Prófkjörsslagurinn er hafinn

Þetta er klókur leikur hjá viðskiptaráðherra. Að segja bara af sér og það af eigin hvötum og reka Fjármálaeftirlitið og allt hvað þetta hefur.  Nú kemur hann fram sem hinn ábyrgi stjórnmálamaður sem axlar þessa frægu ábyrgð.

En þó ekki fyrr en eftir að allt logar í mótmælum og búið er að ákveða að efna til kosninga.

Ráðherrann býður sig nú fram í kosningaslaginn -  og þykist heiðarlegur, ábyrgðarfullur og saklaus eins og lamb í haga.Við sjáum þó við honum. Hann er fyrst og  fremst refur í haga sem er að hugsa um eigin pólitísku framtíð en ekki almannahag.

Það er Steingrímur J. líka að gera. Hann fór geyst með að skila aftur gjaldeyrissjóðsláninu. Það gerir hann óhæfan í stjórn að flestra áliti. Nú er hann að draga í land með gasprið.

Hvers vegna? Jú, til að koma til greina í stjórn. Hann er líka fyrst og fremst að hugsa um eigin hag en ekki almannahag.

Oj bara! Burtu með þess menn af vettvangi íslenskra stjórnmála. 

Það er svo eftir öðru, og speglar vel íslenska pólitík,  að Gunnar Helgi stjórnmálafræðingur sagði áðan í aukafréttum RUV að varaformaður Samfylkingarinnar nyti greinlega ekki mikils trausts í flokknum og þess vegna gæti hann komið til greina sem eftirmaður viðskiptaráðherra til að setja plástur á sár varaformannsins, eins og Gunnar Helgi komst að orði. Þetta er eflaust rétt athugað hjá honum að innan Samfylkingarinnar hugsi þannig. Þar skipti það einhverju máli  að setja plástur á orðstír fullkomlega getulauss stjórnmálamanns. Eins og það komi almannahag eitthvað við. 

Þetta er hefbundin íslensk pólitík. Það sem við erum búin að fá algjört ógeð á. Og nú er kosningabaráttan og profkjörsslagurinn hafinn innan flokkana. Það verður geðslegur leikur þar sem hver otar fram sínum framavonum.

Almannahagur! Biðjið guð fyrir ykkur! Bara framhald af gömlu íslensku refskákspólitíkinni.  

En - í uppsiglingu er stofnun nýrra samtaka sem stefna að því að bjóða fram í öllum kjördæmum fyrir kosningarnar. 

Kannski er enn einhver von fyrir þessa þjóð.

Gömlu andlitin í öllum stjórnmálaflokkum eru hins vegar gjörsamlega vonlaus!

Fólk verður að koma öllum flokkum í skilning um það.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

Eðlilega vaknar sú spurning hvort Björgvin G. Sigurðsson sé með uppsögn sinni sem viðskiptaráðherra að undirbúa framboð í formannsstól Samfylkingarinnar á landsfundi flokksins sem fram fer í marz eða apríl. Hugmyndin sé þá að það líti vel út að hafa "axlað ábyrgð á bankahruninu". En staðreyndin er auðvitað sú að Björgvin hefur engu að tapa með að segja af sér núna, það er hvort sem er búið að gefa út dánarvottorð ríkisstjórnarinnar í síðasta lagi við þingkosningarnar í vor. Það hefði verið talsvert annað ef afsögnin hefði komið til þegar enn var mögulegt að stjórnin sæti út kjörtímabilið til vors 2011. Afsögn nú í nafni ábyrgðar er einfaldlega ekki sérlega sannfærandi.

Hjörtur J. Guðmundsson, 25.1.2009 kl. 13:08

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Hún á samt að reyna að líta út fyrir það. Hún á að gera Björgvin meira sannfærandi í prófkjöri. Styrkja stöðu hans innan flokksins.

Sigurður Þór Guðjónsson, 25.1.2009 kl. 13:32

3 identicon

Þetta er eintóm refskák og leikaraskapur.  Björgvin ætti að fá leikaraverðlaunin.  Þetta er of lítið og of seint.

Ég verð ekki ánægð fyrr en allir hausar ríkisstjórnarinnar hafa fokið - og Yfirkrullhaus Seðlabankans með.  Mér sýnist við þurfa fallöxina á þetta þrásetulið.  Þau eiga öll að hypja sig!

Vg og Framsókn eru engu betri kostir í stöðunni.  Ekkert annað en utanþingsstjórn kemur til greina fram að kosningum.

Og hananú!

Malína (IP-tala skráð) 25.1.2009 kl. 19:47

4 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Mali og Dúlla ættu að taka við stjórinni!

Sigurður Þór Guðjónsson, 25.1.2009 kl. 21:04

5 identicon

Malína (IP-tala skráð) 26.1.2009 kl. 02:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband