Séð og heyrt á tónleikum

Í kvöld dreif ég mig á tónleika Kammermúsikklúbbsins í Bústaðarkirkju. Þar lék Víkingur Heiðar stórséni og nokkrir aðrir hljóðfæraleikarar kvintetta eftir Schumann og Brahms. Báðir eru þeir brjálæðislega góð músik.  Enda varð Schumann snarbrjálaður áður en yfir lauk.

Alltaf er verið að rómantísera þetta hjónaband hans með henni Klöru. Það er engu líkara en menn haldi að hún og ástin hafi gert hann að góðu tónskáldi. En hvað þá með Brahms ræfilinn? Hann giftist aldrei en samkvæmt áreiðanlegum heimildum lá hann flestar nætur með óhamingjusömum hórum í Vínarborg.

Hvað gerir menn að góðu tónskáldi? Ósköp einfalt: Upprunalegir hæfileikar og góð tónmenntun. Lán manna eða ólán í lífinu virðist þar litlu máli skipta. Ekki heldur guð. Haminguhrólfurinn Wagner var hvorki  meira né minna tónskáld en harmkvælamaðurinn Beethoven og hinn sanntrúaði Bach var svo sem ekkert meiri en vantrúarseggurinn Schubert, að minnsta kosti ef miðað er við aldur og fyrri störf, en Bach varð maður gamall en Schubert náði varla fullorðinsaldri. 

Slangur af stórmennum var á tónleikunum. Þar var framsóknarjöfurinn Steingrímur Hermannsson, skáldmennið Thor Vilhjálmsson, ísmaðurinn Þór Jakobsson, upptyppingurinn Páll Einarsson, besservisserinn Sigurður Líndal, orkuboltinn Þorkell Helgason og hans ekta sembalína Helga Ingólfsdóttir, biskupssonurinn Þorkell Sigurbjörnsson og guðspekingurinn og píanistinn Halldór Haraldsson.

Já, og svo  var ég þarna í eigin persónu!

Slatti af smámennum var líka á staðnum. En ég nefni engin nöfn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Mali hefur ekki hundsvit á bloggi!

Lára Hanna Einarsdóttir, 13.1.2008 kl. 23:54

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Mali veit allt!

Sigurður Þór Guðjónsson, 14.1.2008 kl. 00:06

3 Smámynd: Ásgeir Kristinn Lárusson

Hvað gerir mann að góðu tónskáldi?  Umhugsunarvert...

Ásgeir Kristinn Lárusson, 14.1.2008 kl. 00:14

4 identicon

Sigurður kemst nokkuð nærri  því,hvað gerir menn að góðu tónskáldi.Hann segir að vísu eigi menn helst að vera BRJÁLAÐIR EN ÉG HALLAST AÐ ÞVÍ AÐ VERA Á  nano LÍNUNNI.   BRJÁLÆÐI ekki BRJÁLÆÐI. Svona sviðað og segir í Blueslaginu.                                     There is a thin line betveen LOVE and HATE. 

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 14.1.2008 kl. 00:46

5 Smámynd: Ásgeir Kristinn Lárusson

Þetta blogg hangir á bláþræði...

Ásgeir Kristinn Lárusson, 14.1.2008 kl. 10:11

6 Smámynd: Bergþóra Jónsdóttir

......en hvernig var?????

Bergþóra Jónsdóttir, 14.1.2008 kl. 14:20

7 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Víkingur Heiðar var yfirgnæfandi góður en því miður voru strengirnir  oft ekki alveg hreinir. Það var hins vegar líf og  fjör í túlkunini á köflum sem líkast til ber að skrifa mest á Víking Heiðar. Hann var augljóslega fyrirliðinn.

Sigurður Þór Guðjónsson, 14.1.2008 kl. 14:56

8 Smámynd: María Kristjánsdóttir

Jæja, þá er þetta allt komið á hreint. Mali getur nú ekki verið svo mannfjandsamlegur að hann vilji hindra það að við fáum að njóta lýsinga þinna.

María Kristjánsdóttir, 14.1.2008 kl. 17:14

9 Smámynd: Guðrún Markúsdóttir

Brahms! Var hann ekki líka með Klöru?

Mali þarf bara að prófa að blogga, þá hættir hann að vera svona snobbaður.

Guðrún Markúsdóttir, 14.1.2008 kl. 21:47

10 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Það er ekki vitað hvort Brahms var með Klöru en þau voru vinir alla ævi. Mali lítur á sig sem menningarvita og aðalskött. 

Sigurður Þór Guðjónsson, 14.1.2008 kl. 22:21

11 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Nei Nimbus minn góður, þú sleppur ekki svona billlega að þykjast taka mark á mér sem er ekki marktæk og hætta að blogga. þú veist það alveg sjálfur að mér finnst þú besti bloggarinn. Alltaf kemurðu mér allavega í gott skap með blogginu þínu og það þarf mikið til þess.

Svava frá Strandbergi , 15.1.2008 kl. 15:12

12 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Þó ég sé ekki marktæk yfirleitt er samt að marka það þegar ég segi að þú sért skemmtilegasti bloggarinn.

Svava frá Strandbergi , 15.1.2008 kl. 15:18

13 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég tek nú ekki mark á svona!

Sigurður Þór Guðjónsson, 15.1.2008 kl. 16:55

14 Smámynd: Svava frá Strandbergi

OG ÞAÐ VAR MARK!!!

Svava frá Strandbergi , 15.1.2008 kl. 17:28

15 Smámynd: Ólafur Þórðarson

Er Brahms tónlist ekki bara óttalegt mjálm?

Ólafur Þórðarson, 16.1.2008 kl. 03:56

16 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Það hefur lengi verið vinsælt að vera á móti Brahms. Halldór Laxness gat t.d. ekki þolað hann. Ég held þetta eigi rætur að rekja til þess stríðs sem var á sínum tíma milli fylgismanna Wagners og Brahms. Eins og allir listamenn á Brahms sínar veikur hliðar. En Brahms var svo gott tónskáld að enginn músikalskur maður getur annað en þótt hann góður þegar hann er bestur - nema hann hafi tileinkað sér fordóma eða meinlokur. Brahms er í það minnsta miljón sinnum betri en þessi Enimen eða hvurn andskotann hann heitir. Ég þoli nú ekki þann mann enda aldrei heyrt með honum eitt einasta lag - ef lag skyldi kalla!  

Sigurður Þór Guðjónsson, 16.1.2008 kl. 11:12

17 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Mali er krabbi og er með rísandi sporðdreka. Hann hefur vit á öllu og getur stungið óþyrmilega þá sem halda að þeir hafi vit á öllu.   

Sigurður Þór Guðjónsson, 16.1.2008 kl. 16:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband