Bón og ein spurning til veðurfréttamanna sjónvarpsins

Fyrir skemmstu vék ég að því  í bloggi að það hefði verið ógæfuspor þegar hætt var að útvarpa á gömlu gufunni veðurlýsingum frá kl. 18 þar sem flutt var visst veðuruppgjör dagsins. Ágætur veðuráhugamaður tók undir þetta í athugasemdum en benti réttilega á að það er líka "alveg hætt að sýna í Sjónvarpinu Íslandskortið með veðri dagsins og varla talað um það."

Þetta er mikil afturför og hefði bloggið verið búið að festa sig eins í sessi og nú er hefði þessari breytingu ekki verið tekið þegjandi og hljóðalaust af veðuráhugamönnum. En það er kannski aldrei of seint að bregðast við.

Veðurfregnir í ríkissjónvarpinu eru nú bara svipur hjá sjón miðað við það sem áður var.

Ég veit að sjónvarpið hefur sífellt verið að þrengja að tíma veðurfregna en ég trúi því ekki að veðurkorti dagsins hafi verið kippt í burtu af þeirri ástæðu. Ástæðan hefur fremur verið ákvörðun þeirra veðurfræðinga sem sjá um veðurfréttatímana.

(Ekki bætir úr skák að nýlega hafa veðurkortin af Íslandi verið smækkuð svo sjóndapurt fólk á hreinlega erfitt með að greina tölurnar á því):

Veðurfréttir eiga ekki að vera bara spár fram í tímann. Þær eiga líka að vera það sem felst í orðanna hljóðan: fréttir - af veðri. Veðurfræðingar í sjónvarpi ættu því ekki aðeins að vera spámenn heldur líka fréttamenn, segja frá helstu veðurtíðindum dagsins. Það er mikilvægara að mínum dómi að sýna veður dagsins á Íslandi heldur en að eyða tíma í að spá í veðrið í Evrópu

Viljiði ekki gera svo vel að taka aftur upp þann góða sið að sýna veðurkort dagsins með einhvers konar uppgjöri. Er eitthvað sem stendur í veginum?

Með bestu kveðjum  

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Ég tek heilshugar undir þessa áskorun og greiði henni atkvæði mitt.

Lára Hanna Einarsdóttir, 21.6.2008 kl. 12:59

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Nú er bara spurningn hvort veðurfréttamennirnir, sem eru nú ekki margir, lesa þetta og ef þeir gera það hvernig þeir bregðast við.

Sigurður Þór Guðjónsson, 21.6.2008 kl. 15:08

3 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Þeir hljóta að bregðast vel við svona frómum óskum frá enn frómari veðuráhugamönnum. Flestum þykir gaman þegar verkum þeirra og vinnu er sýndur áhugi.

Og fyrst við erum byrjuð með óskalista þá vil ég líka gjarnan fá veðurfréttaskýringaþætti. Veðurmolar Sigga storms eru í áttina, ég hef gaman af þeim, en gjarnan vildi ég fá annaðhvort stuttar, daglegar veðurféttaskýringar eða lengri vikulegar þar sem farið væri nánar í saumana á veðrinu og hverju það stjórnast af. Gjarnan mætti fara í samanburð eins og þú gerir og fleira af þeim toga.

Með fyrirfram þökk til veðurfréttamanna og -kvenna.

Lára Hanna Einarsdóttir, 21.6.2008 kl. 15:18

4 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég held reyndar að Sjónvarpið sé mjög áhugalaust um veðrið og vilji helst losna við það. En skipulag veðrufréttanna er samt verk veðurfræðinganna og er líklega einhver verkstjóri í því.  

Sigurður Þór Guðjónsson, 21.6.2008 kl. 16:01

5 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Ég sé að þú hefur tekið þetta mál upp og vitnar meira að segja í mín orð. Það er líka eitthvað í uppsetningu veðurfréttanna á RÚV sem veldur því að fólk man ekki stundinni lengur hvernig veðrið á að vera næstu daga. Sennilega eru sýnd alltof mörg íslandskort fram í tímann sem veldur bara ruglingi. Í staðinn mætti kannski fækka þeim og bæta þá við korti með veðuryfirliti dagsins.

Svo er ég viss um að veðurfréttamenn fylgist með þessari síðu, allavega þeir sem hafa áhuga á sínu fagi.

Emil Hannes Valgeirsson, 21.6.2008 kl. 22:37

6 identicon

Sæll Sigurður

Það sjónarmið er almennt ríkjandi meðal sjónvarpsmanna um víða veröld, annarra en veðurfræðinga, að veðurfregnir eigi að vera stuttar og að það eigi bara að tala um spána, ekki gamalt veður.   Veðurfræðingar eru almennt á öndverðum meiði, þeir hallast að því að rétt sé að hefja söguna á nýliðnu veðri, það hjálpi áhorfendum að túlka spána og leiði til betri skilnings á veðri, veðurfari og veðurspám þegar til lengri tíma er litið.   Þá hafa veðurfræðingar bent á að fréttir fjalli að jafnaði um liðna atburði og að ósekju mætti fækka um 1-2 slíka atburði í fréttum og segja frá liðnu veðri í staðinn, enda oftast áhugaverðara.   Í því sambandi benda sjónvarpsmenn á að með tilkomu netsins sé mun minni þörf en áður á að sinna sérþörfum llítilla hópa.  Spyrja menn þá hversu lítill hópurinn sé, og verður fátt um svör.

Annars er bakgrunnur þess sem hér er rætt að nú reyna veðurfræðingar að koma miklu meiri upplýsingum á framfæri á mun skemmri tíma en fyrir nokkrum áratugum.  Það getur verið snúið, en ekki þar með sagt að ekki sé hægt að gera betur en gert er nú.

 Með kveðju og þökk fyrir umræðuna,


 

Haraldur Ólafsson (IP-tala skráð) 22.6.2008 kl. 15:26

7 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég vissi það svo sem, að hnífurinn stæði í sjónvarskúnni. En takk fyrir þetta. Er ekki annars hægt að koma veðurvitinu fyrir sjónvarpsmennina?

Sigurður Þór Guðjónsson, 22.6.2008 kl. 16:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband