Óvenju hlý júlíbyrjun

Fyrstu dagarnir í ţessum júlí munu vera einhverjir ţeir hlýjustu sem komiđ hafa á ţeim dögum á landinu í heild síđustu 60 árin ađ  minnsta kosti. Hitinn er mjög jafn yfir allt land og hitinn á nćturnar veldur miklu um háan međalhita. Ţađ er eiginlega ekkert til samanburđar viđ ţessa daga nema byrjun júlí árin 1991 og kannski 1975.

Í byrjun júlímánađar 1991 kom mikil hitabylgja međ bćđi háum hámarkshita og međalhita. Fyrsta júlí fór hitinn á Kirkjubćjarklaustri í 29,0 stig og daginn eftir í 29,2 stig en ţar međ voru hitarnir búnir á ţeim stađ og fluttu sig annađ. Nćstu ţrjá daga var hámarkshiti landsins 28-29 stig á austurlandi, Vopnafirđi, Reyđarfirđi og Egilsstöđum. Ţessa daga var vestan eđa suđvestanátt og úrkomusamt og ekkert sérstakt á suđur-og vesturlandi en miklir hitar austantil. Áriđ 1975 byrjuđu hitarnir ekki fyrr en 4. júlí og stóđu í tvo daga en voru ađallega fyrir norđan, ţar sem ţeir voru afar miklir, en syđra var rigning og ekkert hlýtt.   

Á hádegiskortunum sem hćgt er ađ sjá á vefnum fyrir tíu veđurstöđvar alveg frá 1949 er međalhitinn ţ. 1. og 3. núna sá hćsti sem hćgt er ađ finna á ţeim kortum ţá daga en ţ. 2. og 4. var hlýjast áriđ 1991.

Ef miđađ er viđ međalhita Reykjavíkur, Stykkishólms, Akureyrar og Kirkjubćjarklausturs saman slá  fyrstu ţrír dagarnir met í okkar júlí sem nú er ađ byrja en 1991 heldur ţeim fjórđa.  Hugsanlega  hefur ţó veriđ hlýrra á landinu öllu áriđ 1991 alla ţessa daga. Fjórar stöđvar  eru ekki mikiđ til ađ mođa úr en ţetta sýnir ađ minnsta kosti ađ eitthvađ óvenjulegt er á ferđinni.    

Međalhitinn í Reykjavík ţ. 3. er líklega sá mesti síđan Veđurstofan var stofnuđ, 1920, fyrir ţann dag, međ fullri vissu frá 1936.  Hann reikna ég 15,9 stig, eftir átta athugunum jafnt dreift yfir sólarhringinn og dagurinn í gćr  setti sömuleiđis dagsmet međ 15,5 stigum.  

Ţađ eru engin glćsimet á sveimi en ţađ er ţessi jafni hiti yfir allan sólarhringinn sem er ađ gera ţessa daga merkilega og hífa upp međalhitann. Mjög víđa á veđurstöđvum hefur hitinn ekki fariđ niđur fyrir 10 stig allan sólarhringinn síđan 28. júní. Í raun og veru er ţetta global warming einkenni!Tounge

Síđar í mánuđinum hafa komiđ dagar í ýmsum júlímánuđum sem slá ţessa daga alveg út. Nefna má hitabylgjuna kringum ţ. 10. 1976, í blálok júlí 1980 og ţ. 25.-30. í fyrra ţegar hitametiđ var sett í Reykjavík ţ. 30. Ađ ekki sé minnst á hitabylgjuna miklu kringum 10. ágúst 2004.

Ţessi hlýindi sem nú eru verđa ţó ađ teljast ekki bara hversdagsleg sumarhlýindi heldur óvenjuleg og reyndar nokkuđ sérstök í hátterni. 


 


Athugasemdir

1 Smámynd: Brjánn Guđjónsson

ţađ var notalegt á Austurvellinum í nótt, í hlýrri nóttinni, á bolnum og í góđum fíling eins og virtist međ ađra nćrstadda

Brjánn Guđjónsson, 5.7.2009 kl. 18:56

2 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Reykjavík er meira ađ segja komin í 20 stiga klúbbinn í ár, skv mćlingu kl.19 á föstudagskvöld. Hef ţó ekki nákvćma hámarkstölu.

Emil Hannes Valgeirsson, 5.7.2009 kl. 21:16

3 Smámynd: Sigurđur Ţór Guđjónsson

Ţađ mćldist 20,2 á sjálfvirka mćlinum í fyrrakvöld kl. 19 en fór ţann dag ekki hćrra en 18, 4 á kvikasilfrinu en í gćr19,0. Ţađ hafa ţví enn ekki komiđ 20 stig í Reykjavík.

Sigurđur Ţór Guđjónsson, 5.7.2009 kl. 21:29

4 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Spćling. Ţađ er greinilega ekki nógu kvikt ţetta kvikasilfur.

Emil Hannes Valgeirsson, 5.7.2009 kl. 22:26

5 Smámynd: Einar Sveinbjörnsson

Sammála ađ sérlega hlýtt er fyrstu fimm dagana í júlí hér í Rvk. Og býđ ekki  međalhitinna verđi  mánuđrinn  allur í svipađa veru.   Ţau verđa mörg metin ef fariđ er ađ horfa í hvern  dag fyrir sig líkt  og  Bandaríkjamenn hafa  ástundađ  lengi.   15,9°C  sólarhringsmet  er ađeins í gildi fyrir  3. júlí, en sú tala er  samt langt frá hinum glćsilegu 19,2°C 31. júlí 1980 ekki satt ??

Kveđja ESv

Einar Sveinbjörnsson, 5.7.2009 kl. 23:44

6 Smámynd: Sigurđur Ţór Guđjónsson

Eigi ađ síđur hafa ekki veriđ svona hlýir dagar í upphafi júlí eins lengi og ég hef lifađ. En yfirleitt eru ţá bestu dagarnir eftir. Reyndar finnst mér eins og ţetta verđi mjög hlýr júlí.

Sigurđur Ţór Guđjónsson, 6.7.2009 kl. 00:34

7 Smámynd: Sigurđur Ţór Guđjónsson

Ekki megum viđ svo gleyma 11. ágúst 2004 međ međalhita upp á 20,1 stig!

Sigurđur Ţór Guđjónsson, 6.7.2009 kl. 00:38

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband