Ísland er ekki ósnortið land

Björk og Sigurrós ætla að halda tónleika til að vekja athygli á ósnortinni náttúru landsins.  

Gallinn er bara sá að Ísland er ekki ósnortið land. Þvert á móti hefur hér orðið meiri gróður og jarðvegseyðing af mannavöldum en víðast hvar annars staðar. Jafnvel  Kjölur og Sprengisandur voru að miklu leyti gróðri vaxin á fyrri tíð.

Útlendingar halda auðvitað- og víst margir Íslendingar líka - að hið gróðurlausa landslag sé afleiðing af því að loftslagið bjóði ekki upp á meiri gróður. En það er rangt. Loftslagsins vegna gæti verið skógur og annar gróður mjög víða þar sem nú eru naktir melar. 

Þetta tal um ósnortna náttúru Íslands er einhver lélegasta goðsögn sem um getur.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Ég hef lært næga sögu og jarðfræði til að vita að þetta er rétt. Hitt er aftur staðreynd að mjög stór hluti landsins ER ósnortinn. Þótt gróðureyðing hafi orðið víða er það engu að síður staðreynd.

Og þau eru að halda tónleika til að vekja athygli á náttúrunni - og henni til varnar gegn ásælni stóriðju og virkjana.

Var að setja inn pistil um þetta því ég fagna liðsaukanum gríðarlega.

Lára Hanna Einarsdóttir, 6.6.2008 kl. 01:43

2 identicon

En þau vilja spyrna við fótum - er það ekki rétt?

Guðmundur Brynjólfsson (IP-tala skráð) 6.6.2008 kl. 03:31

3 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Siggi, eftir því sem ég veit best, var gróandi á fjöllum mældur. 

Girt var af hólf rétt fyrir ofan Búrfell, hvar eingöngu voru melar.  Ekkert annað gert en að girða.

Tegundum fjölgaði hratt fyrst um sinn en þar sem bæði fræi og áburði var dreyft ú r flugvélum, minnkaði vægi villtra grasa og blómplantna.

Þekjan varð góð eftir einungis 6 ár.  En að því sem búvísindamenn telja, hafi gróður farist vegna kulda OG ofbeitar,(miðað við hitastig og því gróanda), því hafi gróðri farið aftur og blásið þar sem afnag hafi verið of mikið, þannigað rótarkerfið hefði ekki haft undan.

Ekkert land er ósnortið eftir að það hefur verið numið af Homo eitthvað.

Miðbæjaríhaldið

Bjarni Kjartansson, 6.6.2008 kl. 10:00

4 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Þau svæði landsins sem helst eru ósnortin eru jöklarnir, eyðisandar og háfjöll en þó hafa ýmsar breytingar orðið á þeim svæðum en ekki af mannavöldum enda er náttúruna ekki statísk. Þetta er ekki stór hluti landsins eins og glögglega má sjá á gróðurkortum. Óbyggðirnar fyrir norðan Vatnajökul þar sem virkjanirnar og margar aðrar óbyggðir eru eru ekki ósnortið land. Þeir sem halda þessa tónleika og fylgismenn þeirra í náttúruvernd vilja hamla gegm virkjunum - eins og ég -en virðast hafa fremur lítinn áhuga á gróður og jarðvegsvernd. Eldgos myndu setja lítinn strik í reikningin, en samt nokkurn, ef engir  væru menn og dýr. Það er auðvitað sjálfsagt að  sporna gegn frekari náttúrueyðingum en orðum mínum var ekki beint gegn þeim heldur eingöngu að þessari blekkingu sem oft heyrist að Ísland sé í meginatriðum ósnortið land. Ferðamenn trúa því kannski en við ættum að vita betur. Það sem svo Björk segir oft um landið er bara tóm vitleysa. Og hún verður ekki minni þó hún sé Björk.   

Sigurður Þór Guðjónsson, 6.6.2008 kl. 11:07

5 Smámynd: Þorsteinn Briem

Æði stór hans eyðimörk,
ekki sér þar neina Björk,
hún er bjáni,
hann er kjáni,
Siggi hann nú smíðar örk.

Þorsteinn Briem, 6.6.2008 kl. 13:02

6 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Þótt þetta sé allt satt og og rétt, þá held ég að það sé stórt atriði að landið líti að minnsta kosti út fyrir að vera ósnortið. Örfoka sandmelar eru miklu skárri heldur en Stalínískar stórverskmiðjur.

Emil Hannes Valgeirsson, 6.6.2008 kl. 13:37

7 Smámynd: Ólafur Þórðarson

"Örfoka sandmelar...skárri en Stalíniskar stórverksmiðjur"? Það fer eftir hvort þú býrð á því svæði og vantar vinnu. Eða ekki. Þar fyrir utan sé ég ekki að Alcoa sé Stalínískt fyrirtæki, þar er ólíku saman að jafna.

Heimurinn getur ekki stjórnast af því hvernig hann lítur út í digital myndavélinni. 

Annars er ég sammála  kisukallinum að Ísland er langt frá því að vera ósnortið. Þeir sem vilja feika það eru kannski ekki á sömu plánetu og við hin. 

Ólafur Þórðarson, 6.6.2008 kl. 15:18

8 identicon

Það er auðvitað hægt að deila endalaust um hvað er ósnortið og hvað ekki.

Mér finnst þetta snúast talsvert um hughrif. Ég hef ferðast býsna um hálendið og oft notið þeirrar upplifunar að finnast ég kannski vera fyrsta manneskjan sem kem á staðinn...ósnortin jörð.

Og útsýnið ber engin merki um mannanna verk, ekki háspennulínur, vegi né veituskurði ber fyrir augu. Þessir staðir eru víða, en fer fækkandi.

 Það eru ábyggilega ekki margir staðir eftir niðri í Evrópu sem ná þessu.

Og upplifunin nálgast það sem Laxness ritaði:

„Þar sem jökulinn ber við loft hættir landið að vera jarðneskt, en jörðin fær hlutdeild í himninum, þar búa ekki framar neinar sorgir og þess vegna er gleðin ekki nauðsynleg, þar ríkir fegurðin ein, ofar hverri kröfu."

barki (IP-tala skráð) 6.6.2008 kl. 23:55

9 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Það er ekki umdeilt að Ísland er mjög snortið  land gróðurfarslega af mannavöldum. Líka þar sem engin mannvirki eru. Okkur finnst bara örfoka land oft vera "ósnortin öræfi", oft er það ekki upprunalegt landslag. Virkjanir út um allt eru svo annar hlutur.

Sigurður Þór Guðjónsson, 7.6.2008 kl. 00:25

10 Smámynd: Ásta Björk Solis

I minum augum er Island alltaf fallegasta land i heimi .En thvi midur virdist thu hafa rett fyir ther

Ásta Björk Solis, 7.6.2008 kl. 02:48

11 Smámynd: Yngvi Högnason

Ég er nú að spá í, hvað hvalavein á túni og Björk kumrandi hjá,hafa með "ósnortið" Ísland að gera.Hvaðan fá þau rafmagn til gjörningsins?

Yngvi Högnason, 7.6.2008 kl. 09:05

12 Smámynd: Ólafur Þórðarson

Af hverju mótmæla þau ekki kindinni? Það er stærsti sökudólgurinn ef einhvern einn er að finna. Þar sem kindin kemst ekki, er gróðurvin.

Í klettum á klettaeyjum og öðrum stöðum. Látum okkur kannast við þetta.  

Ólafur Þórðarson, 7.6.2008 kl. 20:58

13 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Líka á hólmum í vötnum og fljótum sem kindur komast ekki í. Þau yrðu nú annars fremur kindarleg ef þau færu að mótmæla kindinni. 

Sigurður Þór Guðjónsson, 7.6.2008 kl. 21:33

14 Smámynd: Ólafur Þórðarson

Já þetta er allt hálf kindarlegt.

Ekki má gleyma þessum djö. skriðjöklum sem skrapa allt af landinu. Það mun lítið sjást af virkjununum eftir næstu skriðjöklasenu.

Ólafur Þórðarson, 8.6.2008 kl. 04:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband