Undarlegar fréttir af veðri

Rétt einu sinnu birtist í fjölmiðli undarlegar fréttir af veðri sem hreinlega er ekki hægt að taka alvarlega.

Hríðarbylurinn mikli á austursturströnd Bandaríkjanna skilaði snjódýpt í Central Park i New York upp á 63 cm. Mælingar eru frá 1869. Þetta er meiri snjódýpt en nokkru sinni hefur mælst í Reykajvík í þau um það bil 90 ár sem mælt hefur verið. Aldrei hefur þar mælst meira en 57 cm og aðeins einu sinni yfir 50 cm. Mesta snjódýpt í Reykjavík eftir mikla hriðarbylji er rúmir 40 cm. Það gerist sárasjaldan og engan vengin í "venjulegum snjókomum" en í fréttinni er sagt að þessi snjókoma vestra sé svona eins og venjuleg íslensk snjókoma. Og það er af og frá að slíkt sé "algengt veður í Vesturbæ Reykjavíkur" eins og líka segir í fréttinni.

Þegar óvenjuleg veður koma erlendis tala islenskir fjölmiðlar gjarna við einhverja Íslendinga sem staddir eru á svæðinu sem oft koma með álíka steypu og í þessari frétt. Og steypunni er svo slegið upp í fyrirsögn eins og hún sé óefaður sannleikur.

Afhverju taka fjölmiðlar ekki upp áreiðanlegar fréttir um svona veður frá bandarískum fréttamiðlum í stað þess að birta tóma dellu eftir einhverjum sem greinilega hafa engan sans fyrir veðri, hvorki í Ameríku eða Vesturbæ Reykjavíkur?

Þetta gerist varla þegar um annars konar fréttir er að ræða en veður. En þá er allt boðlegt.

Hér er hægt að lesa ýmislegt um þetta óveður á austurströnd Bandaríkjanna.


mbl.is Eins og meðalveður í Vesturbænum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Sæll Sigurður Þór.

Ég veit ekki hvort þetta skýri málið eitthvað. Fréttaflutningur er víða undarlegur. 

The Washington Post:

Washington, D.C., snowfall total called into question after improper measurement

https://www.washingtonpost.com/news/capital-weather-gang/wp/2016/01/23/washington-d-c-snowfall-total-called-into-question-after-improper-measurement/

Með kveðju,

Ágúst H Bjarnason, 24.1.2016 kl. 23:20

2 Smámynd: Trausti Jónsson

Það eru flestar fréttir í fjölmiðlum einskonar della ef út í það er farið - eiginlega allar. Reyndar hafa mér alltaf þótt snjómæliaðferðir bandaríkjamanna dálítið undarlegar. T.d. kemur nú fram í gagnrýnistón í fréttum að snjómælibretti hafi ekki verið hreinsuð nægilega oft - snjórinn hafi því fengist að þjappast - 

Trausti Jónsson, 25.1.2016 kl. 00:49

3 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Í einni fréttinni sagði að stórborgir hefðu verið "mannlausar". Hið rétta var að allir voru heima hjá sér en ekki utan dyra.

Íslenskan á þetta fína orð yfir svona veður: Stórhríð. Aldrei notað í þessum fréttum.

Ómar Ragnarsson, 25.1.2016 kl. 01:30

4 identicon

Svo er það þessi frétt http://www.mbl.is/frettir/innlent/2016/01/25/nogu_ostodugt_fyrir_eldingar/. Þar er vitnað í HUGLEIÐINGAR veðurfræðings en hvergi getið um eða frá hvaða veðurfræðingi hugleiðingarnar eru komnar. Sem sagt stolið og stílfært.

Margrét (IP-tala skráð) 25.1.2016 kl. 08:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband