Skammdegið

Nú er skammdegið skollið á samkvæmt þeirri skýrgreiningu sem ég nota. Hún er sú að skammdegi sé þegar sólin er á lofti minna en einn þriðja hluta þess tíma sem hún er lengst á lofti. Þetta gerðist í dag og skammdegið stendur eftir þessum skilningi út janúar.

Mér finnst það öllu skipta með skammdegið að veðrið sé skaplegt, milt og snjólítið og helst snjólaust. Þá er svo miklu auðveldara að vera úti og komast leiðar sinnar.

Andstyggilegast er skammdegið þegar fyrst snjóar mikið en leggst  síðan í langvinnar norðanáttir með miklum frostum og marga vikna gömlum, hörðum og óhreinum njó.

Skemmdegið finnst mér blátt áfram fljótara að liða þegar hlýtt er og snjólaust en þegar kalt er og snjóþungt.

Sumir segja að það sé bjartara yfir þegar snjór er en það munar engu og  þægilegheitin í samgöngum vegur upp á móti því ef eitthvað er og vel það. 

Myrkur og mildur desember með 10 til 11 stiga hita marga daga eru skemmtilegastir desembemánaða og minna mig á þá gömlu daga löngu fyrir gróðurhúsaáhrifin þegar alltaf var gott veður og engum datt skíðaferðir í hug!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Tarna var góð skilgreining á skammdeginu. Undanfarin ár hefur maður verið að spyrjast fyrir um skilgreiningu á skammdegi og það hefur satt best að segja leitt það í ljós að þeir landar vorir sem eru undir fimmtugu hafa afskaplega óljósa tilfinningu fyrir því hvað sé skammdegi yfirleitt. Af lestri eldri heimilda er þó ljóst að formæður okkar og -feður hafa skilgreint þetta nokkuð þröngt og miklu nær þessu sem þú, Sigurður, nefnir. Einhversstaðar rakst ég á frásögn sem ég túlkaði sem svo að "svartasta skammdegið" væru Ýlir og Mörsugur, þ.e. frá því um 26. nóvember til þorrabyrjunar. Í samtali við dr. Þorstein Sæmundsson kom fram að þetta lægi nærri því að vera sá tími, sem sólin nær ekki 6° hæð yfir sjónbaug um sunnanvert landið í hádegisstað. En ég verð var við að ef maður fær yngra fólk en okkur á annað borð til þess að velta málinu fyrir sér, þá nefnir það að skammdegi hljóti að vera tíminn frá jafndægri að hausti til jafndægurs að vori. Af skoðun eldri heimilda finnst manni að svo hafi ekki verið áður fyrr, heldur eins og fyrr segir, hafi þetta verið túlkað þrengra. En sú skilgreining sem þú notar, er miklu nær því sem ég hef tilfinningu fyrir að allavega mínir foreldrar og þeirra foreldrar hafi notað. Góðar kveðjur og þakklæti fyrir margháttaðan fróðleik sem þú hefur safnað saman og gert aðgengilegan.

Ellismellurinn (IP-tala skráð) 11.11.2007 kl. 20:11

2 Smámynd: Þorkell Sigurjónsson

Sæll Sigurður. . Sé að  frænka er komin í einangrun hvað bloggið hennar varðar, skyldi eitthvað vera til ráða?

Þorkell Sigurjónsson, 11.11.2007 kl. 20:19

3 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ellismellur: Nú á dögum er fólk strax eftir verslunarmannahelgi farið að tala um að nú fari skamdegið að koma!

Sigurður Þór Guðjónsson, 11.11.2007 kl. 21:02

4 Smámynd: Fríða Eyland

Alveg er ég sammála þér 10-15°C+ það er miklu betra en snjórinn, slabbið og kuldinn.

Fríða Eyland, 11.11.2007 kl. 22:14

5 identicon

Svona erum við nú misjöfn. Mér líður best þegar mjöllin ræður ríkjum. Snjór eða hvað fólk vill kalla fyrirbærið. Hún nefnilega vísar okkur svo oft veginn þar sem við göngum um á annars sálarmyrkum dögum.  Og svo er meiri sjens á  að Sólin sjáist. Hafðu það sem best.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 13.11.2007 kl. 03:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband