Forsætisráðherra stefnir að blóðbaði

Forsætisráðherra er EKKI á kosningabuxunum. Hann er að stefna þjóðinni í glötun. Hann ætlar svo ekkert í alvöru að gera til að sefa réttmæta reiði almennings. Afleiðingin verður sú að  ráðherrann  fær hann allan upp á móti sér nema nokkra rótgróna Sjálfstæðismenn. Það sem hann mun svo gera á endanum er að beita gríðarlegu lögregluofbeldi. Til þess var hann að tala við lögregluna í morgun.

Afneitun ráðherrans í þessu viðtali er blátt áfram óhugnanleg. Hann er bara ekki í sambandi.

Hann er að stefna beina leið til blóðsúthellinga. 

Vonandi fer samt ekki fyrir forsætisráðherranum eins og Ceausescu einræðisherra Rúmeníu sem hélt áfram að blaðra án nokkurra tenglsa við raunveruleikann þar til afstökusveitin þaggaði niður í honum.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Og enn og aftur býður forsætisráðherra okkur upp á undanbrögð í stað svara þegar hann er spurður um hreinsanir í Seðlabanka og FME.

Hann ætlar ekki að taka á spillingunni sem kom þessu þjóðfélagi á hausinn. Fái hann að sitja áfram verður allt við það sama. Hann þorir bara ekki að hætta því hann veit að nýjir aðilar munu rannsaka málin og allur skíturinn flýtur upp. 

Ibba Sig. (IP-tala skráð) 21.1.2009 kl. 20:32

2 Smámynd: Halla Rut

Einmitt. Það kom svo skýrt fram að honum finnst engir einstaklingar bera nokkra ábyrgð.

Hann ætlar sér að halda sætinu því hann veit svo vel að hann verður ekki kosinn aftur.

Halla Rut , 21.1.2009 kl. 23:34

3 Smámynd: Eygló

Ég er vissum að hluti andstyggðar fólks á GHH er hvað hann virðist/er hrokafullur. Hroki brýst oft fram hjá þeim sem hafa lítla trú á sjálfum sér, feimnum, sakbitnum og hræddum. Veljið eitt (eða fleiri)

Eygló, 22.1.2009 kl. 00:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband