Klukkufærslan á Seyðisfirði

Seyðfirðingar vilja endilega flýta klukkunni á sautjánda júní. Þeir vilja fá að njóta sólarinnar klukkustund lengur, segja þeir, en hún fer á bak við fjöllin klukkan sjö á kvöldin. Þá fáu daga sem hún skín.

Það er svona að vera í skjóli hárra fjalla. Verst að skuli ekki vera hægt að flytja þau eftir þörfum.

Varla er þetta eini staðurinn á landinu þar sem fjöll eru að flækjast fyrir sólinni. Getur þá ekki verið að fjöldi annarra staða vilji fara að hringla með klukkuna, sumir flýta en aðrir jafnvel seinka?

Nú er það á flestra vitorði - en sumir virðast semt ekki vita það - að við erum á vitlausum tíma nú þegar, klukkustund á undan sólartíma frá 1968. Það verða þá tveir tímar á undan á Seyðisfirði. Afleiðingin verður meðal annars sú að besti tími dagsins helst ekki í hendur við notadrýgsta sólskinið. Það verður langt liðið á daginn þegar sólin fer að ná sér verulega á strik og lofthitinn þá í kjölfarið. Nú þegar er sólarhádegi á austfjörðum fyrr eftir klukkunni en annars staðar á landinu.   

Þessi hugmynd er svo mikil vitleysa að maður gæti haldið að hún væri brandari. En Seyðfirðingum er víst fúlasta alvara og ætla að halda borgarafund um málið. Bæjarstjórinn á Seyðisfirði segist ekki halda að þetta muni skapa nokkur vandræði. Maður skyldi þó halda að það vísi einmitt á vesen, ekki síst t.d. fyrir útlenda ferðamenn, að hafa tvö tímabelti í jafn litlu landi og Íslandi. Menn verða að breyta klukkunni þegar þeir fara frá Egilsstöðum og Neskaupstað til Seyðisfjarðar!

Og  kannski verður þessi della að eins konar faraldri eins og margar mjög heimskulegar hugmyndir hafa tilhneigingu til að verða, - því vitlausari því vinsælli - að úti um allar koppagrundir fari  menn  að heimta að flýta klukkunni í sinni sveit á sumrin. Kannski höfum við þá ekki aðeins tímana tvenna á landinu heldur tímana marga. 

Ég held annars að klukkumálin séu á forræði ríkisvaldsins en ekki sveitarfélaga. Þau geta ekki breytt klukkunni upp á sitt einsdæmi. Það munu stjórnvöld ekki taka í mál. Ég vona að minnsta kosti að stjórnsýslan sé ekki orðin svo kolrugluð. Sá ágæti maður Vilhjálmur Egilsson hafði ekki erindi sem erfiði með margítrekuðum tillögunum sínum á þingi með að flýta klukkunni.  

Best væri auðvitað að við værum alltaf á því sem næst réttum sólartíma og seinkuðum klukkunni í eitt skipti fyrir öll. Klukkan hefur nefnilega áhrif á okkar náttúrlegu lífsklukku. Okkur líður best þegar hún er  sem næst eðlilegum sólargangi. Ef klukkan er það ekki er hætt við að menn ruglist alvarlega í ríminu.

Og nú er orðið deginum ljósara að þau ósköp hafa einmitt uppáfallið vesalings Seyðfirðingana!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Elías Halldór Ágústsson

Við erum í rauninni einn og hálfan tíma á undan hér í Reykjavík og ættum að breyta klukkunni til samræmis við það.

Elías Halldór Ágústsson, 7.6.2008 kl. 14:15

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Réttur meðaltími er ein klukkustund á eftir en óþarfi að eltast við hálftímann fremur en gert er í öðrum löndum. Það er hagræðingaratriði. Eftir strangri tímabeltaskiptingu ætti reyndar að vera annar tími á austfjörðum en á vesturlandi. 

Sigurður Þór Guðjónsson, 7.6.2008 kl. 14:29

3 Smámynd: Elías Halldór Ágústsson

Hálftíma tímabelti eru ekki óalgeng og eru ekki erfiðari í notkun.

Elías Halldór Ágústsson, 7.6.2008 kl. 14:32

4 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Já, að vísu. 

Sigurður Þór Guðjónsson, 7.6.2008 kl. 14:36

5 Smámynd: Þorsteinn Briem

Lög nr. 6/1968:

Tóku gildi 7. apríl 1968 kl. 01.00.


1. gr. Hvarvetna á Íslandi skal telja stundir árið um kring eftir miðtíma Greenwich."

http://www.althingi.is/lagas/135a/1968006.html

Því er bannað, samkvæmt lögum, að hafa annan tíma á Seyðisfirði en miðtíma Greenwich, árið um kring.

Þorsteinn Briem, 7.6.2008 kl. 20:00

6 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Já, auðvitað, mundu ekki eftir þessum lögum í augnablikinu. Vilhjálmur reyndi hins vegar að setja önnur lög, hafði það fram yfir Seyðfirðinga sem ætla bara að fara sínu fram sjálfir.

Sigurður Þór Guðjónsson, 7.6.2008 kl. 21:25

7 Smámynd: Beturvitringur

Hvað er at'arna?  Voðalega er þetta eitthvað flókið. Ekki einu sinni kettir færu svona marga hringi í kringum heitan graut.

Auðvitað þarf ekki að breyta neinni klukku þarna, það er alltof mikil hræring fyrir alla; útlenda/innlenda ferðamenn, fyrirtæki og allíhúbba.

Hvers vegna í ósköpunum breytir fólkið ekki afgreiðslutíma og vaktaskiptum?

Dæmi: í stað þess að opna verslun/fyrirtæki kl 9 - opnað kl 7 (lok kl 15 í stað 17)

Skólar, dagheimili og allt klabbið flytti sig til og allt passaði og fólkið veit þá líka hvað klukkan er "á Íslandi hinu meira"

Seinúbra sona 

Beturvitringur, 8.6.2008 kl. 00:06

8 Smámynd: Jón Halldór Guðmundsson

Þar sem svo vill til að ég bý á Seyðisfirði verð ég að taka þátt í þessari skemmtilegu umræðu.

Í fyrsta lagi kemur hér fram að klukkan á Austurlandi er Þegar klukkustund á undan réttum tíma. Og hún er klukkutíma og 40 mínútum á undan réttum tíma í Reykjavík. Reykvíkingar eru afar sáttir við það virðist vera. Hví skyldu Austfirðingar ekki vilja slíkt hið sama?

Aðrar Evrópuþjóðir eru með vetrar og sumartíma. Af hverju ætli það sé? Er ekki góðra gjalda vert að vekja umræðu um það mál?

Á nítjándu öld tók Ottó Wathne kaupmaður á Seyðisfirði sig til að hóf siglingar til íslands á veturna fyrstur manna. Á 21. öld gerist það að Seyðfirðingar fara fyrstir íslendinga að vekja athygli á því að það kunni að vera til nokkurra þæginga amörlandinn hafi sama tíma og önnur evrópulönd bæði sumar og vetur af viðskiptalegum foresndum. Mikil viðskipti milli landa eru kveikjan að þessari umræðu.

Seyðisfjörður er umlukinn háum fjöllum á alla vegu má segja.  Þess vegna hafa bæjarbúar sérstakan áhuga á að njóta sólar síðdegis. Það má gera með því að flýta klukkunni, eða breyta vinnutíma og opnunartíma fyrirtækja.

Með þökk fyrir góðar umræður. 

Jón Halldór Guðmundsson, 8.6.2008 kl. 03:11

9 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Það er rétt að klukkan á Seyðisfirði er í rauninni í öðru tímabelti en í Reykjavík. Þetta kemur t.d. vel fram í veðurathugunum. Hiti er alla jafna mestur um það bil tveimur tímum eftir að sól er hæst á lofti og á austfjörðum er hámarkshiti oft fyrr en ferðinni eftir klukkunni en annars staðar á landinu. En engum hefur nú dottið í hug að hafa tvö tímabelti í jafn litlu landi og menn sættast á að nota það tímabelti sem langmestur hluti landsins er á. Ekki Ég held annars að rö

Sigurður Þór Guðjónsson, 8.6.2008 kl. 09:46

10 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ekki má svo gleyma því að við erum nú þegar á sumartíma og það hljóta að vera takmörk fyrir því hvað hægt er að víkja langt frá gangi sólarinnar. Ísland er ekki á sama landsvæði og vestasasti hluti Evrópu og við verðum að sætta okkur við það. Auk þess er Evrópa sjálf í nokkrum tímabeltum þó menn reyni að hafa öll lönd, nema Rússland með sömu tímaskipan. Það er löggjafinn eins og Steini Briem bendir á sem getur breytt klukkunni á Íslandi, ekki einstaklingar eða sveitarfélög eftir eigin þörfum. Hugmynd Seyðirðinga um að breyta klukkunni nær því líkast til ekki fram að ganga enda munu tvö tímabelti í litlu landi skapa ýmsan vanda sem valdið gæti miklum óþægindum og jafnvel tjóni. Ekkert mælir hins vegar á móti því að Seyðifrðingar breyti vinnutíma og opnunartíma fyrirtækja. 

Sigurður Þór Guðjónsson, 8.6.2008 kl. 09:52

11 Smámynd: Beturvitringur

Já, Anna. Hef oft undrast að "hádegið" hjá okkur sem um hálftvö!

Beturvitringur, 8.6.2008 kl. 12:51

12 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ef Seyðfirðingar flýta sinni klukku munu þeir borða hádegismatinn um kvöldmatarleytið! Og þeir munu alltaf sofa fram til hádegis!

Sigurður Þór Guðjónsson, 8.6.2008 kl. 14:04

13 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Þeir vilja víst flýta klukkunni um tvær stundir. En ef þeir ætla að gera þetta á annað borð sting ég upp því að klukkunni verði flýtt um tólf stundi. Það væri ofurlítið vit í því.

Sigurður Þór Guðjónsson, 9.6.2008 kl. 16:19

14 Smámynd: Beturvitringur

Eftir síðustu tillögu (12 stundirnar) er ég mát, samþykki og stend upp; 12 klukkustundir skulu þær vera!

Beturvitringur, 9.6.2008 kl. 22:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband