathugunartíma).  Hins vegar eru launin fyrir þessar veðurathuganir ekki nægilega há til að duga sem framfærslueyrir þannig að það er óhjákvæmilegt að vera líka í öðru starfi - en það er ekki auðvelt þar sem annað starf rekst ævinlega á við umsamdar veðurathuganir!  Ég gerði það þó í einhver ár með góðri hjálp pabba sem sinnti veðurathugunum fyrir mig á meðan ég var í hinni vinnunni minni (og þegar ég t.a.m. þurfti að aka mína 220 km í næstu matvöruverslun), en það er ekki nógu gott að vera í starfi sem maður kemst ekki yfir að annast - sjálf sá ég enga leið til að láta þetta ganga upp.

Þegar ég sagði starfi mínu lausu þá vildi ég jafnframt losna við búnaðinn út úr húsinu mínu.  Við erum svo "heppin" að það eru fleiri hús á Fagurhólsmýri sem gátu hýst slíkan búnað þannig að við töldum ekki nauðsynlegt að hafa hann inni í íbúðarhúsinu.  Okkar tillaga var að færa sjálfvirka mastrið um líklega 400 metra, þá væri það komið á mjög svipaðar slóðir og það hefur verið frá árinu 1903, að undanskildum síðastliðnum 9 árum eða svo.  Einnig lagði ég fram tillögur að því hvar innibúnaðurinn gæti verið staðsettur.  Ég ætla ekki að rekja samskipti mín við Veðurstofuna, en niðurstaðan var að stofnunin óskaði eftir að setja búnaðinn upp neðan við flugvöllinn gamla.  Við vorum satt að segja ekki sátt við það, héldum að það væri betra að hafa hann á sömu slóðum og hann hefur verið frá 1903, en þetta varð niðurstaðan frá þeirra hálfu og þá samþykktum við það.

Mannaðar veðurathuganir gefa aðrar og ítarlegri upplýsingar en sjálfvirkar mælingar.  Að gamni mínu (að eigin frumkvæði og án þess að ræða það við Veðurstofuna), þá skráði ég hitastigið frá sjálfvirku stöðinni aukalega um þriggja mánaða skeið einn veturinn.  Ég hugsaði með mér að þá væri hægt að bera saman útkomuna úr mælahúsinu og staurnum, ef einhver hefði áhuga á því.  Þessi skráning er í mælingabókunum sem varðveittar eru á Veðurstofunni. Þ.e. ég skráði aflestur af þeim 4 hitamælum sem um var beðið og þessa mælingu að auki; en það er staðreynd að þessar mælingar eru ekki alveg samhljóða (ég ætla ekki að útskýra það því ég er ekki viss um að nokkur hafi áhuga á því).

Þá er best að hafa nokkur orð um aðrar breytingar á Fagurhólsmýri.  Einu sinni var áætlunarflug að Fagurhólsmýri.  Þá var ekki búið að brúa árnar á Skeiðarársandi.  Ábúandi í Skaftafelli þurfti oftar en einu sinni að útskýra fyrir ferðafólki að leiðin til Reykjavíkur lægi austur um land og allan hringinn til baka.  Opnun hringvegarins var töluverð breyting, ekki bara fyrir okkur á Fagurhólsmýri: það eru fleiri en við sem ökum um Skeiðarársand núna!  Það væri ánægjulegt að hafa áætlunarflug hingað, en mér finnst samt enn betra að geta ekið suður.  Samt sem áður, ef ég get einhvern tíma ferðast með áætlunarflugi milli Reykjavíkur og Fagurhólsmýrar á svipuðu verði og aksturinn kostar mig, þá mun ég glöð nýta mér það. 

Muna ekki allir eftir því þegar Hagkaup og Kaupfélögin voru einu stóru matvöruverslanirnar og ótal smáverslanir voru út um allar trissur?  Í dag er matvöruverslun á Íslandi yfirleitt bundin við stórar keðjur.  Kaupfélögin eru ekki lengur burðarásar í byggðarlögum úti á landi. Ég veit ekki betur en stóru aðilarnir í starfandi verslunarkeðjum á matvörumarkaði séu búsettir í Reykjavík. Bónus, Krónan, Nóatún, Klukkubúðirnar, Olíufélögin sem flest selja jú einhverjar matvörur líka, eru ekki höfuðstöðvarnar og eigendur í Reykjavík?  Ég man líka eftir matvörubúðum í Reykjavík sem hafa lagt upp laupana; ég held að þetta sé ekki bundið við Fagurhólsmýri heldur hefur verslunarlandslag breyst víða á landinu. Ég veit að einkaaðilinn sem síðast stundaði verslunarrekstur á Fagurhólsmýri þurfti að hætta vegna þess að hann réði ekki við samkeppni við stóru keðjurnar.  Þá kannski hnussar nú einhver - en staðreyndin er sú að íbúum í Öræfum hefur fækkað og eftir því sem samgöngur batna er meiri samkeppni í verslun: ferðamenn eru t.d. fljótir á milli staða og geta hæglega verslað í Bónus áður en þeir fara í útilegu í Skaftafelli svo dæmi sé tekið - það er ekki tilfellið að menn versli alla matvöru þar sem menn ætla að gista þegar menn eru á ferðalögum.  Það var oft gaman í búðinni á Fagurhólsmýri og ég sé eftir henni.

Það hefur margt breyst á Fagurhólsmýri frá því að ég var barn.  Það hefur líka margt breyst annars staðar á landinu.  Sumt er til batnaðar, annað til hins verra.

Með kveðju frá Fagurhólsmýri,  Sigrún Sigurgeirsdóttir

Sigrún Sigurgeirsdóttir, 12.12.2008 kl. 17:17

9 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Takk fyrir þessar upplýsingar Sigrún.

Sigurður Þór Guðjónsson, 13.12.2008 kl. 14:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband