Himnaríki einkavætt

Það er ekki orðið lengur líft í landinu fyrir endalausu tali, bæði í fjölmiðlum og annars staðar, um fjármál og viðskipti. Ef eitthvað er leiðinlegt þá er það þetta. En mörgum finnst samt gaman af peningunum sjálfum og helst miklu af þeim. Þess vegna hefur þessi ótrúlega breyting orðið á síðustu árum á því hvað fjármál eru mikið í umræðunni. Það gerðist varla áður fyrr nema eitthvað alveg sérstakt væri að gerast.

Umskipti þessi endurspeglar breytta hugsun. Áður þótti gott að eiga soldið af peningum til að hægt væri að gera eitthvað við þá.

Núna er bara hugsað um peningana þeirra eigin vegna því þeir eru orðnir svo miklir að ekkert er hægt að gera lengur við þá - nema auðvitað að hjálpa fátækum Afríkubúum í hugsjónamóði auðhygjunnar.  

Þetta á líklega eftir að vernsa mikið á næstu árum. Sem betur fer verð ég þá steindauður og farinn beina leið til helvítis því þá  verður búið að einkavæða himnaríki sem aðeins verður opið fyrir þá sem hafa notið  sérkjara við kaup á aflátsbréfum til sáluhjálpar.

 

 

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: María Kristjánsdóttir

Það hefur líka verið fullyrt í mín eyru að það sé skemmtilegra í neðra. Hittumst heil þar! Kannski hún Skýla mín taki líka á móti mér sem hvarf frá mér forðum. Kettir eru vita auralausar skepnur er það ekki?

María Kristjánsdóttir, 9.10.2007 kl. 19:30

2 Smámynd: Þorkell Sigurjónsson

Enn og aftur er ég þér sammála frændi.

Þorkell Sigurjónsson, 9.10.2007 kl. 20:05

3 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Var það einhver úr neðra sem fullyrti þetta við þig María? Ætli ég fái ekki bara sérholu fyrir neðan Húsavíkur-Jón.

Sigurður Þór Guðjónsson, 9.10.2007 kl. 20:15

4 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Einhvers staðar sá ég brandara um nunnu sem óvart og fyrir misskilning lenti í neðra. Hún nauðaði í Lykla Pétri að kippa þessu í liðinn en það dróst á langinn. Loks kemur hún þeim skilaboðum til Pésa að hún þori bara alls ekki að vera þarna lengur fyrir sitt litla líf því næsta kvöld eigi að halda mikla svall og  gleði- orgíu og hann verði að drífa í því að bjarga henni úr þessu helvíti.
Eitthvað  var  Lykla  Pétur  busy  en  hafði samband við  nunnuna  daginn  eftir  orgíuna  miklu og sagðist vera búinn að redda því að hún kæmist upp. Já það, sagði nunnan, nei blessaður vertu, ég vil óð vera hérna áfram.

Svava frá Strandbergi , 9.10.2007 kl. 22:13

5 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Einar: Það er ekki einu sinni friður í helvíti! Helvítis vesen er þetta!

Sigurður Þór Guðjónsson, 10.10.2007 kl. 00:03

6 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég veit nú ekki betur en boð hafi útgengið nýlega frá sjálfum páfanum um það að limbóið hafi verið lagt niður. Það fýkur í öll skjól.

Sigurður Þór Guðjónsson, 10.10.2007 kl. 10:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband