Lögreglan og niðurskurðurinn

Allir vita að niðurskurður er óhjákvæmilegur hvar sem litið er.

Heilbrigðis og menntakerfið verður illa úti. Ekki síður velferðarkerfið. Þrengt verður að öldruðum og öryrkjum.

Og lögreglunni!

Allir sem verða fyrir niðurskurði bera sig auðvitað aumlega og segja jafnvel að viðkomandi starfsemi muni leggjast af eða svo gott sem. En við þetta verða menn samt að búa og gera það besta úr öllu. Og menn láta sér það lynda.

Nema lögreglan.

Það hefur ekki linnt látum í  fjölmiðlum fyrir aðgangahörku lögreglumanna til að vekja athygli á fjárþörf sinni og það megi alls ekki skera þar neitt niður, frekar þyrfti meiri peninga.  En það gætu allir hinir líka sagt.

En þeir fá ekki önnur eins tækifæri til að ota fram sínum tota, nú síðast í fréttum  Ríkisútvarpsins. Það er engu líkara en lögreglan hafi tekið við yfirráðum fjölmiðla og noti þá  miskunnarlaust til að reka áróður fyrir sjálfri sér. 

Ekki síst er Morgunblaðið undirlagt af þessum grátkór lögreglumanna og í dag skrifar það leiðara um málið og leggst á sveif með þeim. En ekki hafa þeir skrifað leiðara um það að þrengt er að svo mörgu öðru.

Það er líka merkilegt að aldrei eru fullyrðingar lögreglumanna um hvað muni gerast ef skorið verður niður dregnar í efa eða skoðaðar með gagnrýnu hugarfari af fjölmiðlum. Það er eins og allt sem lögreglumenn segja sé óumdeilanlegur sannleikur.

Lögreglunni er ekkert meiri vorkunn að skera niður en öðrum mikilvægum stofnunum.

Viðauki: Vek athygli á þessari frétt Maður spyr sig hvort þessar aðferðir lögreglunnar hafi virkilega verið nauðsynlegar en þær voru sagðar átakanlegar af sjónarvotti. Er það til svona verka sem lögreglan heimtar meiri peninga?

Bye the way: Þetta er frétt sem Morgunblaðið myndi aldrei birta.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Finnur Bárðarson

Mér skilst að yfirbyggingin sé alveg hrikaleg. Svo spyr ég mig til hvers er þetta ríkislögreglustjóraembætti ?

Finnur Bárðarson, 7.8.2009 kl. 17:05

2 Smámynd: Þorri Almennings Forni Loftski

Þetta er alveg satt og er búið að standa yfir síðan vel fyrir Hrun. Í morgunþætti Láru allstaðar á Rás 2 (sem ég óvart hlustaði eitthvað á því RUV er búið að leggja niður morunútvarp fyrir fullorðna) um daginn var þessi Snorri lögrugluformaður enn einu sinni að væla og fékk góðan tíma. Spyrjendur hlýddu á og endurrómuðu gagnrýnislaust. Hræðslupólitíkin virðist virka.

Síðan tók við einhliða umfjöllun í öllum fréttatímum RUV og víðar allan þann daginn.

Um Morgunblaðið þarf vart að fjalla um. Það er fyrir löngu orðið aðalmálgagn valdstjórnarinnar, einhverskonar framlenging á PR stofu lögruguglunnar. Á kostnað skattgreiðinda eins og kunnugt er. Væri því fé ef til vill betur varið í afbrotavarnir og löggæslu í þágu almennings? Í stað þess að siga sérþjálfuðum (þjálfun og búnaður kostar sitt) hrottum á börnin okkar?

Þorri Almennings Forni Loftski, 9.8.2009 kl. 19:18

3 identicon

Og tókuð þið líka eftir hvað fjárglæfra-fyrirtækið var fljótt að siga lögreglu á vesalings manninn.  Mann, sem kannski skildi ekkert hvað hann hafði gert rangt og gat ekki lesið ÞJÓFAskiltin: ÞJÓFNAÐUR ER ALLTAF KÆRÐUR TIL LÖGREGLU.  Þeim ferst að elta fólk og úthrópa.

Jóhann J. (IP-tala skráð) 10.8.2009 kl. 21:03

4 identicon

Með fullri virðingu fyrir "Strandamanni" þá veit lögregluvarðstjórinn á svæðinu það best sjálfur hvaða hættur steðja að honum. Þó að samfélagið þar sé án efa huggulegt á yfirborðinu þá leynast þar líka dópistar og óútreiknanlegt fólk og það er óviðunandi að lögreglumenn séu einir á vakt.

Ég skil ekki alveg afhverju sumu fólki finnst það sjálfsagt mál að lögreglumenn komi ekki heilir heim úr sinni vinnu eins og aðrir.

Bjarki (IP-tala skráð) 12.8.2009 kl. 09:46

5 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Mér finnst reyndar líka að það sé ekki forsvaranlegt neins staðar að lögreglumaður sé einn á vakt.

Sigurður Þór Guðjónsson, 12.8.2009 kl. 12:19

6 identicon

Ég er alveg sammála Bjarka.  Og mín athugsemd að ofan beindist ekki að lögreglu, heldur ofannefndu fyrirtæki.   Lögreglumenn ættu alls ekki að vera einir á vakt.   Það er firra að þeir vinni undir slíkri áhættu.   

Jóhann J. (IP-tala skráð) 12.8.2009 kl. 17:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband