Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2007

Rúsínan í pylsuendanum

Í vorblíðunni í dag fór ég fyrst á einn mikilvægan fund. Flestir voru þó hálfvitar einir sem þar funduðu. En það dró úr einstæðingsskap mínum að þar var líka fallegasta kona í heimi og vissi vel af því. Hún gerði sig mjög breiða en þó ekki nándar nærri því eins breiða og ég gerði mig hér á blogginu í gær.

Ég vona að ég móðgi engan, allra síst femínista eða kommúnista, þó ég ljóstri upp um hinn óttalega leyndardóm míns hjarta: Álit mitt á konum fer aðeins eftir einu: Eru þær sætar eða eru þær ljótar.

Það er voða gaman af sætum konum. En ég geri mitt besta til að umbera ljótar konur.

Ó, já, sannleikurinn mun gera yður frjálsa.  

Skyldi ljóta fólkið annars hafa nokkra sál. Það get ég ekki ímyndað mér. Ekki hef ég sál.

Seinna þennan blessaða dag álpaðist ég á Kaffi Mílanó með kunningja mínum. Við ræddum um hrellingar mannkynsins sem eru með mesta móti um þessar mundir.  Og við vorum á einu máli um það að svona geti þetta bara ekki gengið öllu lengur. Komu þá ekki að borðinu okkar engir aðrir en  Sveinn Rúnar Hauksson palestínuskæruliði og hans ektakvinna og bloggari  Björk Vilhelmsdóttir. Þau töldu einsýnt að hörmungum mannkynsins muni ekki linna meðan  Framsóknarflokkurinn væri enn við lýði. Þessi orð þeirra geymi ég í hjarta mínu og mun íhuga þau kvölds og morgna.

Ótrúleg drusla er þessi landlæknir annars. Hann er algjör draumaprins svona skítafyrirtækis eins og Impreglio. Hann bara klappar þeim á kollinn fyrir óumdeilanlegt lögbrot og brot á virðngu og réttindum sjúklinga. Fuck him!

Og svo er það hin sæta rúsína í bloggpylsuendanum: 

Tvö eftirlegukindahitamet í apríl voru sett í dag á veðurstöðvum sem hafa langa og hretviðrasama mælingasögu. Á Grímsstöðum á Fjöllum fauk metið frá í gær. Hitinn komst þar í dag í 19.8 stig (hugsa sér að hiti vippi sér í 20 stig í apríl uppi á fjöllum). Og á Hæli í Hreppum mældist 15.5 stig.

Og nú er víst bara best að fá sér góðan an bloggblund fram að næstu hitabylgju.   

P.S. Hvað haldiði annars!! Haldiði ekki að það sé minnst á mig í dag í sjálfum Mogganum!

Allt er hégómi! Allt er aumasti hégómi og eftirsókn eftir vindi! (En glæstar hitabylgjur gera þann vind bara helvíti hlýjan og góðan).   

 

 

 

 


Áfram með hitametin börnin góð!

Jæja! Þessi dagur var enn stórbrotnari í hitametunum en í gær.

Í fyrsta lagi mældist mesti hiti sem nokkru sinni hefur mælst á mannnaðri veðurstöð á Íslandi í apríl. Það var 21,9 stig á Staðarhóli, hvar annars staðar, en þar hafði áður mælst hæst 19,3 þ. 19. árið 2003. Gamla íslandsmetið var 21,2 stig sem mældist á Sauðanesi 18. apríl 2003.

Í öðru lagi mældist mesti hiti sem mælst hefur á sjálfvirki veðurstöð í apríl, 23,0 stig í Ásbyrgi. Gamla metið var 21,4 á Hallormsstað 19. apríl 2003.

Það gekk sem sé eftir það sem ég heimtaði í færslu minni í gær: enn flottari hitamet en þá mældust.

Af öðrum spektakúlar metum má telja (gömlu metin innan sviga) 21,5 stig á Akureyri en þar eru til mælingar frá 1882 (19,8 þ. 22. 1976), 19,2 í Ásgarði  (15,5, þ. 19.  2005), 19,6 á Bergsstöðum (15,9 þ.18. 2003), 17,2 á Hólum í Dýrafirði (15,9 þ. 19. 2005), 16,0 í Æðey (15,0 í gær), 14,5 á Lambavatni ((13,6 í gær), 18,7 á Grímsstöðum (18,4, þ. 18. 2003) en þar ná mælingar til 1907. Auk þess mældust 20,7 á Torfum í Eyjafirði þar sem mælt hefur verið aðeins í kringum tíu ár. Í Stykkishólmi komst hitinn í 16,2 stig og hefur því náð 16 stigum tvo daga í röð sem er auðvitað algjört einsdæmi í arpíl.

Þetta er glæsilegur árangur! Hvað nýju metin eru mikið hærri víða en þau gömlu er eftirtektarvert og minnir þessi hitabylgja í offorsi sínu eftir árstíma nokkuð á ágústbylgjuna miklu sem kom árið 2004. Guð gefi að við fáum aðra slíka núna í júlí!  

Á ýmsum sjálfvirkum stöðvum varð æði heitt þó ekki sé hægt að tala um met vegna skamms athugartíma: 22,2 á Möðruvöllum í Hörgárdal, 21,7 á Végeirsstöðum í Fnjóskadal, 21,0 á Torfum, 20,9 á Húsavík (metið á mannaðri stöð þar 1924-1995 var aðeins 17,7), 20,3 á Brúsastöðum og 19,8  á Þeistareykjum. Svo skulum við vona að á morgun falli öll þessi met og líka metin frá í gær. En það er nú bara von.

Og það er blessuð blíðan! Og allir eru glaðir og sáttir!  


Aprílhitametin falla á vesturlandi

Núna klukkan 15 var ljóst að aprílhitamet höfðu fallið á nokkrum stöðum á vesturlandi. Fyrst skal þá frægan telja sjálfan Stykkishólm, þar sem mælingar ná til 1872, en þar var hitinn 15,.  kl. 15 en gamla metið var 15,0 frá 1942.  Í Stafholtsey voru 17,2 stig en aldrei áður hefur hitinn í öllum Borgarfirði náð 17 stigum í aprílmánuði en mælingar í héraðinu ná til 1924. Á Hjarðarlandi, þar sem mælingar ná reyndar aðeins til 1990, var líka komið met kl. 15, 15,5 stig. (Á sjálfvirka  mælinum þar var hámarkið 15,0 stig svo ekki eru það nú alltaf sjálfvirku mælarnir sem grípa mesta hitann eins og oft er þó látið í veðri vaka!) Allt eru þetta mælingar á kvikasilfursmæla. Margar stöðvar mæla nú með sjálfvirkum mælum sem áður mældu með kvikasilfri og fækkar sífelld stöðvum sem mæla með kvikasilfri og gerir það staðfestingu meta vægast sagt erfiða.  Á Þingvöllum hafði hitinn á sjálfvirka mælinum í dag farið í 16,6 stig sem er meira en heilu stigi hærra en hæst var þar mælt á kviksilfursmæli í apríl um 55 ára skeið.

Það er aðallega vesturland sem er hitametavænt í þessari snörpu og björtu suðaustanátt. En norður og austurland með sín rúmu 20 stig sem aprílmet njóta sín ekki eins vel hvað met snertir. Samt er þarna hlýjasta og besta veðrið á landinu en hefur bara einstaka sinnum orðið enn hlýrra áður.   

Meti hiti sem mælst hefur í Reykjavík í apríl er lágkúruleg  15,2 stig, frá 29. 1942  og sár vantar nýtt tryllingslegt met, helst ein 17 stig. En ég held að það náist ekki núna. En við vonum samt það besta.

Hitt er annað mál að þessi hiti sem þó er núna í bænum, 13,5 stig klukkan 15, nýtur sín ekki almennilega fyrir þessu andskotans roki sem reyndar hefur einkennt allan þennan mánuð. Þó hann sé langt fyrir ofan meðallag í hita hefur hann verið úrkomusamur og einkennilega hryssingslegur.  

En þó ekki nándar nærri því eins og skapið í mér um þessar mundir. Það stendur hins vegar allt til mikilla bóta.

Það léttist nefnilega á mér yggilbrúnin þegar hitauppgjör Veðurstofunnar birtist upp úr klukkan 18 og öll glæsilegu hitametin koma fram.   

Viðbót um nýju aprílhitametin: Aprílmet á kviksilfurmæla sem fuku í dag: 17,2 í Stafholtey, 16,4 í Stykkishólmi, 13,6 á Lambavatni, 16,0 í Bolungarvík, 15,0 í Æðey, 17,6 á Reykjum í Hrútafirði, 15,6 á Hjarðarlandi og jöfnun á Hæli 14,8. Metin í Bolungarvík, Æðey og  á Reykjum eru tveimur til þremur stigum hærri en þau gömlu.

Á sjálvirku stöðinni á Haugi í Miðfirði mældist réttur 18 stiga hiti en á mönnuðum veðurstöðum í dalnum sem lengi var haldið úti hafði mest mælst 15,5  í apríl árið 1942. Alveg örugglega hlýjasti apríldagurinn í þessari sveit eins og í Hrútafirðinum. Hins vegar standa aprílmetin á Blönduósi og í Skagafirðinum óhögguð. Í Vatnsdal var líka æfintýrlega gott veður, hitinn fór í 18., stig á Brúsastöðum í hægum vindi  og sólskini.   

Á morgun viljum við svo fá enn flottari met!  

 


Páskahelgin

Nú ætla ég að koma hysterískum aðdáendum mínum ræklega á óvart. Í fyrsta lagi ætla ég að blogga um eitthvað annað en bölvuð móðuharðindi alla tíð. Í öðru lagi að lýsa því yfir að föstudagurinn langi finnst mér næstbestur allra daga. 

En bestur er páskadagurinn.

Ég skil ekki þetta tuð í mönnum hvað föstudagurinn langi hafi alltaf verið leiðinlegur alveg þangað til nú á dögum að bjórbúllur og súludansstaðir hafa opnað dyr sínar upp á gátt þennan dag. Hver bloggræfillinn á fætur öðrum hefur verið að vitna um það á sínum síðum hvað þeir hafi átt bágt í bernsku vegna þess að samfélagsumgjörðin var of  heillög og þeim ekki að skapi.

En ég spyr: Hefur þetta fólk ekkert við að vera inni í sjálfu sér? Engar bækur að lesa? Enga tónlist að heyra? Engar innri lendur að kanna?

Nú ætla ég að ganga fram af hysterískum aðdáendum mínum með því að fullyrða að helgi mikil og máttug leynist að baki tilverunnar. Hún er þar alltaf. En það er oft erfitt að finna hana í argaþrasi daglega lífsins. Menn þurfa líka að gera dáltið til þess að skynja hana. Í fyrsta lagi að þagna í huganum. Vera ekki að þessu eilífa þvaðri við sjálfan sig. Þá fylgir kyrrðin og friðurinn í kjölfarið. 

Aldrei liggur þó þessi helgi nær yfirborðinu en einmitt á föstudaginn langa og á páskadag. Þá er hægt að rétta bara út hendina til að grípa hana.

Það er mín óbifanlega reynsla. Og hún er samofin hlustun á háleitustu músik heimsins, passíur Bach og vitringsins Heinrichs Schütz, en á þær hlusta ég með andakt á föstudaginn langa. Og þegar ég segi andakt þá meina ég andakt.

Á páskadag vakna ég fyrir allar aldir, kveiki á kertum mínum við páskaliljurnar og læt geroríanskan munkasöng hljóma um sálina: Resurrexi. Þá finn ég samkennd við alla menn og allt sem lifir.

En það var nú ekki meiningin að verða svona væminn á þessum stað. Samt er þetta dagsatt.

Að þessu sinni barst mér líka falleg páskakveðja í morgunsárið frá einni árrisuli sál sem mundi eftir mér og það gerði páskana enn sætari en ella hefði verið.

Góðar hugsanir falla aldrei úr gildi.

Nú er allt hreint og tært. Nú er allt fagurt og fínt.   

Nú eru páskar um veröld alla. 


Föstudagurinn langi

Jesús Kristur! Hvar endar þetta?

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband