Veðurklisjur í fréttum

Í þessari frétt er sagt frá því að rigning, kuldi og vindur hafi sett svip sinn á Íslendingadaginn i Gimli í Kanada sem var á laugardaginn. Ekki er þó greint frá því hve kuldinn var mikill, vindurinn eða rigningin. En þetta er svo sem í lagi í frétt þó ónákvæmt sé og huglægt fremur en eitthvað sem raunverulega er hægt að átta sig á. 

En þegar því er svo bætt við að veðrið hafi því verið óvenju íslenskt tekur steininn úr. Hvað á slík staðhæfing eiginlega að merkja? Jú, af henni gæti maður helst haldið að algengasta íslenska veðrið sé rigning, kuldi og vindur,  án þess að þau fyrirbrigði séu skýrð nánar, hvað búi  í rauninni að baki þessum orðum.

Hvað veðrið í Gimli varðar á laugardag var hitinn þar 15-18 stig frá kl 10 til kl. 7 um kvöldið en þá kólnaði nokkuð. Þetta er auðvitað í kaldara lagi  eftir árstíma en kemur þó oft fyrir. Það rigndi  nokkuð um kl. 7 um morguninn og aftur í um það bil tvo tíma rétt fyrir hádegi. Annars var þurrt. Vindurinn var norðaustlægur og var svona 4-8 m/s. Daginn eftir var 20 stiga hiti þegar mest var, alveg þurrt og vindurinn náði aldrei 4 m/s. Þetta var ''íslenska'' veðrið. 

Þær eru ósköp þreytandi þessar hugsunarlausu klisjur  í íslenskum fréttum þar sem íslenskt veðurfar er sagt einkennast af kulda, vindi og rigningu, án þess að það sé nokkurn tíma skýrt nánar.  Ég held að fréttir fjölmiðla hér séu yfirleitt traustar og áreiðanlegar - nema þegar kemur að veðri. Það heyrir til algjörra undantekninga að fjölmiðlar segi frá veðri í sambandi við atburði sem eru að gerast, ekki síst á útihátíðum, öðruvísi en éta bara upp veðurhrós heimamanna (sem er hin hliðin á íslensku illvirðaklisjunni), að í  þeirra sveit sé ''alltaf gott veður'' og bongóblíða og   álíka  merkingarleysi í svipuðum dúr. Aldrei neitt þannig að menn verði nokkru nær. Þó þarf lítið til, nefna hitastig  (sem ekki er  mælt í sól), hvort blæs eða er hægviðri og svo skýjafarið og ef rignir. Í einni setningu gætu menn gert öðrum sæmilega grein fyrir raunverulegu veðri á staðnum ef menn létu héraðsveðurskrumið eiga sig.   

Hvað veðurfar hér á landi varðar er það ekki ekki eins slæmt og þessar rok-kulda-og vinda klisjur vilja vera láta eða jafn himneskt og bongóblíðuoflætið. Það er oftast nær alveg skaplegt. Á sumrin er það einmitt oft í stíl við það  sem verið hefur síðustu daga en þá var veðrið  mjög venjulegt miðað við árstíma, hægviðrasamt, sums staðar nokkur rigning, en á fleiri stöðum þurrt og  allvíða sól og hitinn alveg þokkalegur til útiveru að degi til. 

Þetta er algengasta íslenska sumarveðrið. Ekki eitthvað grenjandi illviðri með vindi, kulda og rigningu. 

En veðrið á Íslandi er auðvitað margbreytilegt - alveg eins og í Kanada eins og vel sést á fréttinni.

 

 

 

  


mbl.is Íslenskt veður á Íslendingadeginum í Gimli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: María Kristjánsdóttir

Veðrið er nú ekki margbreytilegt þessa dagana í Reykjavík! Annars er það almennt að klisjur þýddar frá ómerkilegum erlendum fréttaveitum eru oftast ríkjandi í erlendum fréttum í íslenskum fjölmiðlum-bæði um veðrið og annað.

María Kristjánsdóttir, 3.8.2009 kl. 13:48

2 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Ég má til með að vitna í það sem sagt var á Rás2 áðan. Þar var verið að telja upp hitastig á nokkrum stöðum á landinu. Útvarpsmaðurinn las upp 16 stiga hita á Kirkjubæjarklaustri, 14 í Reykjavík og 11 stiga hita á Akureyri og bætti við að það hlyti að vera mælingarskekkja því það væri yfirleitt heitast á Akureyri. Sjálfsagt var þetta sagt í hálfkæringi, en er ekki kominn tími til að segja bara eins og er um kuldann á Akureyri, eða þykir það ekki við hæfi? Það er líka eins og það megi ekki hrósa veðrinu í Reykjavík, þar sem helst á alltaf að vera rok og rigning!

Emil Hannes Valgeirsson, 3.8.2009 kl. 14:04

3 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

María: Ef þú tekur eina dagsetningu og skoðar veðrið þann dag t.d. í 30 ár sérðu að veðrið er margbreytilegt, en oftast alveg sæmilegt. Emil: Kannski var þetta kaldhæðni hjá fréttamanninum en þetta er auðvitað bara þjóðsaga um eilífa veðurblíðu á Akureyri. Þar getur komið verulega gott veður í sunnanátt eins og annars staðar á norðurlandi en ekki er alltaf sunnanátt. Annað sem hefur verið að gerast síðustu sumur er það að hlýjasta og besta veðrið sem kemur á hverju sumri er ekki lengur endilega fyrir norðan eða austan heldur á suður-og vesturlandi. Mestu hitar mörg síðustu ár hafa verið á suður-eða vesturlandi en ekki annars staðar. Rakin hlýindi fyrir norðan  með rigningu syðra og sunnan er hreinlega orðin sjaldgæfari en hún var fyrir nokkrum áratugum. Það er líka staðreynd samkvæmt mælingum að þrátt fyrir meiri úrkomu sunnanlands er þar meira sólskin á sumrin en fyrir norðan. Og Reykjavík er sólríkasti staðurinn þar sem sól hefur verið mæld!

Sigurður Þór Guðjónsson, 3.8.2009 kl. 16:18

4 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Það skyldi þó ekki vera að þetta global warming eða hvað sem þetta er skili sér betur hér sunnan og vestanlands en fyrir norðan og austan. Það komu allavega allnokkur sumur á kalda tímabilinu 1965-1990 sem voru miklu betri fyrir norðaustan heldur en hér. Kannski gengur þetta yfir í sveiflum þannig að þeir fái sína „bongóblíðu“ aftur.

Emil Hannes Valgeirsson, 3.8.2009 kl. 17:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband