Meira um Breiðavík - og sitthvað fleira

Það er frábært af Ingibjörgu Sólrúnu að taka Breiðavíkurmálið upp á Alþingi og Vilhjálmi borgarstjóra að bregðast líka strax við. Svo sjáum við hvað setur. Öllum er hrikalega  brugðið. Og að sjá Lalla Johns gráta er eitthvað sem enginn getur gleymt.

Eins og ég hef nefnt hér á síðunni hefur ástandið í Breiðavík áður verið dregið fram, ekki aðeins í gömlum skýrslum og blaðafrásögnum, heldur líka í bókinni "Staddu þig drengur" eftir Stefán Unnsteinsson sem kom út árið 1980. En það er eins og þjóðin hafi ekki treyst sér til að gera upp við þessa atburði fyrr en núna.

En víkjum nú að öðru hitamáli. Hádegisviðtalið á Stöð tvö í gær við Harald Ólafsson var mjög merkilegt. Þar var ekki aðeins farið í nýjustu skýrslu loftslagsnefndar Sameinuðu þjóðanna um gróðurhúsáhrifin heldur líka sagt frá könnun Haraldar og nemenda hans á breytingum á veðurfarinu sem vænst er á okkar eigin landi.

Hitna mun meira inn til landsins en við strendur og kemur það ekki á óvart. En kannski meira það að vetur eru ekki taldir hlýna sérlega mikið  og heldur ekki sumarið en hins vegar vorin og haustin. Þetta þýðir lengri sumur. Ástæðan fyrir tiltölulega lítilli vetrarhlýunun felst í því að búist er við aukinni norðanátt á vetrum. Og ástæðan fyrir því er aftur sú að draga mun úr sunnanátt  með lægðagangi á vetrum en þær eiga fyrst og fremst uppruna sinn í kuldanum, eða mismun kulda og hita, þegar kuldinn minnkar og hitinn eykst, minnka andstæðurnar og fóðrið fyrir lægðir með suðrænt loft. Hins vegar var sagt að norðanveður munu verða jafnvel enn harðari en áður og meiri úrkoma að vetrarlagi fyrir norðan en þá bjart og þurrt fyrir sunnan eins og gerist vanalega við slíkar aðstæður. Snjór mun þá væntanlega aukast til fjalla og jafnvel í sumum snjóasveitum fyrir norðan.

En norðanáttinn hlýtur að verða nokkru hlýrri en hún hefur lengst af verið vegna hlýnunar sjálfs lofthjúpsins og þá ekki síst á norðlægum slóðum.

Gaman væri að vita eitthvað meira um þessar rannsóknir. 

Nú er skammdegið áreiðanlega búið. Í gær skein sólin í 6 klukkustundir og 18 mínútur og ekki skinið lengur síðan 29. október og ekki mun hún skína minna í dag blessunin.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigríður Laufey Einarsdóttir

Góða kvöldið. Loksins hitti formaður Samfylgingarinnar beint í mark í málefnum þeirra sem minna mega sín. Ekki var nú frumkvæðinu fyrir að fara en gat ekki annað en dansað með öllum hinum. (Steinunn Valdís hefur sýnt meira frumkvæði með launahækkun sinni til þeirra lægstu þegar hún var borgarstjóri)

Ingibjörg hefði átt að sinna jafnaðarstefnunni betur, taka forystuna í þessu tortryggilega liði sínu (þingmönnum) að eigin sögn. Allir eiga rétt á því að bæta sig. Það er bara svo erfitt fyrir Ingibjörgu Sólrúnu að taka forystunar og bæta sig því hún er alltaf að skjóta sjálfa sig í fæturna. Hefur fengið sín tækifæri í pólitíkinni en ekki endalaust.

Segi ekki að hún eigi að fara "á bak eldavélina með okkur Guðna Ágústssyni "

Hún gæri orðið óperustjóri í væantlegri tónlistarhöll?

Sigríður Laufey Einarsdóttir, 6.2.2007 kl. 20:28

2 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Mér finnst skammdegið vera búið í lok febrúar og í apríl er vorið handan við hornið.
Ég elska vorið með sínu nýútsprungnu ljósgrænu laufblöð á trjám og runnum.

Svava frá Strandbergi , 6.2.2007 kl. 22:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband