Brjótum niður tónlistarhúsið

Bygging Tónlistarhússins er í uppnámi. Það er þarna ægilega ljótt og hálfkarað.

En engir peningar eru til svo hægt verði að klára það. Menn eru í stökustu vandræðum með framhaldið.

Ég hef séð húsið á líkani og það er út af fyrir sig flott og fallegt. En á þessum stað finnst mér það alveg hörmung. Ég fæ nú bara innilokunarkennd þegar ég er við höfnina þar sem sást alltaf til fjalla áður en þetta hús fór að kæfa allt. Ekki líst mér heldur á þetta pírumpár sem á að tengja húsið við meintan miðbæ sem enginn hefur þó verið áratugum saman.

Skiptar skoðanir eru meðal tónlistarmanna um húsið. Þeir eru alls ekki allir gapandi af eftirvæntingu. Sagt er að vanti einmitt þá stærð tónleikasala sem mest eru notaðir. 

Auk þess fælir frá þetta ráðstefnuflipp og hólelbissness sem er inni í dæminu. Eitthvað svona góðærisstórubólulegt sem ekkert kemur tónlist við. Enginn hefur heldur áhuga á músik varðandi þetta hús þó það hafi verið markmiðið að halda þar tónleika. Nú ræða menn bara hvað framkvæmdir við húsið geta fært mörgum atvinnu. Enginn minnist á tónlist. Menningarleg hugsun dó út í  henni stórubólu.   

Tónlist er reyndar það sem mér finnst mest gaman af í lífinu - fyrir utan gott veður. 

Eigi að síður sé ég bara eitt ráð með þetta tónlistarhús til að forða meira veseni en orðið er. 

Brjótum það niður með öflugum múrbrjótum! Svo ekki standi steinn yfir steini. 

P.S. Ljóta svarta seðlabankahúsið má gjarna fylgja með.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Baldur Kristjánsson

Sammála þessu með tónlistina - og ljótt er það!  Kv. B

Baldur Kristjánsson, 6.2.2009 kl. 19:41

2 identicon

Þetta er minnisvarði um allt brjálæðið. Kofinn fer líklega upp á endanum en hvenær? Ég er sammála því að hann á ekkert skylt við músík einungis afvegaleitt ríkisbákn.

tja 

sandkassi (IP-tala skráð) 6.2.2009 kl. 22:04

3 Smámynd: Sigurbjörn Sveinsson

Þið eruð á villigötum bræður. Það er e-ð sem blindar ykkur. Ekki trúi ég þið séuð í hefndarhug. Margir sjá í tónlistarhúsinu tákngerving spillingarinnar og efnishyggjunnar. Það má vel vera að lagt hafi veið upp með e-ð þess háttar í farteskinu. Það yrði ekki fyrsta byggingin í henni veröld, sem rynni úr slíkum jarðvegi. Sumt fær aðra niðurstöðu en lagt er upp með. Ég hef heyrt um það sögur að andlausir pokaprestar hafi orðið til þess að menn snerust til trúar.

Tónlistarhúsið verður menningarauki án nokkurs vafa. Hverjar sem hvatirnar voru sem réðu upphafi þess, þá verður það til góðs ef rétt verður á haldið. Sinfóníuhljómsveitinni verður ekki boðið lengurupp á l að leika í Háskólabíói. Þeir, sem voru á tónleikum þar í gærkvöldi skynjuðu hvers hún er megnug og hvers virði hún er. 

Flestir Íslendingar kannast við sal tónlistarfélagsins í Vínarborg, þar sem nýjárstónleikarnir eru teknir upp fyrir sjónvarp. Hann tekur um 2000 manns og var byggður á 19. öld. Það er mér ógleymanlegt, þegar faðir minn heimsótti mig vestur í Bbúðardal vorið 1981 eftir að hafa leikið á tónleikum með Sinfóníuhljómsveit Íslands í þessum sal skömmu áður. Hann hafði þá leikið með sinfóníuhljómsveitinni í rúm 30 ár, þar af 20 í Háskólabíói.

Þetta er í fyrsta skipti sem ég fæ að heyra hvað við erum góð hljómsveit, sagði hann.

Þetta eru að sínu leyti dapurleg örlög fyrir listamann og engum öðrum óskandi, þegar svo stutt er í mark.

Sigurbjörn Sveinsson, 6.2.2009 kl. 23:32

4 Smámynd: Jón Arnar

hafiði efni á að rífa það  - þið vinnið jú fljótlega eurovision svo einhvert tjald verður að vera yfir þá iðju 

Jón Arnar, 7.2.2009 kl. 00:13

5 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Skoðun mín á tónlistarhúsinu á þessum stað er miklu eldri en kreppan. Ég hef ekkert á móti tónlistarhúsi en ekki á þessum stað. Annars var ég búinn að gleyma evróvísjón. Við vinnum hana náttúrlega og það verður algjör réttlæting fyrir húsinu! 

Sigurður Þór Guðjónsson, 7.2.2009 kl. 00:22

6 Smámynd: Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson

Við lifum ekki af brauðinu einu saman, segir á góðum stað. Þó að núna kreppi að þá varir hún ekki að eilífiu blessuð kreppan. Ég tel reyndar að við eigum bara að blessa kreppuna og líka hlæja að henni, nota húmorinn eins og Lord Buckley lagði til að hlegið yrði að atómsprengjunni. Jæja, kreppan er allavegana léttvægari en Sprengjan.

Hvað er búið að byggja margar fótboltahallir (yfirbyggðir fótboltavellir í fullri stærð) - verslunarmiðstöðvar og reiðhallir í hvern landsfjórðung - á meðan við býðum prúð eftir tónlistarhúsi, nei - nú er nóg komið af afturhaldslegu niðurbrjótandi rugli.  Ég vona að það takist að halda áfram smíðinni, þó við þurfum að hægja á framkvæmdinni, óþarfi að halda sig við áætlaðan vígsludag. Það er gömul og ný saga hér á landi (og víðar) að stórbyggingar eru umdeildar, en ég þekki einnig fólk sem hét því að fara aldrei Hvalfjarðargöngin. Tel að fáir hafi staðið við þá heitstrengingu.

Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson, 7.2.2009 kl. 00:23

7 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Æ, hvað ég er eitthvað sammála þér. Sérstaklega þessu með útsýnið og innilokunarkenndina.

Lára Hanna Einarsdóttir, 7.2.2009 kl. 00:26

8 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Nú fyrst er ég að komast í niðurbrjótandi stuð! Ég vil líka endilega brjóta niður þessa fáránlegu Egilshöll - þar sem ég heyrði reyndar Placido Domingo syngja og  Laugardalshöllina þar sem ég heyrði Pavarotti syngja. Sprengjum þetta allt í tætlur! 

Sigurður Þór Guðjónsson, 7.2.2009 kl. 00:44

9 identicon

Talandi um góðærisstórubólu (helvíti skemmtilegt nýyrði!):  Geturðu ekki líka sprengt upp ofvöxnu glerhöllina sem verið er að reisa við Borgartúnið í leiðinni - svona fyrst þú ert byrjaður á annað borð?  Það er hús sem fer virkilega í mínar ofurnæmu taugar.  Ugh. 

Ég yrði þér ævinlega þakklát...

Malína (IP-tala skráð) 7.2.2009 kl. 01:00

10 identicon

Nú erum við að tala saman Siggi, er það ekki bara slaghamarinn og kúbeinið í hádeginu á morgunn?

Alveg sammála stútum þessu bara!! Fáum útsýnið til baka.

sandkassi (IP-tala skráð) 7.2.2009 kl. 01:18

11 Smámynd: Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson

Ha,ha - já flottur á því, bara brjóta þetta allt. Eitthvað mun rísa upp úr rústunum.

Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson, 7.2.2009 kl. 03:01

12 identicon

já í alvöru, auðvitað þarf gott húsnæði undir þessa hljómsveit. En þessi ósköp, nei.

Nú er ekkert annað en að ganga þannig frá húsinu að það verði ekki fyrir skemmdum.

Kannski hefst þetta á álíka löngum tíma og tók að byggja Hallgrímskirkju og vonandi verður aðeins minna reverb.

sandkassi (IP-tala skráð) 7.2.2009 kl. 03:16

13 Smámynd: Jón Þór Benediktsson

Er ekki allt í lagi með ykkur?
 Við eigum að nota tónlistarhúsið til að halda uppi atvinnustiginu það er þannig þjóðhagslega hagkvæmt að halda áfram og ríki og borg eiga að sameinast um að klára það. Okkur vantar atvinnu fyrir hátt í 10 % þjóðarinnar og veitir ekki af svona verkefnum. Menn á launum borga skatta til þjóðarinnar. Tónlistarhúsið í Reykjavík er ekki eingöngu undir eina hljómsveit. Held að meinhornið í nefinu á ykkur sé farið að stækka einum of mikið!

Jón Þór Benediktsson, 7.2.2009 kl. 10:52

14 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Það er allt í lagi með okkur Jón Þór en augljóslega erum við farnir að gantast þegr líður á athugasemdirnar. En ég er algjörlega ósammála þér, ein og reyndar sést á fræslunni ef hún er lesin með athygli, að vi eigum að nota tónlistarhúsið ''til að halda uppi atvinnustiginu'' af því að okkur vantar vinnu. Slíkt getur auðvitað komið sér vel sem fylgihlutur þess að byggja tónlistarhús en ef við byggjum það á það að vera vegna þess að okkur vanti tónlistarhus. Það er markmiðið með byggingu þessa hús að þar verði tónleikar. Við eigum að nota það til þess og þess vegna er það byggt. Grunntónninn í færslu minni sem er mikið háði blandin og ekki ber að taka alveg bókstaflega er einmitt að setja út á þann hugsunarhátt að í umræðu síðustu daga hafa efnahagsleg-og atvinnuleg sjónarmiði verið allsráðandi en hreinlega ekki minnst á tónlistina - sem er markmið og tilgangur hússins.

Sigurður Þór Guðjónsson, 7.2.2009 kl. 11:20

15 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Við ættum að reyna að klára tónlistarhúsið með einhverjum hætti. En það var sem betur fer ekki byrjað á öllum þeim húsabáknum sem áttu að reisa þar allt í kring (fjármálamiðstöð, hótel og Landsbanka). Mér finnst að það mætti skoða að hleypa vatni í risastóra grunnin sem búið er að grafa þarna fyrir húsunum þannig að Tónlistarhúsið standi sem nokkurskonar eyja með tilheyrandi göngubrúm og fíneríi.

Emil Hannes Valgeirsson, 7.2.2009 kl. 11:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband