Keníumaðurinn Paul Ramses, sem íslensk stjórnvöld vísuðu úr landi án þess að taka fyrir mál hans, var fluttur úr landi í morgun með lögregluvaldi.
Hann starfaði um tíma við hjálparstarf Í Kenía sem íslensk stjórnvöld komu að. Ramses tók einnig þátt í borgarstjórnarkosningum í Næróbí í Kenía í desember í fyrra en náði ekki kosningu heldur andstæðingur hans í stjórnarflokki landsins. Eftir kosningarnar urðu margir stjórnarandstæðingar fyrir ofsóknum, Paul óttaðist því um líf sitt og flúði land í janúar síðastliðinn. Kom hann til Íslands og sótti um hæli sem pólitískur flóttamaður af því að hann dvaldi hér um tíma árið 2005 og starfaði eftir það fyrir ABC barnahjálp í Kenía. Paul tók þátt í að stofna skóla í Næróbí með Íslendingum og var það meðal annars stutt af utanríkisráðuneytinu.
Á leið sinni hingað millilenti Paul á Ítalíu. Ákvæði í Dyflinarsamningnum gefur íslenskum stjórnvöldum heimild - en gerir þeim ekki skylt - til að vísa flóttamanni aftur til þess lands sem fyrst veitir vegabréfsáritun og ber því landi, sem sagt Ítalíu í þessu tilviki ef heimildin er notuð, að taka afstöðu um það hvort honum verður veitt pólitískt hæli. Paul á konu og 3 vikna son sem eru hér á landi. Fjölskyldunni hefur því verið stíað í sundur.
Lögmaður Ramses sagði að í gær hafi lögreglan komið inn á heimili Pauls og tekið hann í fangelsi. Þar sat hann í nótt og var svo fluttur út í morgun.
Sagt er að tveir menn hafi þá farið út á flugbrautina, sem mun vera lögbrot, til að mótmæla nauðungarflutningum á Ramses. Þeir voru handteknir og færðir í fangaklefa til yfirheyrslu. Kristján Eyjólfsson fulltrúi lögreglunnar á Keflavíkurflugvelli lítur á þetta mál alvarlegum augum enda varði athæfið hugsanlega við sex ára fangelsi.
En mig langar mig til spyrja: Hvers vegna handtekur lögreglan ekki forstöðumann Útlendingastofnunar, þegar í stað og yfirheyrir hann fyrir brot stofnunnarinnar á rétti Paul Ramses?
Hvernig skyldi forstöðumanninum annars líða þegar hann kemur í kvöld heim til fjölskyldu sinnar yfir þeim verknaði sínum að hafa stíað annarri fjölskyldu í sundur og stofnað jafnvel lífi fjölskylduföðurins í hættu?
Bara vel? Í það minnsta mun hannh verja gerðir sínar fram í rauðan dauðann - sanniði til- og stjórvöld munu styðja hann samviskusamlega eða öllu fremur án nokkurrar samvisku í því með ráðum og dáðum.
Hvaða glæpur var annars framinn í þessari atburðarás og hverjir eru glæpamennirnir sem ættu skilið að verða dæmdir í að minnsta kosti sex ára fangelsi?
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 6.12.2008 kl. 17:37 | Facebook
Nýjustu athugasemdir
- Þurrasti janúar í sögu mælinga fyrir norðan : Fyrir norðan er oft frábært veður eins og víðast annars staðar ... 4.2.2010
- Þurrasti janúar í sögu mælinga fyrir norðan : Eg er vanur að hæla veðurfarinu hér fyrir norðan. Hverjum finns... 4.2.2010
- Þíðukaflar að vetrarlagi í Reykjavík: Það er nefnilega það. Janúar og desember 1987 eru eiginlega fyr... 30.1.2010
- Íslendingar: Nákvæmlega það sem mér datt fyrst í hug ! 28.1.2010
- Íslendingar: Og birta svo, sigri hrósandi, flennistórar myndir af blóðugu hr... 27.1.2010
Tenglar
Blogg
Ýmsir vefir
- Gjósandi eldfjöll
- Kantötur Bachs
- Schubert
- Stjörnuskoðun
- Nótnasafnið
- Torfusamtökin
- Lilta-Ávík
- Blogggáttin
- Doctor E
Blogg
Síður
- Jóla og áramótaveðrið frá 1880
- Sólrík sumur og sólarsnauð
- Sólskin á Íslandi
- Hámarkshiti á landinu um verslunarmannahelgina frá 1949 og veðrið í Reykjavík
- Slær júlí hitamet í Reykjavík
- Óvenju hlý júlíbyrjun
- Nokkrir kaldir janúarmánuðir og kuldadagar
- Hret og snjóar í ágúst
- Kuldar og snjóar í september
- Mesti hiti í septembermánuði
- [ Fleiri fastar síður ]
Eldri færslur
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006


Athugasemdir
Takk frir þennan frábæra pistil Sigurður.
Jenný Anna Baldursdóttir, 3.7.2008 kl. 13:12
Gott hjá þér að vekja máls á þessu hér á bloggi þínu Sigurður.
Þetta er hörmung fyrir stjórnvöld og ömurlegt fyrir okkur sem þjóð, þessi atburðarás öll er okkur öllum til skammar.
Hvar er Ingibjörg Sólrún Gísladóttir eiginlega, er hún kanski í útlöndum á einhverjum þykjustunni mannréttindafundi hjá Evrópusambandinu. Hún ætti skammast sín og svara til saka í þessu máli. Þessa Hildi Dungal ætti líka að ákæra í þessu máli. Svei þessum hippókrötum öllum saman.
Gunnlaugur Ingvarsson (IP-tala skráð) 3.7.2008 kl. 13:20
brennum nornirnar
pirrhringur, 3.7.2008 kl. 13:24
þetta mál er viðbjóðslegt á alla kanta (það er að segja af hálfu ríkistjórnarinnar)
Ég er búinn að missa alla trú á núverandi ríkistjórn, borgarstjórn... og bara íslensku samfélagi allmennt...
menn halda sig bara í sínu horni og gera ekki neitt fyrir neinn nema það varði þá sjálfa... (eða þú veist... ansi algengur hugsanaháttur)
Davíð S. Sigurðsson, 3.7.2008 kl. 13:30
góður pistill
Hólmdís Hjartardóttir, 3.7.2008 kl. 13:32
Hildur Dungal er í barneignarleyfi, held hún sé nýbúin að eiga, þannig að það er kannski óþarfi að skella allri skuldinni á hana.
Nanna Rögnvaldardóttir, 3.7.2008 kl. 13:37
Þetta eru helvítis mannréttindabrot, ég skammast mín enn og aftur fyrir að vera íslendingur.
Það liggur við að maður flýji land og sæki um hæli þar sem mannréttindi eru virt, þar sem fólk hefur siðferðiskennd, þar sem fólk ber virðingu fyrir hvort öðru.
DoctorE (IP-tala skráð) 3.7.2008 kl. 13:42
Haukur Guðmundsson er settur forstöðumaður á meðan.
Nanna Rögnvaldardóttir, 3.7.2008 kl. 13:43
þetta verða semsagt eintóm undanskot, allir benda á einhvern annan og enginn mun þurfa að sæta ábyrgð því enginn bar ábyrgð. Típískt fyrir Ísland.
pirrhringur, 3.7.2008 kl. 13:45
Svona virkar þjóðfélag peningahyggju, valdagræðgi og mannfyrirlitningar sem Flokkurinn hefur verið að byggja hér upp áratugum saman.
Með samstilltu átaki tekst hugsanlega að bjarga Paul Ramses.
Erfiðara verður að bjarga þjóðfélaginu okkar.
Þráinn Bertelsson (IP-tala skráð) 3.7.2008 kl. 13:52
Búinn að breyta því sem við á í færlsuni varðandi forstöðu Útlendingastofnunar. Ég vil ekki hafa neinn fyrir rangri sök. Þakka ábendinguna.
Sigurður Þór Guðjónsson, 3.7.2008 kl. 14:00
Svona mál eru daglegt brauð í nágrannalöndum okkar t.d. í Svíþjóð, því miður.
Júlíus Valsson, 3.7.2008 kl. 14:04
Af hverju er þetta gert í svona miklum flýti og með svona miklu ofbeldi? Ég er ekki að skilja.
Hrannar Baldursson, 3.7.2008 kl. 14:09
Mér dettur í hug að það sé vegna þess að ofbeldi sé Það fyrsta sem Útlendingastofnun dettur í hug - með stuðningi stjórnvalda.
Sigurður Þór Guðjónsson, 3.7.2008 kl. 14:28
Ingibjörg Sólrún sagði mér það að þetta mál var aldrei borið undir hana né starfsfólk hennar. Sem er afskaplega rangt, af hverju gera stjórnvöld ekki neitt. Allt stoppar í kerfinu, skiptir engu máli hvort mannslíf sé í húfi eða hvað.
Maður spyr sig hvað er í gangi. Þeir sem unnu með Paul úti í Kenýa voru allir drepnir og hann pyntaður áður en hann flýr land. Það er ekki verið að nefna það í fjölmiðlum!
Hann er á dauðalista úti í Kenýa og Ítalía er eitt af tveimur löndum sem sendir alla pólitíska flóttamenn til síns heima. Íslensk stjórnvöld fylgdu honum fyrstu skrefin í átt að gálganum, ef svo má segja...
...sá eini sem getur bjargað honum núna er Guð og ég bið þess að einhver á hans leið fái miskunn Guðs og veiti honum vernd og líf og hleypi honum aftur til fjölskyldu sinnar!
Lilja Birgisdóttir (IP-tala skráð) 3.7.2008 kl. 15:14
Hildur Dungal er kannski stikk-frí af þessu en hún á nú Falun Gong og fleiri skammarstrik alveg sjálf.
JBJ (IP-tala skráð) 3.7.2008 kl. 15:57
Ekki skil eg hvernig thessir adilar geta sofid a nottunni eftir svona othverraverknad.
Ásta Björk Solis, 3.7.2008 kl. 16:31
Ekki vil ég gera lítið úr vandræðum þessa manns en það er rétt að hafa í huga að átökin í Kenya í kjölfar kosninganna þar snerust ekki um stjórnmál heldur um ítök og áhrif ættbálka. Það er því ábyggilega ekki rétt að þessi maður hafi lent á "dauðalista" ríkisstjórnarinnar.
Ómar Valdimarsson (IP-tala skráð) 3.7.2008 kl. 16:49
hvernig væri nú aðeins að kynna sér málið elsku Ómar
Davíð S. Sigurðsson, 3.7.2008 kl. 16:54
Maðurinn gæti samt verið á einhverjum dauðalista. Sé svo sem ekki muninn hvort hann er á vegum stjórnvalda eða ættbálka. Aðalatriðið sem að okkur snýr er þó það að réttinda mannsins var ekki gætt og hann á hér konu og barn. Svo er það sérlega napurlegt að hann hefur starfað að mannúðar-og menntamálum í tengslum við Íslendinga og jafnvel íslensk stjórnvöld. Þess vegna er þessi mannúðarlausa framkoma við hann enn meira ámælisverð.
Sigurður Þór Guðjónsson, 3.7.2008 kl. 17:03
Bendi á þetta. Í Morgunblaðinu bls. 2 segist Haukur Guðmundsson ekki geta tjáð sig um málefni Ramses. Hvað bannað það? Fær þessi Haukur bara að sleppa svona billega? "Er þetta mennskt?" spyr kona Paul Ramses um meðferðina á honum, að senda hann nánast á formsatriðum til Ítalíu sem varla gæti verið verra land hvað hælisleitendur varðar. Þórunn Helgadóttir, starfsmaður ABC, segir að Pauls sé leitar af stjórnvöldum í Kenía. Svarið við spurningu eiginkonu Pauls liggur í augum uppi: Þetta er ekki mennkst. Haukur Guðmundsson er nánast að senda manninn út í opinn dauðann frá fjölskyldu sinni. Hvers vegna heyrist ekkert frá ráðherrum um þetta mál?
Sigurður Þór Guðjónsson, 3.7.2008 kl. 17:21
Ingibjörg Sólrún er ekki stikkfrí í þessu máli, henni vær nær að vera heima og sinna ráðuneytinu en að vera á flandri út um allan heim.
G. Valdimar Valdemarsson, 3.7.2008 kl. 17:45
Mótmæli fyrir utan dómsmálaráðuneytið á milli 12 og 13 á morgunn... við verðum að sýna í verki að okkur er ekki sama um örlög Paul Ramses, og að við líðum ekki svona vinnubrögð... vinsamlegast látið berast og hvetjið fólk til að mæta.
Birgitta Jónsdóttir, 3.7.2008 kl. 17:53
Af hverju var ekki haft samband við Jónínu Bjartmaz sem fékk ríkisborgararétt fyrir tilvonandi, ég endurtek tilvonandi tengdadóttur sína. Eftir að tilvonandi tengdadóttir hennar var búinn að vera í landinu í 12 mánuði? Hún þurfti nefnilega að að komast inn á lánasjóð íslenskra námsmanna.
Er ekki eitthvað að í þessu embættismannakerfi? Tek heils hugar undir það að forstöðumaður Útlendingastofnunnar og dómsmálaráðherra verði báðir handteknir fyrir gróft mannréttindabrot.
Og Ingibjörg þarf að svara því hvernig hún geti verið að tala um mannréttindi og kvennréttindi, og réttindi barna þegar svona gróft brot á sér stað í hennar ríkisstjórn. Það er líklega rétt að hún hefur ekkert vitað um málið. Enda tekur það 3 til 4 mánuði að fá viðtal við hana. Hún er svo upptekin af ferðalögum.
Sigurður (IP-tala skráð) 3.7.2008 kl. 21:58
Öll ríkisstjórnin ætti að rísa upp í þessu máli ef það er einhver snefill af mannúð í henni. Ríkisstjórnin ræður. Það sem hún vill það verður. Allir ráðherrarnir eru samsekir um þetta illvirki ef þeir láta sem ekkert sé. Og það breytir þá engu þó þeir framfylgi öllum kurteisiserimoníum og vaði uppi í Kastljósi og annars staðar heilagir í framan. Ég segi það bara satt. Ég hef aldrei orðið vitni af jafn miklu níðingsverki stjórnvalda þann tíma sem ég man eftir mér, meira en hálfa öld. Enginn ærlegur maður getur annað en liðið hreinlega illa út af þessu. En það vissulega til slangur af kaldrifjuðu og tilfinningalausu sem er er alveg sama. Stjórnvöld eru það besta dæmið -að því er virðist.
Sigurður Þór Guðjónsson, 3.7.2008 kl. 22:17
Tilfinningalausu fólki, á þarna auðvitað að standa.
Sigurður Þór Guðjónsson, 3.7.2008 kl. 22:18
ég á ekki til orð
Sema Erla Serdar, 4.7.2008 kl. 00:27
Sæll Sigurður Þór.
Takk fyrir mjög góðan pistil. Rétt hjá þér að sumir eru tilfinningalausir. Þessir menn vissu að Paul var á dauðalista í Kenýa og yfirleitt senda Ítalir flóttamenn til síns heima og af hverju ekki núna eins og oftast.
Skrítið að mál Paul var ekki tekið fyrir. Ömurlegt hvernig var farið með hann eins og harðsvíraðan glæpamann. Fjórir lögreglumenn fylgdu honum úr landi. Nú var til nóg af peningum hjá lögreglunni en oftast er vælt og skælt um peningaleysi og ýmislegt látið sitja á hakanum sem þyrfti svo sannarlega að vinna að.
Björn Bjarnason getur varla átt sér viðreisnarvon eftir þetta. Allavega vona ég ekki.
Guð blessi þig og varðveiti.
Kær kveðja
Rósa Aðalsteinsdóttir, 5.7.2008 kl. 00:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.