Íslandi allt

Ég er algjörlega á móti því að við göngum í Evrópusambandið.

Ég vil að Ísland verði áfram út úr og púkó. 

Íslandi allt!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vertu þá bara púkó kall!

Ég var að enda við að skrá mig hérna:  http://www.sammala.is/

EvrópuMalína (IP-tala skráð) 21.4.2009 kl. 01:54

2 Smámynd: Sigurður Sveinsson

Flottur að venju. Þú ert svo mikill púki í þér að jafnvel verstu árarnir komast ekki í hálfkvisti við þig.

Sigurður Sveinsson, 21.4.2009 kl. 06:17

3 Smámynd: Sigurbjörn Sveinsson

Ég var að fletta Ritgerðarkornum og ræðustúfum e. Jón Helgason í gærkvöldi. Þar er að finna safn pistla fyrir Íslendinga í  Kaupmannahöfn stríðsáranna m.a.  

Það er fátt nýtt undir sólinni.

Sigurbjörn Sveinsson, 21.4.2009 kl. 08:26

4 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Sæll nafni, þú ert oftast (ef ekki alltaf) rödd skynseminnar.

Það er ekkert að því að búa að sínu og leyfa komandi kynslóðum að taka við fiskveiðiauðlindinni sem við fengum í arf frá forfeðrum okkar.

Hafðu það ævinlega sem allra best.

Sigurður Þórðarson, 21.4.2009 kl. 08:42

5 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Sigurður: Svo gætu andstæðingar aðildar hæglegasett saman álíka eða enn stærri nafnalista. Það er nú einu sinni þannig að þjóðin er ekki sammála um þetta mál. Mér sýnist reyndar engar rökræður fara fram um málið, kosti og galla, heldur bara kappræður þar sem menn ota fram sinni skoðun með offorsi.

Sigurður Þór Guðjónsson, 21.4.2009 kl. 09:57

6 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Sæll aftur, mikið rétt hjá þér með nafnalistann. Ég veit ekki hvort sanngjarnt sé að segja að engar rökræður hafi farið fram. En hitt er kannski sanni nær að við sem höfum einhverja skoðun á málinu finnst þeir sem eru á öndverðu meiði halda sig mest við falsrök. Annar spyr í austur og hinn svarar í vestur. Þetta eigum við sameiginlegt.  Dæmi um þetta er t.d. samningar Möltu við ESB sem fylgendur aðildar telja sönnun fyrir því að hægt sé að fá undanþágu frá reglum um sjávarútveg en við hin tökum sama land sem dæmi um að slík undanþága sé einungis tímabundin.

Við Sigurbjörn skiptumst á skoðunum hjá Hlédísi um ESB aðild hann er undantekningin sem sannar þá reglu sem ég nefndi:

http://disdis.blog.is/blog/dis/entry/858716/ 

Sigurður Þórðarson, 22.4.2009 kl. 12:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband