Hvar eru nú blessuð gróðurhúsaáhrifin?

Allt á kafi í snjó á Bretlandi! Strætisvagnar hættir að ganga! Fólk skelfur úr kulda!

Kreppan hremmir þjóðina!

Já, hvar eru nú blessuð gróðurhúsaáhrifin!?

Engir mega svara nema þeir sem gríðarlegt vit hafa á!

Tounge


mbl.is Seinkun á flugi til London
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Þau eru suður í Ástralíu:

„More than 20 people have died from the heat, mainly in Adelaide. Trees in Melbourne's parks are dropping leaves to survive, and residents at one of the city's nursing homes have started putting their clothes in the freezer.“ (independent.co.uk, 1.feb.09)

Emil Hannes Valgeirsson, 2.2.2009 kl. 12:55

2 identicon

Þetta eru nákvæmlega gróðurhúsaáhrifin.

Þau þurfa ekki að valda því að það hlýni allsstaðar heldur að það hlýni á köldum stöðum en botnfrjósi jafnvel þar sem fólk hefur aldrei séð snjó.

Þetta eru því gróðurhúsaáhrifin í öllu sínu veldi.

Arnar (IP-tala skráð) 2.2.2009 kl. 13:00

3 identicon

Global warming er ekkert annað en enn eitt tólið hjá elitustum til að skattleggja fólkið meira.

Ef það á að vera hlína þá er það útaf sólinni en ekki útaf cO2....

Hættu svo að trúa þessu öllu bulli sem fjölmiðlar setja í hausinn á þér

Halldór (IP-tala skráð) 2.2.2009 kl. 13:22

4 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Fleiri gríðarleg álit?

Sigurður Þór Guðjónsson, 2.2.2009 kl. 13:41

5 identicon

Það er það dásamlega við kenninguna um gróðurhúsaáhrif af mannavöldum að hægt er að benda á hvaða veðurfyrirbæri sem er sem afleiðingu. Kuldi, hiti, ofankoma, þurrkar o.s.frv.,allt er sagt styðja og jafnvel sanna kenninguna.
Kenningin fellur nefnilega ekki undir venjulegar skilgreiningar á vísidakenningum sem kveða á um að fræðilega eigi að vera hægt að afsanna þær. Slíkt er ekki mögulegt með umrædda kenningu þar sem hvaða niðurstaða sem er, er talin styðja hana.
Það sýnir einfaldlega fram á að svo lítið er vitað um þáu öfl sem stjórna veðurfari á jörðinni að ekki er hægt að slá neinu föstu um hvað veldur breytingum.

Hörður (IP-tala skráð) 2.2.2009 kl. 13:47

6 identicon

Þú ert nú meiri stríðnispúkinn!

Malína (IP-tala skráð) 2.2.2009 kl. 19:07

7 identicon

Hlýindin eru að gera út af við Grænlendinga en frosthörkur herja á Breta. En það er auðvitað mjög þægilegt að afneita því að við berum einhverja ábyrgð á þessu. Það er líka ósköp þægilegt fyrir Sjálfstæðismenn að afneita því að flokkurinn beri nokkra ábyrgð á bankahruninu.

Eva Hauksdóttir (IP-tala skráð) 2.2.2009 kl. 19:57

8 Smámynd: Guðbjörn Guðbjörnsson

Það hafa skipst á skin og skúrir um allan um aldaraðir og það sanna borkjarnar úr jöklum og árhringir trjáa.

Síðasti vetur og þessi vetur minna mig á veturna þegar ég var lítill fyrir 35-40 árum.

Það er heill "rannsóknariðnaður" til meðal fræðimanna í veðurfærði, líffræði, lífeðlisfræði, jöklafræði og hvað þessar fræðigreinar nú allar heita, sem berst um fjárframlög til rannsókna á þessu fyrirbæri - gróðurhúsaáhrifin.

Þegar ég var lítill var það aðallega tvennt sem hélt fyrir mér vöku: kólnun jarðar og kjarnorkuógnin. Kjarnorkuógnin var og er í raun enn raunveruleg, en maðurinn tók sig þó til og minnkaði hættuna af þeirri ógn. Hvað "kólnun jarðar" varðar, reyndist það þvættingur einn, sem þúsundir ef ekki tugþúsundir vísindamanna rannsökuðu og höfðu góð laun af um áratuga skeið. Nú eru sömu vísindamenn og nemendur þeirra að rannsaka hitnun heimsins.

Áður en ég gef upp öndin - sem verður vonandi fyrst eftir svona 40 ár -  verða vísindamennirnir hins vegar að hafa ákveðið sig, hvort heimurinn er að hitna eða kólna, hvort ég drepst úr hita eða kulda!

Guðbjörn Guðbjörnsson, 2.2.2009 kl. 22:22

9 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Eftirfarandi er lagt í munn þeim sem hagnast á gróðurhúsaáhrifum: 

"Global warming is unsatisfactory because whenever there is a cold snap, people forget about it.  So what you need is to structure the information so that whatever kind of weather occurs, it always confirms your message.  It enables you to use everything that happens.  There will always be floods, and freezing storms, and cyclones, and hurricanes.  And in every instance, you can claim it is an example of abrupt climate change caused by global warming."

Á meðan vísindamenn eru óákveðnir má spila með almúgann...

Kolbrún Hilmars, 3.2.2009 kl. 00:13

10 identicon

Lagt þeim í munn? Hverskonar eiginlega umræða er þetta? Komdu með eitthvað sem þeir hafa raunverulega sagt.

Eva Hauksdóttir (IP-tala skráð) 3.2.2009 kl. 09:17

11 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Já, hvers konar umræða er þetta eiginlega? Það er ekki neitt nýtt að á sama tíma séu hlýindi á Grænlandi og kuldar á Bretlandi og stundum er sama orsök fyrir hvoru tveggja. Stakir veðuratburðir segja lítið um gróðurhúsaáhrifin. Langtíma breytt mynstur getur aftur á móti gert það. Það sem er einna hvimleiðast við loftslagsumræðuna er það að endalaust eru stakir veðuratburðir, kuldakast þarna, hitabylgja þarna, þurrkar þar og flóð þar, notaðir af einstaklingum og fjölmiðlum, án frekari tenginga, með eða á móti gróurhúsaáhrifunum.

Sigurður Þór Guðjónsson, 3.2.2009 kl. 09:28

12 Smámynd: Hörður Þórðarson

"Það er ekki neitt nýtt að á sama tíma séu hlýindi á Grænlandi og kuldar á Bretlandi og stundum er sama orsök fyrir hvoru tveggja. Stakir veðuratburðir segja lítið um gróðurhúsaáhrifin."

Orsökin er venjulega hæð á miðju Atlantshafi. Þú hefur lög að mæla Sigurður, og takk fyrir þitt skemmtilega blogg. 

Hörður Þórðarson, 3.2.2009 kl. 09:58

13 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Já, þakka þér fyrir Hörður og fyrirgefðu hvað ég var óþarflega snöggur upp á lagið þegar ég kom inn á bloggið þitt um daginn. Það hitnar stundum i heilasellunum í sjóðheitu gróðurhúsinu!

Sigurður Þór Guðjónsson, 3.2.2009 kl. 10:33

14 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Burtséð frá gróðurhúsaáhrifunum sem eg ætla ekki að deila um hér - þá er þetta ekkert mikill snjór í London.  Í minni sveit hefði þetta líklega verið kallað "smá föl":

http://www.youtube.com/watch?v=y-9ncOxc1ww

Þeir eru ekki undirbúnir að snjór falli og þessvegna fer alt úr skorðum (sínist mér í fljótu bragði)

Ómar Bjarki Kristjánsson, 3.2.2009 kl. 10:50

15 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Þar sem verið er að fjalla um veðrið á Grænlandi, Íslandi, Englandi, Ástralíu og víðar...

Trúboðinn Hans Egede var í Grænlandi á átjándu öld og hélt dagbók og skrifaði meðal annars eftirfarandi: "Allir vetur í Grænlandi eru harðir, en þó ekki eins. Danir hafa tekið eftir því, að þegar vetur er harður í Danmörku, þá er hann mildur í Grænlandi, og öfugt." 

Hann hefur verð glöggur karlinn sá. Hann hafði þó ekki áhyggjur af gróðurhúsaáhrifum, enda var þetta á tímum Litlu ísaldarinnar.

Sigurður spyr hvar blessuð gróðurhúsaáhrifin séu. Það er full ástæða til að blessa þessa guðsgjöf sem færir okkur hlýju og yl svo um munar. Hvar værum við stödd ef gróðurhúsaáhrifanna góðu nyti ekki við?

Því er fljótsvarað. Við værum ekki hér, svo mikið er víst. Gróðurhúsaáhrifin gera jörðina byggilega með því að hækka meðalhita lofthjúpsins um heilar 33 gráður, úr mínus 18 gráðum í plús 15 gráður. Þetta eru hin náttúrulegu gróðurhúsaáhrif.  Blessuð séu þau að eilífu. 

Ágúst H Bjarnason, 3.2.2009 kl. 13:11

16 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Ég þori ekki að segja orð, hef ekkert vit á neinu... 

Lára Hanna Einarsdóttir, 4.2.2009 kl. 12:38

17 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Meiri vitleysan alltaf í þér!

Sigurður Þór Guðjónsson, 4.2.2009 kl. 12:49

18 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Jamm... 

Lára Hanna Einarsdóttir, 4.2.2009 kl. 13:13

19 Smámynd: Eiður Ragnarsson

Það eru einhverjar vangaveltur um þetta hér....

http://www.garagetv.be/video-galerij/blancostemrecht/The_Great_Global_Warming_Swindle_Documentary_Film.aspx

Eiður Ragnarsson, 6.2.2009 kl. 08:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband