Hvað varð af hitabylgjunni?

Það var verið að spá hitabylgju með kannski meira en 25 stiga hita þar sem hlýjast yrði. En nú er allur vindur farinn úr þessari bylgju. Þessum mikla hita er ekki lengur spáð. Hlýja loftið eins og gufaði að mestu leyti upp og það litla sem eftir var fór norður fyrir landið.

Þetta voru talsverð vonbrigði. Nú er bara ósköp venjulegt júlíveður í fremur hlýrri kantinum.

Ég er óhress með veðurspárnar. Þær voru algjört snuð. Og verst er að þær spár sem koma frá veðurspámönnum eru svo skrambi misvísandi hvað hitann snertir, munar mörgum stigum t.d. á spánum á veðursíðu Mbl.is sem ég held að séu örugglega komnar frá Veðurstofunni, hitanum á spáritaspánum á vef Veðurstofunnar með tilheyrandi kortum og töflum og svo á hitakortunum í lit á sama vef. Og loks er enn annað uppi á teningnum hjá spámönnum Ríkissjónvarpsins. Þarf þetta endilega að vera svona misvísandi hvað hitastigið varðar? Skýjahulan er líka misvísandi milli spáa.

Ég athugaði spárnar vel og bar þær saman þó ég nenni ekki að tíunda hvernig ég gerði það.

Ég var nefnilega þess albúinn að þeysa út  á land þar sem spáð var mestum hita sem aldrei gekk svo eftir. En ég hef engan áhuga fyrir að vera þarna í 15 stiga hita. Kikkið var hitabylgjan.

Já, ég er ekki sáttur við frammistöðu veðurspámannanna og sérstaklega að hitaspárnar skuli vera svona misvísandi.

  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

hitabylgjunni hefur verið frestað um ótiltekinn tíma. hún hætti við að koma hingað til lands því hér er alltaf svo kalt.

Brjánn Guðjónsson, 4.7.2008 kl. 18:59

2 identicon

já, það er ótrúlega heitt í þokunni hérna, skrítið veður á Blönduósi í dag. Ég er alveg hætt að taka mark á veðurspám einna helst að þær stemmi á ríkissjónvarpinu...stundum held ég að veðurfræðingarnir í dag séu bara að teikna einhverja línur blindandi...þetta fór hrakandi eftir að þeir gömlu hættu Trausti og Páll Bergþórsson og fleiri :) Ég lærði mikið af afa gamla um veður, hann var sjómaður.

Góða helgi.

alva (IP-tala skráð) 5.7.2008 kl. 00:48

3 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ekki tek ég nú undir það ekki sé hægt að taka mark á veðurspám en þetta misræmi milli spáa sem í boði eru frá sömu stofnun er eiginlega ólíðandi ef menn vilja reiða sig á spárnar. Í gær var Blönduós með hlýjustu stöðum landsins og hitinn fór þar í 22,0 stig.   

Sigurður Þór Guðjónsson, 5.7.2008 kl. 00:54

4 Smámynd: Svavar Alfreð Jónsson

Hvaðahvaða, hér er yfir tuttuga stiga hiti núna.

Alla vega þar sem ég er.

Inni.

Fækkar þá um einn kirkjugest á sunnudaginn?

Svavar Alfreð Jónsson, 5.7.2008 kl. 00:56

5 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Það verður ekki ljóst fyrr en á morgun. En boð munu út ganga og teikn munu gjörð verða á himni og líkamir hinna heilögu munu sjást á mörgum stöðum.

Sigurður Þór Guðjónsson, 5.7.2008 kl. 01:01

6 Smámynd: Svavar Alfreð Jónsson

Ég held þá sætinu þínu fráteknu eitthvað fram eftir degi og horfi til himins.

Svavar Alfreð Jónsson, 5.7.2008 kl. 01:11

7 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Takk fyrir góða grein í Lesbók Moggans í dag.

Ágúst H Bjarnason, 5.7.2008 kl. 08:41

8 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Takk fyrir þetta Ágúst. Ég varð að stytta greinina mikið vegna plássleysis í Lesbók og mikilvægur málflutningur fór þá forgörðum. En upprunalegu versjónina birti ég hér á bloggsíðunni eftir helgi.

Sigurður Þór Guðjónsson, 5.7.2008 kl. 09:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband