5.2.2007 | 02:46
Dónaleg spurning
Svona spyr hún Aðal-Heiða á bloggsíðu sinni:
"Af hverju eru stelpurnar í femínistafélaginu ekki búnar að senda út harðorða yfirlýsingu um Breiðavíkurmálið? Af hverju er ég viss um þær væru búnar að skrifa grein eftir grein nú þegar ef stúlkur hefðu verið vistaðar þar?"
En ég mundi ekki þora fyrir mitt litla líf að spyrja svona dónalegrar spurningar hér á hinu siðavanda Allra veðra von. Þá mundi skella á mér algjört fárviðri haturs og fyrirlitningar frá öllum sætustu stelpunum.
Og líka þeim ljótustu.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 6.12.2008 kl. 19:50 | Facebook
Færsluflokkar
- Allt í plati
- Blogg
- Bloggar
- Bækur
- Efnisyfirlit um veður
- Ég
- Guð sé oss næstur
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hlýustu og köldustu mánuðir
- Íslensk veðurmet
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Mali
- Mannlífið
- Mánaðarvöktun veðurs
- Menning og listir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Veðurfar
- Veður í annálum og öðrum gömlum heimildum
- Veður um allan heim
- Vísindi og fræði
Tenglar
Blogg
Ýmsir vefir
- Gjósandi eldfjöll
- Kantötur Bachs
- Schubert
- Stjörnuskoðun
- Nótnasafnið
- Torfusamtökin
- Lilta-Ávík
- Blogggáttin
- Doctor E
Blogg
Síður
- Sólarminnstu júlímánuðir
- Þíðukaflar að vetrarlagi í Reykjavík
- Jóla og áramótaveðrið frá 1880
- Sólrík sumur og sólarsnauð
- Sólskin á Íslandi
- Hámarkshiti á landinu um verslunarmannahelgina frá 1949 og veðrið í Reykjavík
- Slær júlí hitamet í Reykjavík
- Óvenju hlý júlíbyrjun
- Nokkrir kaldir janúarmánuðir og kuldadagar
- Hret og snjóar í ágúst
- [ Fleiri fastar síður ]
Eldri færslur
- Mars 2023
- Ágúst 2019
- Desember 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Desember 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Athugasemdir
Ég hélt að það væru ekki neinar ljótar stelpur til.
Júlíus Garðar Júlíusson, 5.2.2007 kl. 08:03
Vandinn í málinu er skortur á mannúðarsefnu nú sem fyrr og endurspegla úrræðin félagslegan veruleika á þessum tíma. (og líka nú.) Ætla má að harkan hafi verið meiri þá en nú og nauðsynlegt að halda vöku sinni í þassum málum. Alltaf má gera betur og menntað fagfólk er orðið miklu fleira en áður var.
Hverjir hafa mótað viðhorfin í gegnum tíðina í þjóðfélagsmálum.
Eru það ekki karlmenn!!!
Auðvitað gætu femínistar séð sóma sinn í að gagnrýna málið á framngreindum nótum. Veit annars ekki fyrir hvaða stefnu þær standa. Eru til vill að vinna að því að sigra heiminn, það verður tæplega gert nema með bæði gagnrýni og samvinnu við hitt karlkynið. Kveðja.
Sigríður Laufey Einarsdóttir, 5.2.2007 kl. 08:50
Ég tek undir með henni Aðal- Heiðu að þær mættu láta í sér heyra og ekki bara þær. En svona erm við mennirnir, sjálfsuppteknir og viljum oft sem minnst vita af þeim sem illa standa og eru BARA VANDAMÁL. Vonandi tekur samfélagsmyndin okkar stefnu í átt til mannúðar og miskunar. Þess bið ég og mætti mér sjálfri auðnast það líka.
G.Helga Ingadóttir, 5.2.2007 kl. 09:26
Mikið óskaplega er síðasta færsla nú smart! Ég meina það. Þú berð af öllum bloggurunum eins og gull af skít.
Þórunn Hrefna (IP-tala skráð) 5.2.2007 kl. 09:33
Það sem kemur í veg fyrir að ég hafi skráð mig sem félagi hjá feminístum er að mér finnst stundum sem þær hafi misst sjónar á málefninu... réttlæti fyrir alla. Og ég vil ekki láta bendla mig við smámál þegar ég stend frammi fyrir stórum málum á hverjum degi þegar jafnrétti er annars vegar.
Heiða B. Heiðars, 5.2.2007 kl. 10:31
Ég er nú alveg sammála Júlíusi. En maður verður líka að hugsa soldið um retóríkina. Ég er líka sammála hófsemdinni hennar Laufeyjar.
En í alvöru talað: Ég hvika ekki frá þeirri skoðun minni að það er ALLTAF hagur barnanna sem ætti að skipta máli en ekki rétt pólitísk lína. Það er auðvitað pólitík, "hugmyndafræði" einhvers konar sem veldur þögn feminista þegar misneyting á drengjum er um að ræða. Um daginn var ég að víkja að þessu atriði í bloggfræslu sem var sögð "ógeðsleg" af því að retóríkin í henni var það til áherslu. Ég fékk þá athugasemdir inn á bloggið, sem beint var gegn mér sem persónu, sem eru engan vegin birtingarhæfar og hafa verið faldar eins og umrædd færsla. Kannski ætti ég bara að birta hana aftur. En ég segi eins og er: Mér stendur stuggur af þessu persónulega hatri sem kemur upp hjá sumum sem eru manni mikið ósammmála í sumum tilfiningaþrungum málum en kynferðisleg misbeiting sem valdatákn og kúgunar er það vissulega (líka virkjunarmál t.d.). Eftir umrædda færslu hafa konur, sem áður dáðu mig og dýrkuðu fyrir smarta bloggið mitt, jafnvel gert í því að sýna mér fyrirlitningu á götum úti. Nú hata þær mig þessar sömu elskur og áður elskuðu mig bloggískri ást (samanber platónsk ást). Er einhver sem skilur þetta feminiskum eða andfeminskum skilningi? Ég meina það!
Já, og Þórunn Hrefna, bloggdrottning og pönkína! Helvíti ertu nú alltaf smart og skammastu þín fyrir að hafa ekki bloggað í heilan mánuð. Þú berð af öðrum sætum stelpum og bloggdrósum eins og ... það sem hér átti að koma var svo fleðulegt að það er engan vegin birtingarhæft.
Og meira fjör! Stanslaust stöð! Bloggum nú allt og alla til beina leið til helvítis!
Sigurður Þór Guðjónsson, 5.2.2007 kl. 12:28
Takk fyrir þetta Anna! Er þegar búinn að fletta upp greininni. Skyldum við annars vera skyld? Það heitir lágkúra að skrifa svona í einni stuttri málsgrein. En skítt með það!
Sigurður Þór Guðjónsson, 5.2.2007 kl. 13:37
Æi... leyfir ekki komment á persónulýsingunni þinni!!
Ég fékk alveg hroll að lesa þetta,... einlægasta sem ég hef séð hér á moggablogginu.. og þú hlýtur að vera naut!!
Heiða B. Heiðars, 5.2.2007 kl. 14:08
Æ, þetta var nú bara einhver handvömm að kommentin féllu út við persónulýsinguna.
Ég er er algjör sauður.
Sigurður Þór Guðjónsson, 5.2.2007 kl. 14:13
Galli að ekki sé hægt að breyta eigin athugasemdum á þessu bloggkerfi. "Eftir umrædda færslu hafa konur" á auðvitað að vera "eftir umrædda færslu hafa nokkrar konur" í löngu athugasemdinni minni hér að ofan.
Sigurður Þór Guðjónsson, 5.2.2007 kl. 15:43
ji ég verð alveg óbærilega forvitin vegna síðustu athugasemdar! um hvað var þessi ógeðslega færsla nákvæmlega? það hlýtur að hafa verið alveg rosalegt miðað við viðbrögðin. Ég er ekki viss um að ég þori að lesa hana, ég kann ágætlega við þetta blogg og vil ekki fyllast af hatri en vá, það er erfitt að vera svona forvitinn!
Aðal-Heiða, ég skrifaði einu sinni einhverja romsu um jafnréttissinna og femínista á mitt blogg og ég kom með þá kenningu að margir vildu ekki bendla sig við femínisma af því að það væru svo áberandi allskonar asnaleg smámál sem gert er mikið úr. ég er greinilega mjög sammála þér um þetta sko því ég hef heldur ekki gengið enn formlega til liðs við femínistafélög, en tel mig samt femínista sem vill fá réttlæti fyrir alla
halkatla, 5.2.2007 kl. 17:08
ok ég meinti að ég er forvitin útaf þessari grein sem sigurður þór sagðist hafa skrifað og falið
halkatla, 5.2.2007 kl. 17:09
Frábært Anna Karen! Við erum þá sammála þar
Heiða B. Heiðars, 5.2.2007 kl. 17:44
í kínversku kvikmyndinni Heroes, er hugsanlega náð að setja fram þá myndrænu túlkun á milli stríðs og hugsjóns.
Vondi miskunnarlausi keisarinn herjaði af ofsa á all hershöfðingja í öllum héruðum Kína, í þeim tilgangi að sameina landið og mynda frið til frambúðar.
Svona er þetta einfalt en hvað þarf til; eyða öllum óvinum.
Ég er mikill baráttumaður og jafnrétti á öllum vettfangi, burt séð frá kyni eða litarhætti og myndi ég fordæma hvaða níð sem er á hverjum sem er og það er það sem máski vantar hjá femenistafélaginu. Einhliða eins og Bloggari bendir á.
Davíð Halldór Lúðvíksson (IP-tala skráð) 5.2.2007 kl. 18:09
Svona svona! Róum okkur nú niður börnin góð! Kannski geri ég líka of mikið úr viðbrögðunum því eins og margir skapmiklir menn er ég ferlega hörundssár og merkilegur með mig. Ég var of harðorður og óagaður í þessari færslu en í góðri meiningu. Og átti ofanígjöf að sumu leyti skilið. En sumt sem af þessu leiddi átti ég nú ekki skilið. En gleymum þessu bara og "horfum til framtíðar" með jafnrétti - og réttlæti - fyrir alla.
Og krakkar! Eitt verð ég endilega líka að segja af því ég er smávegis hégómlegur (en ekkert svakalega): Í dag hefur þessi síða slegið öll lestrarmet sín á einum degi frá upphafi. Og klukkan er ekki orðin hálf átta.
Sigurður Þór Guðjónsson, 5.2.2007 kl. 19:22
Til hamingju með herra hégómalegur
En ég held að nafnið mitt á þessu bloggi hafi mikið með aðsóknina að gera
Heiða B. Heiðars, 5.2.2007 kl. 20:04
Fyrst og fremst! Og það sem þú varst að segja.
Sigurður Þór Guðjónsson, 5.2.2007 kl. 20:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.