Sérstætt hitamet

Í gær hafði hiti einhvers staðar á landinu farið í 20 stig eða meira samfellt í 11 daga. Það er met í þannig dagafjölda svo snemma sumars frá a.m.k. stofnun Veðurstofunnar árið 1920.

Lengsta röð 20 stiga hita í maí einum  eru 8 dagar 20.-27. maí 1987. Þau tilvik sem hiti hefur mælst 20 stig á landinu yfir mánaðarmótin maí til júní á þessum tíma eru  reyndar aðeins tvö,  4 dagar frá 29.maí til 1. júní 1929 og 5 dagar, 30. maí -3. júní 1997. Enginn júní nema okkar hefur mælt 20 stiga hita alla fyrstu 8 dagana en júní 2007 gerði það fyrstu sjö dagana og það voru þá 7 dagar í samfellu. Síðan kom þá einn dagur án tuttugu stiga en eftir það fimm dagar í röð til 13. júní. Árið 2002 komu 10 tuttugu stiga dagar 4.-13. júní. Í júní 1934 í merkilegri hitabylgju, einmitt þegar jarðskjálftinn mikli var á Dalvík, mældist 20 stiga hiti einhvers staðar á landinu 9 daga í röð, frá 3.-11. júní. 

Nú er tuttugu stiga syrpunni lokið og miðað við dagsetninguna 8. júni er það met að mælst hafi svo snemma sumars 20 stiga hiti eða meira 11 daga í röð. Þess ber auðvitað að gæta að veðurstöðvar sem mæla hámarkshita eru nú fleiri en nokkru sinni og möguleikarnir á að krækja í 20 stig eru þar af leiðandi líka meiri. En þetta segja tölurnar eins og þær liggja fyrir.

Tvisvar í syrpunni mældist meiri hiti en mælst hefur viðkomandi dag á landinu frá 1920, 24,3 stig í Ásbyrgi 29. maí, sem var hámarkshitinn í allri syrpunni, og daginn eftir 23,8 stig á sjálfvirku stöðinni á Skjaldþingsstöðum í Vopnafirði en 23,5 á þeirri mönnuðu með kvikasilfrinu (líka met) sem er það sem ég vil taka mark á þar sem enn er mælt á þann hátt jafnframt sjálfvirki mælingu. Enginn dagur í júní núna er með dagshitamet hámarksmeðalhita. Og enginn dagur þessa  11 daga sló met hvað varðar hlutfallslegan fjölda stöðva sem mældu 20 stig eða meira.Í raun var þetta hlutfall fremur lágt miðað við marga glæsilega daga að því leyti á fyrri árum. Enginn dagur komst heldur nærri því að vera með þeim hlýjustu gegnum árin á landsvísu að meðalhita. Æði var hitanum reyndar misskipt á landinu. Á Brú á Jökuldal var meðaltal hámarkshita þessa daga 20,6 stig en um 10 í Surtsey. Á Brú mældist 20 stiga hiti alla dagana nema 2. og 3. júní.

Það sem gerir þessa hitasyrpu sérstaka er lengd hennar með samfelldum 20 stiga dögum svo snemma sumars.  

Það sem olli hlýindunum var hlý háloftahæð í grennd við landið og yfir því. Vindar voru hægir og því lengra frá sjó því hitavænna var í sólinni þar sem sjávarlofsins gætti ekki. Staður einsog mannaða stöðin á Akureyri mældi aldrei 20 stig.

Þetta finnst mörgum kannski fánýtur fróðleikur en þeir sem hafa einhvern náttúrulegan sans ættu að láta sér vel líka!

Í fylgiskjalinu má sjá innviði þessarar 11 daga hitasyrpu. Tvisvar er með smærra letri getið um stöðvar sen næstum því mældu 20 stiga hita.Þetta eru allt sjálfvirkar veðurstöðvar nema þær skáletruðu eru mannaðar. Stöðvunum er raðað í röð frá vesturlandi til austurlands. Ekki er hirt um að aðgreina stöðvarnar efir rekstraraðilum.


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband