Grimmd og miskunnarleysi

Vísir sendi Birni Bjarnasyni dómsmálaráðherra nokkrar spurningar varðandi umsókn Paul Ramses og starfsemi og vinnureglur Útlendingastofnunar. Svar Björns var svohljóðandi:  

„(H)vert mál er skoðað fyrir sig af útlendingastofnun, hún leggur mat á umsóknir og kemst að niðurstöðu um afgreiðslu þeirra. Ef fólk er ósátt við þá niðurstöðu er unnt að kæra hana til ráðuneytisins og/eða leita til umboðsmanns alþingis og dómstóla vegna málsins. Réttarstaða útlendinga hér á landi er skýr og á síðasta þingi sameinaðist alþingi um breytingar á útlendingalögum til að skýra þessa stöðu enn betur. Dyflinarsamningurinn er einnig skýr og honum er beitt af aðildarríkjum hans. Að sjálfsögðu er ekkert ólögmætt eða athugavert að beita þeim samningi frekar en öðrum milliríkjasamningum."

Þá veit maður það. Það er kannski ekkert ólöglegt við þessa afgreiðslu. En hún er að sjálfsögðu svo grimm og miskunnarlaus að furðu sætir. Hún er "ómennsk" eins og Atieno Othiembo eiginkona Paul Ramses komst að orði. Ekki má heldur gleyma því að réttur var brotinn á Paul af yfirvöldum.

Það lætur Björn Bjarnason sig engu skipta. Ekki heldur að fjölskyldu var sundrað. Ekki heldur að Paul er í lífshættu ef hann skyldi verða sendur aftur til Kenía frá Ítalíu sem virðist ekki vera mjög hælisleitavænt land.

Hvernig getur maður sem er svo að segja fæddur inn í valdakerfið og situr í skjóli þess, varinn á allar hliðar af stærsta stjórnmálaflokki landsins og ríkisstjórninni, með góðar tekjur áratugum saman svo segja má að hann velti sér upp úr hóglífi og munaði sýnt svona takmarkalausa grimmd og miskunnarleysi gagnvart þeim sem eiga undir högg að sækja? Hvernig er það bara hægt? 

Viðbrögð dómsmálaráðherra eru fullkomlega ómennsk.

Auðvitað mun hann samt láta sig engu skipta hvað menn segja um gerðir hans. Hann situr öryggur í sínu skjóli fjarri þjáningu heimsins. Sinnulaus um þjáningu heimsins.  Eykur á þjáningu heimsins og ver afstöðu sína með kjafti og klóm. 

Og það er fleira uppi í þessu dæmalausa máli. 

Haukur Guðmundsson forstöðumaður Útlendingastofnunar sagði í útvarpinu áðan að eiginkona Ramses sé hér ólöglega. Hann segir að henni og eins mánaðar gömlu barninu verði umsvifalaust vísað úr landi. Reyndar sagðist hann ekki geta rætt þetta mál sérstaklega en lét sig samt hafa það að koma hiklaust höggi á konuna fyrir augum allrar þjóðarinnar. Lítilmennska og hræsni Hauks er blátt áfram sjúkleg.

Og af þessum tilgreindu ástæðum segir hann að það sé tómt mál að tala um að fjölskyldunni sé sundrað.  

Frá mannúðarsjónamiði er þessi rökfærsla hans fyrir neðan allar hellur. Og það vekur ugg að henni sé beitt af embættismanni ríkisns.

Hvað er eiginlega að gerast á Íslandi að þessi maður skuli óáreittur líðast níðingsverk sitt með brottvísum Paul Ramsens og hóti öðru verra og dómsmálaráðherra landsins skuli verja það af öllu afli?

Mun þjóðin leyfa þessum  vondu mönnum að komast upp með þetta?  

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bergur Thorberg

Algerlega sammála þér Sigurður. Það eru vondir menn sem gera svona.

Bergur Thorberg, 3.7.2008 kl. 19:46

2 identicon

Af hverju heyrist ekkert í samtökum eins og Amnesty International. Það vantar ekki að þau láti heyrast í sér þegar þau telja að brotið sé á mannréttindum hryðjuverkamanna sem sitja í fangelsum.

kveðja Rafn.

Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 3.7.2008 kl. 19:54

3 Smámynd: halkatla

Þessi Haukur er djöfull í mannsmynd og ekkert annað, BB er bara samur við sig miskunnarleysið algjört.

halkatla, 3.7.2008 kl. 19:56

4 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Amnesty International hefur reyndar sent dómsmálaráðherra bréf.

Sigurður Þór Guðjónsson, 3.7.2008 kl. 20:27

5 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég geri samt ráð fyrir að það sé eins og að skvetta vatni á gæs. Býst einhver við því að stjórnvöld viðurkenni nokkurn tíma að ákvarðanir þeirra séu rangar? Nei, þau munu frekar verja ómennskuna fram í rauðan dauðann. Lætur sig einhver dreyma um að Björn Bjarnason iðrist þessara gerða sinna? Fremur mun hann bæta um betur.

Sigurður Þór Guðjónsson, 3.7.2008 kl. 20:31

6 Smámynd: María Kristjánsdóttir

Þetta er smánarlegt- ekki bara fyrir erfðaprinsinn og útlendingastofnunn - heldur fyrir ríkisstjórnina í heild. Það er aldeilis liðið sem Samfylkingin stundar kossaflensið með. Það verður mótmælastaða  á morgun kl 12 heyri ég.

María Kristjánsdóttir, 3.7.2008 kl. 20:48

7 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra hefur sagt að utanríkisráðuneytið hafi ekkert með málið að gera en sagðist krefjast þess að Útlendingastofnun og Dómsmálaráðuneytið rökstyðji ákvörðun sína. Þegar svona er sagt er það bara meiningarleysi. Útlendingastofnun rökstyður þá ákvörðun sína og það verður látið gott heita hvert sem það er. Það hefði verið mannsbragur á því ef Ingibjörg Sólrún hefði brugðist ókvæða við og fordæmt þessa ákvöðrun. En það gæti kannski spillt ríkisstjórnarsamstarfinu. En fari það samstarf norður og niður sem ypptur öxlum yfir þessu máli.  

Sigurður Þór Guðjónsson, 3.7.2008 kl. 20:53

8 Smámynd: Hafdís Lilja Pétursdóttir

Vondir menn, vondar ákvarðanir.

Hafdís Lilja Pétursdóttir, 3.7.2008 kl. 21:24

9 identicon

Fullkomnlega sammála þér Sigurður, þetta eru ómennskar aðgerðir og bera þess vott að menn vinni algjörlega án allra tilfinninga. Þarna hefði verið svo auðvelt að finna lausn á málum þessarar litlu fjölskyldu sem allir hefðu getað unað við, hið opinbera og aðrir. En nei, það átti að beita brögðum svo slíta mætti þessa fjölskyldu í sundur og skipti þá engu máli þó manninum yrði komið í þá stöðu að líf hans væri í hættu. Forsætisráðherra Ítalíu, Berlusconi hefur lofað að herða allar reglur gagnvart flóttamönnum og erlendum íbúum landsins. Það vita þessir háu herrar íslenskir sem framkvæma svona gjörning. Megi þeir ævinlega skammast sín fyrir verknaðinn.

Valsól (IP-tala skráð) 3.7.2008 kl. 21:45

10 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Valsól: Þeir munu ekki skammast sín. Þeir munu verja sig því meira sem almenningur fordæmir aðgerðir þeirra. Þeir munu ekki eitt andartak hugsa um þá ógæfu og þjáningar sem þeir valda því ef þeir gerðu það myndu þeir ekki hafa ákveðið þetta. Mér heyrðist jafnvel eins og hlakkaði í Hauki Guðmundssyni yfir því þegar hann sagði að eiginkona Paul Ramses væri hér ólöglega. Ég treysti ekki upplýsingum frá þessum manni nema þær séu staðfestar annars staðar. Þessu slengir hann fram, en segist samt ekki ræða einstök mál. Þvílík lítilmennska! Hann er fyrst og fremst að gera konuna, sem er sannarlega ein og yfirgefin í framandi og fjandsamlegu ríki, tortryggilega. Svo skríður  hann heim í sitt öryggi nú í kvöld og sefur hjá konunni sinni eða eitthvað annað huggulegt. Líka Björn Bjarnason. Við eigum ekki að taka gildan þenann virðulega og formlega talsmáta sem þeir vilja ræða málin á. Við eigum að tala um hlutina eins og þeir eru í raun og veru. Og í raun og veru - hvernig sem á málin er litið - er hér verið að fremja sjaldgæft illvirki. Við eigum að kalla hlutina réttum nöfnum. Og þetta er ekki einhver ópersónulegur náttúrukraftur sem á bak við standur heldur einstaklingar. Við eigum að láta þá vita hvaða augum við lítum á þessar aðgerðir og þá sem ábyrgð bera á þeim. Illvirki stjórnvalda eru alltaf framin af svona mönnum, kontóristum sem kippa öllu úr sambandi sem heitir gæska eða mildi. Þykjast svo hvergi hafa nærri komið grimmd og mannvonsku. En við skulum kalla hlutina réttum nöfnum.

Sigurður Þór Guðjónsson, 3.7.2008 kl. 22:04

11 identicon

Björn Bjarnason mun ekki hlusta á neinn. Hann er hliðhollur Bandaríkjunum þar sem miskunarleysið er algert gagnvart lítilmagnanum. Þar skiptir persónan engu máli hún getur bara etið það sem úti frýs.  BB er einn hættuleagsti maður þjóðarinnar. Hann vill koma upp her og Leyniþjónustu á Íslandi þar sem njósnað er um alla þegna þessa lands eins og þurfa þykir. Við (landslýðurinn) eigum að fórna sjálfstæði okkar, ritfrelsi  og öllu sem heitir friðhelgi einkalífsins svo hann geti búið til litla útgáfu af Bandaríkjnum hér uppi á klakanum. Ég kalla og hef lengi kallað þennan menn hættulegasta mann þjóðarinnar. Það versta er að hann, í sínum fílabeinsturni, trúir því að hann sé að gera gagn hér. Mér þykir það skrítið hvað útlendingastofnun var fljót að afgreiða mál tengdardóttur fyrverandi ráðherra. Það gekk greiðlega í gengum kerfið á mettíma. Þegar einhver sem að þeirra áliti er bara einhver lítilmagni, má koma fram við hann eða hana eins og mönnum sýnist. Stundum skammast maður sín fyrir að vera Íslendingur og það er akkúrat á þessari stundu.

Þorvaldur Þórsson (IP-tala skráð) 3.7.2008 kl. 22:28

12 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Á heimasíðu sinni segir Björn Bjarnason að Útlendingastofnun taki ákvarðanir án samráðs við dómsmálaráðuneytið. Ekki getur hann samt ætlað sér að þvo hendur sínar af málinu því hann segir í yfirlýsingu sinni sem birt er hér að ofan: "Dyflinarsamningurinn er einnig skýr og honum er beitt af aðildarríkjum hans. Að sjálfsögðu er ekkert ólögmætt eða athugavert að beita þeim samningi frekar en öðrum milliríkjasamningum." Það var með vísun til þessa samnings sem Paul Ramses var vísað úr landi þó lög segi að taka megi tillit til sérstakra aðstaðna. Ekki er hægt að skilja þessi orð Björns um að ekkert sé athugavert að beita Dyflinarsamningum öðru vísi en svo að  það sé heldur ekki í þessu tilviki. Þess vegna má fullyrða að Björn verji ákvörðun Útlendingastofnunar.  

Sigurður Þór Guðjónsson, 3.7.2008 kl. 23:25

13 identicon

Þakka þér fyrir góðan pistil.

Þetta er alveg ótrúleg grimmd og níðingsskapur gagnvart þessari fjölskyldu.  Það liggur við að ég vilji segja mig úr þessu þjóðfélagi sem styður svona stjórnunarhætti.

Við þegnar þessa lands eigum ekki að láta þetta líðast þegjandi og hljóðalaust - við verðum að gera eitthvað í þessu.  En hvað er best að gera?  Er einhver undirskriftalisti eða eitthvað svoleiðis í gangi sem maður getur skrifað sig á til að mótmæla þessu níðingsverki?  Eða virkar svoleiðis ekkert?  Auðvitað mætir maður í mótmælin á morgun.  En tekur þá ekki á móti manni hryðjuverkasveitin hans BB með GAS GAS GAS og hrekur okkur í burtu fyrir saklaus mótmæli?

Ég er hreinlega orðlaus yfir þessari mannvonsku.

Helga (IP-tala skráð) 4.7.2008 kl. 00:05

14 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Haukur Guðmundsson var bara að réttlæta sjálfan sig þegar hann sagði að eiginkonan væri hér ólöglega. Að því er best verður séð kom Paul Ramses til landsins lögega og sótti um hæli. Kona hans kom hingað líka löglega. En það eru margir mánuðir síðan. Útlendingastofnun dró hins vegar á langinn að afgreiða umsóknir þeirra og á meðan  runnu vegabréfsáritanir hjónanna út. Þetta er á bak við það að konan búi hér "ólöglega" og það á að réttlæta sundrungi fjölskuyldunnar.

Spurningin er: Ælta stjórnvöld að halda hlífiskildi yfir Hauki Guðmundssyni og lygum hans sem ræðst á þennan hátt að mannorði saklausrar og varnarlausrar manneskju? Fær hann  starfa eftir sem áður í skjóli stjórnvalda?  

Sigurður Þór Guðjónsson, 4.7.2008 kl. 00:19

15 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Varstu búin að sjá þetta Sigurður?

Jenný Anna Baldursdóttir, 4.7.2008 kl. 00:35

16 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Takk fyrir þetta Jenný. Eiríkur er að benda á það sem ýmsir hafa komið fram með áður en þetta er mjög viðeigandi árétting einmitt núna. Eins og ég er að reyna að koma orðum að eru einstaklingar á bak við þessar ákvarðanir. Það á að herja á þessa einstaklinga og fá þá til að breyta afstöðu sinni eða gera þá valdalausa ella.

Sigurður Þór Guðjónsson, 4.7.2008 kl. 00:44

17 identicon

Já þetta er hryllilegt mál og eins og þú segir Sigurður þá er það aumingjalegt að skýla sér á bak við það að það sé ekki lagabrot og samkvæmt öllum lögum að gera þetta. Einhvern ansk... móral verður fólk að hafa.

Í einu landi á fjórða og fimmta áratugnum fóru menn bara eftir lögum og tilskipunum og voru alsaklausir af því að hafa myrt milljónir manns.

Þeirra svar var líka; mér var þetta fyllilega leyfilegt eftir þeim lögum, reglum og tilskipunum sem giltu.

Jón Bragi (IP-tala skráð) 4.7.2008 kl. 04:25

18 Smámynd: corvus corax

Björn Bjarnason er skoffín af verstu sort. Ef þetta mál varðaði hann eða einhvern honum tengum á einhvern hátt fengi málið auðvitað allt aðra afgreiðslu ...kannski eftir nokkrar símahleranir og njósnir um náungann svo í stíl við upprunann. BB er fæddur inn í stjórnkerfið á Íslandi sem viðgengst aðeins í illa þokkuðum bananalýðveldum og á Íslandi auðvitað og þess vegna sitjum við uppi með skoffínið. Maðurinn er gjörsamlega óhæfur í embætti, siðblindur og sjálfum sér ósamkvæmur í öllu sem hann aðhefst. Þjóðin þarfnast þess að losna við skoffínið úr stjórnkerfinu og dýralæknisfífl ríkisstjórnarinnar þarf að fjúka líka.

corvus corax, 4.7.2008 kl. 08:19

19 Smámynd: Nanna Katrín Kristjánsdóttir

Hann vinnur allavega engar vinsældarkeppni enda búa blóðþyrstir menn eins og hann ekki að góðu karma.  Líklegast er hann einn óvænsælasti maður á íslandi í dag.

Nanna Katrín Kristjánsdóttir, 4.7.2008 kl. 10:58

20 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Hvað áttu við Villi geit? Þarf svo að gera upp við þig væni minn!

Sigurður Þór Guðjónsson, 4.7.2008 kl. 11:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband