Hversdsagsleikinn

Það er undarlegt að mér finnst alltaf svo gaman fyrstu daganna eftir áramótin en einkanlega fyrstu dagana eftir þrettándann. En þó því aðeins að snjólaust sé og sæmilega lyngt veður.

Þetta hefur byrjað þannig að ég hef einhvern tíma á þessum dögum verið á rölti um bæinn einmitt í svipuðum aðstæðum og eru í dag, kyrru veðri og snjólausu - og svo aftur seinna og enn þá aftur. Og þá hefur smám saman skapast einhver stemmning, einhverjar kenndir og minningar sem síðan hafa loðað við þetta. 

Mest finnst mér gaman eftir þrettándann þegar búið er að taka niður jólaskreytingarnar og hversdagsleikinn er orðinn alsráðandi. Hann á vel við mig. Það venjulega. Það fábreytta. Það kyrrláta og hlédræga.

Sá sem ekki kann að meta hversdagsleikann kann ekki að meta lífið sjálft.

Þetta er kannski ófrumleg og hversdagsleg staðhæfing er hún er samt alltaf jafn sönn.   


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgeir Kristinn Lárusson

Satt mælir þú, Sigurður, í logni hversdagsins. í hönd fara venjulegir dagar, en það styttist í þorrablótin og lætin kringum þau. Svo eru Páskar óvenju snemma á ferðinni þetta árið. Páskadag ber uppá 23.mars.

Ásgeir Kristinn Lárusson, 5.1.2008 kl. 11:34

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Leiðinlegt þegar páskar eru svona snemma, fyrst og fremst vegna þess að þá er varla von á vorveðri.

Sigurður Þór Guðjónsson, 5.1.2008 kl. 11:38

3 Smámynd: Jón Halldór Guðmundsson

Þetta er alveg rétt. Þessi tími er alveg dásamlegur. Gráminn sem í hönd er og hvað allt er eitthvað eðlilegt og afslappað. Fólk hefur góðan tíma og spjallar um veðrið, hrútspunga og slyddu.

Önnur árstíð vekur svipaðar kenndir, en það er haustið. Það er líka svona afslappaður tími og fallegur.

Þetta er einhevrn veginn svo rómantísk og afslappað ástand.

Skrýtið samt. Ég hef aldrei pælt í þessu svona áður. 

Jón Halldór Guðmundsson, 5.1.2008 kl. 15:12

4 identicon

Eru allir ekki glaðir að jólaruglið er búið, reyndar margir núna sem eru í stressi yfir jólareikningum... en svo vitlaus var ég ekki að eyða svo miklu að maður yrði á kúpunni þar til næstu jól .. :)
Ég kann ágætlega við hversdagsleikann að öllu jöfnu

DoctorE (IP-tala skráð) 5.1.2008 kl. 18:49

5 Smámynd: Sveinn Atli Gunnarsson

"Sá sem ekki kann að meta hversdagsleikann kann ekki að meta lífið sjálft."

Vel orðað, enda ekkert vit í öðru, lífið er yfir 90 % hversdagur.

Sveinn Atli Gunnarsson, 5.1.2008 kl. 18:55

6 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Tek undir orð ykkar sem hér skrifið og sérstaklega það sem Svatli endurtók úr skrifum Siðurðar.  Og líka það að þetta er indælt svo framarlega sem ekki fer að kyngja niður snjó, sem virðist ekki útlit fyrir næstu daga.

Greta Björg Úlfsdóttir, 5.1.2008 kl. 21:22

7 Smámynd: María Kristjánsdóttir

mæltu manna heilastur

María Kristjánsdóttir, 6.1.2008 kl. 00:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband