Hvers vegna

Hvernig stendur á því að upplýsingar um það að stjórnmálamenn úr flestum flokkum hafi fengið óeðlilega fyrirgreiðslu úr bönkum eru ekki aðal umfjöllunarefni allra fjölmiðla?

Þetta er svo svívirðilegt að ekki er hægt að horfa framhjá því.

Það er ekki að furða þó margir ætli að skila auðu. 

En landinu verða einhverjir að stjórna og það að skila auðu hefur engin áhrif á það hverjir það munu gera.

Menn verða að sýna ábyrgð á viðsjárverðum tímum. Kjósa það sem þeir telja skásta kostinn í vondri stöðu.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hjartanlega sammála þessu, þetta vekur furðu en íslenskir fréttasnápar eru svo arfa lélegir. Af hverju er ekki verið að sauma að stjórnmálamönnunum varðandi stuðning stórfyrirtækja við þeirra framboð eins og fram hefur komið nú á dögunum!

Haraldur Aðalbjörn Haraldsson (IP-tala skráð) 22.4.2009 kl. 10:41

2 identicon

"En landinu verða einhverjir að stjórna og það að skila auðu hefur engin áhrif á það hverjir það munu gera."

Alveg sammála!  Ég skil vel fólk sem er vonsvikið og hneykslað og vill skila auðu - ég var lengi að hugsa um að gera það sama sjálf.  En geri maður það þá er í rauninni verið að láta aðra um að ákveða það fyrir sig hverjir koma til með að stjórna landinu - maður hefur engin áhrif á það sjálfur.  Auðir atkvæðaseðlar breyta ekkert hlutfalli hinna atkvæðanna.  Þeir eru bara "statement" en hafa engin áhrif á úrslit kosninganna.

Mér finnst ég ekki lengur geta kosið þann flokk sem ég hef kosið undanfarinn áratug - né neinn hinna gömlu flokkanna.  Því mun ég fremur setja mitt X við O í stað þess að skila auðu.

KosningasMalína (IP-tala skráð) 22.4.2009 kl. 17:07

3 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Var það ekki einhver ólukkans kommatittsflokkurinn sem þú kaust í áratug Malína?

Sigurður Þór Guðjónsson, 22.4.2009 kl. 17:31

4 identicon

Tja, það er svosem ekkert leyndarmál.  Ég hef kosið Samfylkinguna - aðallega vegna félagshyggju-, kvenfrelsis- og Evrópumálanna.  Þetta hefur hingað til verið eini valkosturinn fyrir okkur Evrópusambandssinnana - sem sumir kalla landráðafólk!

Samfylkingin sveik hins vegar okkur kjósendur sína og breyttist í hálfgerðan Frjálshyggjuflokk eftir kosningarnar 2007 - varð bara dindill með FLokknum.  Ég treysti þeim ekki til að gera ekki slíkt hið sama eftir þessar kosningar, þótt þau segi eitthvað annað núna fyrir kosningar...

KosningasMalína (IP-tala skráð) 22.4.2009 kl. 18:18

5 identicon

Ætla þjóðrembupúkarnir og vaðmálsliðið í sauðskinnsskónum að skrá sig hérna?:  http://osammala.is/

 

KosningasMalína (IP-tala skráð) 22.4.2009 kl. 22:12

6 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Nimbus og Mali er hátt yfir alla flokkadrætti hafnir.

Sigurður Þór Guðjónsson, 22.4.2009 kl. 22:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband