Verður maíhitametið slegið á landinu?

Samkvæmt veðurspá er gert ráð fyrir "allt að 25 stiga hita á Austurlandi". Í fréttinni, sem hér er vísað til og er skelfilega ónákvæm og ómerkileg, er sagt að það sé með ólíkindum. Það er þó ekki ólíkindalegra en svo að slíkur hiti hefur einmitt mælst á austurlandi í maí 1991 og 1992 og á Akureyri 1980. Mjög raunverulegt. Um þetta má lesa hér.

Hitt er annað mál að þegar svona hlýtt loft er yfir landinu og gert er ráð fyrir 25 stiga hita má alveg búast við nýju hitameti, hitinn geti t.d. farið á einhverjum stað í 26 stig, en metið er 25,6 stig á Vopnafirði frá 1992.  

Þetta er reyndar leiðinlegasta tegund af hitabylgju fyrir höfuðborgarbúa. Þar verður þungbúið og rigning og hámarkshiti ekki mikið yfir tíu stig nema kannski á miðvikudag og fimmtudag ef allt gengur vel. Hins vegar verður næturhitinn tiltölulega hár og þar með meðalhitinn og ætti 8 stiga  meðalhita mánaðarins að vera borgið ef ekki kólnar niður úr öllu valdi á síðustu dögum mánaðarins.  

Annars er dálítill munur á því hitastigi sem spáð er á hlýjustu svæðunum. Á veðursíðu Morgunblaðins og spáritum á vef Veðurstofunnar er gert ráð fyrir ívið meiri hita heldur en á hitaspánum á kortunum

Ég hallast að lægri tölunum og býst ekki við hitameti en myndi fagna því ef það kemur.


mbl.is Næstum óraunveruleg veðurspá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Jæja, nú er ljóst að þú varst ekki sannspár um júrólagið sbr. þessa yfirlýsingu í síðustu færslu: "This is my life lyppast heim með skottið milli fótanna strax eftir fyrstu lotu."

En það, að vera ekki sannspár um júró þýðir nú aldeilis ekki að þú getir ekki verið sannspár um veðrið - kannski þvert á móti. Ég tek undir með þér að þetta væri leiðinleg tegund hitabylgju fyrir höfuðborg og nágrenni, ég vil hafa bjart - en myndi þessi bylgja ekki bjarga ósk okkar um hitamet í maí?

Lára Hanna Einarsdóttir, 23.5.2008 kl. 16:56

2 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Heyrðu, ég var að sjá mjög trúverðuga skýringu á þessu hjá Brjáni Bergmálstíðindum - hér!

Lára Hanna Einarsdóttir, 23.5.2008 kl. 16:59

3 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Frómt frá sagt hef ég lítið gaman af svona veðurgríni eins og þú ert að vísa á. Menn mega alveg tala skynsamlega um veðrið. Það hefur enginn gert af þeim sem vísa til þessarar fréttar á blogginu.

Sigurður Þór Guðjónsson, 23.5.2008 kl. 17:29

4 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Jú, þú.    En veðrið er ekkert hafið yfir grín þótt það sé hátt uppi og tölur við efri mörk.

Lára Hanna Einarsdóttir, 23.5.2008 kl. 17:31

5 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Þegar menn eru bara með hótfyndni og svoleiðis þegar miklir veðuratburðir gerast finnst mér það ekki áhugavert. Auðvitað er allt í lagi að gera grín að  veðri en þegar ÖLL umræðan er á þeim nótum eða álíka finnst mér það ekki skemmtilegt. Það er auðvitað til fólk sem ber ágætt skynbragð á veður - en það fólk bloggar ekki!

Sigurður Þór Guðjónsson, 23.5.2008 kl. 17:38

6 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Meðal annara orða: Að þetta viðbjóðslega lag með þessum subbulegu flytjendum skuli hafa komist áfram í júróvisjón sýnir aðeins að hún er fyrir utan allt velsæmi í lagkúru. Anna Karen, baulaðu nú mér til samlæts ef þú ert einhvers staðar á lífi!

Sigurður Þór Guðjónsson, 23.5.2008 kl. 20:05

7 Smámynd: Einar Sveinbjörnsson

Er þér sammála um það að hlýndin í kortunum nú skortir þá "dýpt og fágun" sem var uppi t.d. 1987.  Það vantar nú dálítið upp á að loftmassahitann, þó svo að aðrir þættir séu hagstæðir Austfirðingum s.s. ákveðin SV-átt og gufunarvarmi (hnjúkaþeyr) vegna rigningarsudda suðvestan og vestanlands.

Bendi annars á frekari útleggingar í atugasemd við samantektina um maíhitabylgjur hér aftar (20.maí)

Kveðja

ESv 

Einar Sveinbjörnsson, 24.5.2008 kl. 00:06

8 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Já, þetta er bara ekki nógu síviliseruð bylgja sem er að koma!  

Sigurður Þór Guðjónsson, 24.5.2008 kl. 00:32

9 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Mér finnst þetta fín speki! Sem betur fer eru ekki líkur á sólríkum maí það sem eftir er í Reykjavík!

Sigurður Þór Guðjónsson, 24.5.2008 kl. 00:41

10 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Mikið er gaman að heyra talað um veðrið af dýpt, fágun og sívílíseringu. Sem veðurfræðiaðdáanda frá unga aldri gleður það mína gömlu sál.

Lára Hanna Einarsdóttir, 24.5.2008 kl. 01:27

11 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Það er nú líkast til, Lára mín!

Sigurður Þór Guðjónsson, 25.5.2008 kl. 14:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband