Í nótt mældist frost í Reykjavík í fyrsta sinn síðan 7. janúar. Þíðukaflinn var því 21 dagur og er sá lengsti sem komið hefur í janúar frá því Veðurstofan var stofnuð 1920.
Vetur á Íslandi er talinn vera mánuðina desember til mars.
Fyrir kemur að langir þíðukaflar í desember hafi byrjað í nóvember og sömuleiðis er það þekkt að frostlausir kaflar í mars haldi áfram fram í apríl.
Frá því Veðurstofan var stofnuð eru lengstu samfelldu þíðukaflarnir í vetrarmánuðunum þessir:
40 dagar, frá 17. nóvember til 26. desember 2002. Kannski er þetta svindl af því að svo stór kafli frostleysunnar var í nóvember en í það minnsta eru þíðudagarnir í desember 26 sem út af fyrir sig er líka met!
26 dagar, 9. mars til 4. apríl 1923.
25 dagar, 7.-31. mars 1929; 18. nóvember til 12. desember 1933; 30. nóvember til 24. desember 1987.
22 dagar, 7.-28. febrúar 1964.
21 dagur, 7.-28. janúar 2010.
20 dagar, 1-20 mars. 1964.
Veturinn 1847 var mjög afbrigðilega hlýr. Þá voru gerðar hitamælingar í Reykjavík. Þær eru kannski ekki sambærilegar við nýrri mælingar en ekki var þá skráð frost alveg frá 23. febrúar til 30. mars eða í 36 daga.
Frá stofnun Veðurstofunnar er hægt að telja 76 frostlausa kafla að vetrarlagi sem staðið hafa 10 daga eða meira. Tíu daga vetrarhlákur eru því tiltölulega algengt fyrirbæri. Af þessum eru 15 á þeim áratug sem enn er ekki liðinn og hafa aldrei verið fleiri á áratug en 12 voru þeir árin 1932-1941. Á árunum 1949 til 1958 voru þessir kaflar aðeins tveir.
Á fylgiskjalinu má sjá alla þessa þíðukafla að vetrarlagi í Reykjavík frá árinu 1920.
Lengst til vinstri er ártalið en síðan kemur fjöldi daga hvers hlákukafla, síðan þeir mánuðir sem þeir falla á og eru þeir stundum tveir eins og gefur að skilja, loks koma dagsetningarnar, þegar þær eru tvær á sú fyrri auðvitað við mánuðinn sem hlákan byrjar í en en hin síðari þegar hún endar. Árið 1921 t.d. byrjar hlákan sem sagt í 11 mánuði, nóvember, þ. 26, en lýkur í 12. mánuði, desember, þ. 12. Árið 1923 er öll hlákan í sama mánuði, febrúar, og eiga því dagsetningarnar aðeins við hann. Og svo framvegis.
Flokkur: Veðurfar | 29.1.2010 | 17:31 (breytt 10.4.2010 kl. 12:47) | Facebook
Færsluflokkar
- Allt í plati
- Blogg
- Bloggar
- Bækur
- Efnisyfirlit um veður
- Ég
- Guð sé oss næstur
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hlýustu og köldustu mánuðir
- Íslensk veðurmet
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Mali
- Mannlífið
- Mánaðarvöktun veðurs
- Menning og listir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Veðurfar
- Veður í annálum og öðrum gömlum heimildum
- Veður um allan heim
- Vísindi og fræði
Tenglar
Blogg
Ýmsir vefir
- Gjósandi eldfjöll
- Kantötur Bachs
- Schubert
- Stjörnuskoðun
- Nótnasafnið
- Torfusamtökin
- Lilta-Ávík
- Blogggáttin
- Doctor E
Blogg
Síður
- Sólarminnstu júlímánuðir
- Þíðukaflar að vetrarlagi í Reykjavík
- Jóla og áramótaveðrið frá 1880
- Sólrík sumur og sólarsnauð
- Sólskin á Íslandi
- Hámarkshiti á landinu um verslunarmannahelgina frá 1949 og veðrið í Reykjavík
- Slær júlí hitamet í Reykjavík
- Óvenju hlý júlíbyrjun
- Nokkrir kaldir janúarmánuðir og kuldadagar
- Hret og snjóar í ágúst
- [ Fleiri fastar síður ]
Eldri færslur
- Mars 2023
- Ágúst 2019
- Desember 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Desember 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Athugasemdir
Það er nefnilega það. Janúar og desember 1987 eru eiginlega fyrstu alvöru hlýindamánuðirnir sem ég man eftir að vetralagi enda höfðu þá slíkir mánuðir ekki komið lengi.
Emil Hannes Valgeirsson, 30.1.2010 kl. 00:26