Rafræn dagbók um mótmæli og fleira

Það er sagt að bloggið sé "rafræn dagbók". Ég hef reyndar haldið handskrifaða dagbók síðan 3. maí 1962 en nú ætla ég að skrifa dagbók rafrænt fyrir þennan dag, so far.

Ég vaknaði hress og glaður og leit til veðurs. Það er alveg skítsæmilegt. Fór galvaskur að mótmæla í Skuggasundi í hádeginu. Þar voru ekki margir en það segir ekkert um hug þjóðarinnar til máls Páls Ramses. Mótmæli sem einstaklingar boða til eru alltaf fámenn. Það þarf félagasamtök eða einhverja hálf opinbera aðila til að fjölmenni fari að mótmæla. En þessi mótmæli hafa samt þýðingu langt framyfir fjöldann sem mætir á degi hverjum.

Stefán Pálsson flutti snjalla ræðu og sagði að Páll hafi átt í  höggi við atvinnumenn. Hugsa sér að hafa atvinnu af því að valda saklausu fólki þjáningum! Þráinn Bertelson talaði líka og sagðist hafa samvisku. Eva Hauksdóttir, norn, framdi að lokum magnaðan nornaseið.

Í dagókum eiga menn að vera persónulegir og hreinskilnir og helst ganga fram af lesendum. Þess vegna ætla ég að játa þann veikleika minn að hafa alltaf fundist Björn Bjarnason mjög áhugaverður maður. Það er eitthvað á bak við frontinn sem mér finnst merkilegt. Ég hef heldur aldrei vitað nokkurn mann sem horfir eins mikið á mig og hann. Meðan ég var að krítisera allt og alla sem tónlsitargagnrýnandi sá ég hann oft á tónleikum. Og hann horfði svo mikið á mig. Hvað var hann að pæla? Ég horfi á þá sem mér finnst vera eftirtektarverðir. Horfi framhjá hinum. Og ef einhver sýnir mér áhuga sýni ég honum áhuga. Þetta er alltaf gagnkvæmt. Spáðu í mig og ég spái í þig, sagði  Megas. 

Já, ég játa intressu mína í Birni Bjarnasyni. 

Well, en áfram með smérið og mótmælin. Þar voru ýmis stórmenni. Þar var Steingrímur J. Sigfússon og Mörður Árnason og Bjarni Harðarson. Allir voru þeir mjög alþingismannalegir. Bjarni er líka maður sem mér finnst eitthvað sjarmerandi við, þó ekki væri nema bókabúðin á Selfossi. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir var líka eins og drottning og var svo sjarmerandi að það leið næstum því yfir mig. En sú persóna sem sló alla aðra út í sjarmanum var tíkin Lúna sem var með húsbónda sínum, Stefáni Unnsteinssyni vini mínum.

Það er skítt hjá forsætisráðherra að segja það eitt að að í afgreiðslu máls Páls Rameses hafi í einu og öllu verið farið eftir lögum og reglum. Það er reyndar vafasamt af því að í lögunum er gert ráð fyrir mati á mannúðarsjónarmiðum. Það er ekki eithvað sem stendur utan við lögin. Afhverju átta menn sig ekki á þessu? Eru menn ekki læsir? En með þessum orðum er forsætisráðherra einfaldlega að leggja blessun sína yfir brottvísun Páls. Ekkert hafi verið athugavert við hana. Hvað æðstu ráðamenn eru alltaf sjálfum sér líkir.

Ég var að fá ímeil frá sjálfri Tótu pönkínu. Hún lætur vel af sér þó hún sé hætt að blögga. Hún kenndi mér að blogga og allt sem ég kann í blogstælum er stælt eftir henni og nú ég þykist sjálfur alltaf vera að hætta að blogga henni til samlætis en hætti samt aldrei. Ég held að bloggið sé uppfinning djöfulsins! Já, ég er að verða þæl trúaður í seinni tíð. Ég ætla að klára að blogga um veðrið í öllum mánuðum ársins. Svo hætti ég og sest í háhelgan stein.

Það skásta við bloggið er að það gefur hverjum bloggara færi á að sýna á sér ýmsar hliðar. Menn geta bloggað um alvarleg þjóðfélagsmál jafnt sem látið eins og fífl. 

Vel á minst. Frægur bloggari heimsótti mig í gær. Í dagbók eiga menn að vera hreinskilnir og ég vona að ég megi segja frá þessu. Þetta var hvorki meira né minna en hún Anna Karen. Hún var reyndar að skoða hann Mala fyrst og fremst. Enda er hann eitt af undrum veraldar. Frá því ég fékk Mala er hér stöðugt rennerí af aðdáendum og sumir koma með gæludýrin sín til að líta goðið augum. Áður kom hér aldrei nokkur maður eða nokkurt annað kvikindi.

Mjá, það held ég nú. 

Jæja, þá er þessari rafrænu dagbók lokið í bili og ég þarf að fara að undirbúa bloggfærslu um  sjóðheitustu júlímánuði.   

  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Áhugi þýðir ekki endilega velvild. 

Lára Hanna Einarsdóttir, 8.7.2008 kl. 17:53

2 Smámynd: Þorsteinn Briem

Bíbí hefur áhuga á Sigga og Anna Karen hefur áhuga á kettinum hans Sigga.

Og sjá! Það er fullkomnað!

Þorsteinn Briem, 8.7.2008 kl. 18:35

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

..það hafa verið þarna margar silkihúfur.

Ekki slæmt.

Jenný Anna Baldursdóttir, 8.7.2008 kl. 19:35

4 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

En ég svipaðist um eftir einni allra fínustu silkihúfunni. En hún hefur líklega verið heima að blogga!

Sigurður Þór Guðjónsson, 8.7.2008 kl. 19:47

5 identicon

jahá, síðan 3. maí 1962!!!

Ég verð nú að segja að mér fyndist svolítið " veird " ef starað væri  svona á mig og fylgst með mér, hvað þá á einhverjum tónleikum, nema ég væri að troða upp sko En ég sé ykkur BB þarna í anda, starandi á hvorn annan á miðjum tónleikum..

alva (IP-tala skráð) 8.7.2008 kl. 21:15

6 Smámynd: halkatla

mín fimmtán sekúndna frægð er löngu liðin sem betur fer, og þá get ég einmitt sinnt því betur að vera almennilegur Malaaðdáandi auðvitað fá menn ekki nóg af skottinu hans Mala.

halkatla, 8.7.2008 kl. 22:12

7 Smámynd: halkatla

horfst í augu við BB! ekki frýnileg tilhugsun!

halkatla, 8.7.2008 kl. 22:13

8 identicon

Ráðamenn munu ekki viðurkenna mistök í máli Paul Ramses fyrr en í fulla hnefana - þeir munu neita því þar til þeir verða helbláir í framan.  (sumir þeirra eru m.a.s. nú þegar komnir með bláar hendur - eða eigum við að segja bláar krumlur).  Ég ætla allavega að vona að þessi málsmeðferð hafi fremur verið mistök og hugsunarleysi heldur en hrein og klár mannvonska.

Annars erum við virkilega í vondum málum hérna á Klakanum.  Verri en ég hélt.

Setjast í helgan stein?!  Þú ferð nú ekki að gera honum Mala það að hætta að blogga um hann.  Hann sem er mesta gáfuketti landsins!  Rödd hans verður að heyrast.  Við erum mörg hérna úti sem treystum á fregnir af honum reglulega.

Helga (IP-tala skráð) 9.7.2008 kl. 01:00

9 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Kannski að ég setjist þá bara í vanhelgan stein.

Sigurður Þór Guðjónsson, 9.7.2008 kl. 01:13

10 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Þetta var aldeilis skemmtileg dagbókarfærsla hjá þér þó hún væri rafræn. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 9.7.2008 kl. 01:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband