Sko, skottið á Mala!

Eins og allir hysterískir aðdáendur hans Mala vita rófubrotnaði hann í vor þegar hann flaug fram af svölunum á fjórðu hæð.

Hann hefur lítið getað hreyft skottið þar til síðustu daga að allt í einu er komið líf í það. Hann er farinn að sveifla því í veiðihug og reisa upp stýrið þegar mikið liggur við.

Ég náði þessari listrænu mynd af uppreistu glæsiskottinu hans Mala bara rétt áðan. Hægt er að stækka myndina.

Mali er algjör súperskotti! 

PICT2628


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: halkatla

halkatla, 20.6.2008 kl. 20:22

2 Smámynd: Svavar Alfreð Jónsson

Við fyrstu sýn hélt ég að þú værir kominn með svartan svan inn á stofugólfið hjá þér.

Svavar Alfreð Jónsson, 21.6.2008 kl. 00:05

3 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Vá! hann er með rosalega langt og tignarlegt skott.  Ég á 5 kisur og fjórar þeirra eru með stutt skott, en ein læðan hún Ástarpungur er með svona langt og tignarlegt skott líka.  Ég þarf að taka myndir af skottunum þeirra við tækifæri.

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 21.6.2008 kl. 00:46

4 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Skottið hans Mala er óvenjulega langt og er hans helsta stolt og stöðutákn. Þess vegna er mikilvægt fyrir geðheilsu hans, sjálfstraust og kattdóm að það komist aftur í lag.  

Sigurður Þór Guðjónsson, 21.6.2008 kl. 00:51

5 Smámynd: halkatla

ég þekki eina kisu sem missti skottið sitt (og hluta af bakinu) eftir bílslys, hún fannst öll limlest fyrir utan heima hjá sér og blóðslóðin lá eftir stéttinni, sem betur fer náðist í eigendurna og þeir borguðu, þó fátækir væru, ógrynnin öll af peningum til þess að dýralæknirinn myndi gera allt til að bjarga þessum þvísem næst dauðadæmda ketti. Það tókst eftir mikla baráttu og kisan þurfti að vera í búri mánuðum saman en henni tókst samt að komast út í smástund og verða kettlingafull, engum grunaði neitt og svo fæddi hún kettlinga í tveggja ára afmæli barnsins á heimilinu, spáðu í rosalegu. Ég kom í heimsókn rétt eftir að þeir fæddust og það voru allir svo hissa. Já úps, svoldið löng saga, hehe, en það var skottleysi kisumömmunnar sem kom uppí hugann á mér þegar ég skoðaði myndina.

skottið hans Mala er svo flott þú mátt segja honum það frá okkur. 

Karítas er örugglega með feitasta kattaskott Íslands  

halkatla, 22.6.2008 kl. 00:44

6 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Ég verð víst að viðurkenna það að þetta skott hans Mala er  lengra og glæsilegra en skottið á Tító og Gosa og þá er mikið sagt.

Svava frá Strandbergi , 22.6.2008 kl. 01:06

7 identicon

Ég kemst alltaf í svo gott skap þegar ég les Malafærslurnar þínar - þær eru frábærar.  

Helga (IP-tala skráð) 22.6.2008 kl. 02:58

8 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Karítas er breiðskotta en Mali er langskotti.  

Sigurður Þór Guðjónsson, 22.6.2008 kl. 13:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband