Borat í bíó

Mig langar alveg sjúklega til að sjá Borat í bíó. En ég hef bara engan til að fara með því vinir mínir hafa yfirgefið mig. Ég er svo afskaplega siðavandur að ég verð að hafa einhvern við hliðina á mér til að styrkja mig ef ég skyldi nú fá froðufellandi hneykslunarkast í bíóinu. Mér er sagt að Borat sýni jafnvel á sér  boruna og sé alveg feikilega borubrattur. 

Þetta verð ég endilega að sjá.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta minnir mig á hugmynd sem kunningi minn fékk fyrir nokkrum árum. Vinaþjónustan! Þar sem fólk getur leigt sér vini til akkurat þess að fara með sér í bíó, leikhús osfrv. :)

Davíð Halldór Lúðvíksson (IP-tala skráð) 6.12.2006 kl. 14:49

2 Smámynd: gerður rósa gunnarsdóttir

Hvaða rolugangur er það, að geta ekki farið einn í bíó?! Þú verður bara að læra að kyngja froðunni. Og þá eignastu jafnvel aftur vini þína?

gerður rósa gunnarsdóttir, 6.12.2006 kl. 21:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband