22.12.2011 | 16:09
Ekki alhvítur desember í Reykjavík
Í morgun var talin flekkótt jörð í Reykjavík af snjó en snjódýpt samt talin 7 cm. Þetta er nákvæmlega það sem ég var að tala um í siðasta bloggpistli, snjódýpt væri oft tilgreind þó jörð væri aðeins að hálfu leyti hulin snjó eins og var í morgun.
Það er því öruggt að þessi desember ætlar ekki að verða sá fyrsti í höfuðborginni sem talinn er alhvítur alla morgna en það hefur aldrei átt sér stað síðan byrjað var að fylgjast með slíku fyrir einum 85 árum síðan.
Meðalhitinn í Reykjavík er nú -2,4 stig sem líka er 2,4 stig undir meðallaginu.
Í nótt fór hitinn á Dalatanga í 12,0 stig en 13,2° á sjálfvirka mælinum á sama stað. Þetta er mesti hiti sem enn hefur mælst á landinu í mánuðinum. Í Reykjavík fór hitinn í 7,5 stig í gærkvöldi.
Mér finnst gott að fá þessa litlu hláku, þó ekki væri nema vegna þess að víða á gangstéttum er nú svo mikið af auðum skellum að hægt er að forðast að ganga á klaka sem er alveg skelfilega háll. Einn vinur minn datt um daginn og brotnaði mjög illa.
Það var smárok sums staðar í nótt og sumir fjölmiðlar eru að segja að nú sé komið vont veður í stað þess góða sem átti að hafa verið í froststillunni.
Það er samt besta veður núna þó ekki sé frost. Og ég er þakklátur fyrir alla hláku þá skammvin sé. Allt er betra en kuldi dag eftir dag eftir dag.
Það þyrfti bara að koma góð hláka í nokkra daga til að hreinsa upp allan snjóinn. En því er nú víst ekki að heilsa.
Nenni svo ekki að taka það fram enn einu sinni að ekkert er ömurlegra en hvít jól nema ef vera skyldi hvít jól með hörkufrosti!
Meginflokkur: Mánaðarvöktun veðurs | Aukaflokkar: Bloggar, Veðurfar | Breytt 1.1.2012 kl. 01:05 | Facebook
Færsluflokkar
- Allt í plati
- Blogg
- Bloggar
- Bækur
- Efnisyfirlit um veður
- Ég
- Guð sé oss næstur
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hlýustu og köldustu mánuðir
- Íslensk veðurmet
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Mali
- Mannlífið
- Mánaðarvöktun veðurs
- Menning og listir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Veðurfar
- Veður í annálum og öðrum gömlum heimildum
- Veður um allan heim
- Vísindi og fræði
Tenglar
Blogg
Ýmsir vefir
- Gjósandi eldfjöll
- Kantötur Bachs
- Schubert
- Stjörnuskoðun
- Nótnasafnið
- Torfusamtökin
- Lilta-Ávík
- Blogggáttin
- Doctor E
Blogg
Síður
- Sólarminnstu júlímánuðir
- Þíðukaflar að vetrarlagi í Reykjavík
- Jóla og áramótaveðrið frá 1880
- Sólrík sumur og sólarsnauð
- Sólskin á Íslandi
- Hámarkshiti á landinu um verslunarmannahelgina frá 1949 og veðrið í Reykjavík
- Slær júlí hitamet í Reykjavík
- Óvenju hlý júlíbyrjun
- Nokkrir kaldir janúarmánuðir og kuldadagar
- Hret og snjóar í ágúst
- [ Fleiri fastar síður ]
Eldri færslur
- Mars 2023
- Ágúst 2019
- Desember 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Desember 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Athugasemdir
Ja, ég bý í efri byggðum Kópavogs og þar hefur verið alhvít jörð á hverjum morgni allan desember. Þó eitthvað hafi hlánað í gær og fyrradag, þá dugði það ekki til að sæist í auðan blett nema þar sem rutt hafði verið ofan af. Snjódýpt er líka meiri en 7 sm að jafnaði, líklegast nær því að vera 15 sm eftir hríð næturinnar.
Veðurstofan er ofan á hálsi og liggur því hærra en byggðin í kring. Ég reikna með að starfsmenn horfi út um gluggann og skoði það sem fyrir augum ber.
Spurningin er hvaða kröfu menn gera til flekkóttrar jarðar. Er nóg að sjáist í auða jörð við sjávarsíðuna eða verður að sjást í auða jörð alls staðar á Reykjavíkursvæðinu? Lítið er að marka miðborgarsvæði, þar sem vegir, gangstéttar og torg eru ýmist rudd eða upphituð.
Marinó G. Njálsson, 23.12.2011 kl. 13:02
Ég óska öllum kattavinum gleðilegra jóla. Mjá!
Mali jólaköttur (IP-tala skráð) 24.12.2011 kl. 17:18
Mér skilst að desember hafi hingað til verið samt alhvítur en einhverjar villur á sveimi. Þetta mun líklega skýrast bráðlega.
Sigurður Þór Guðjónsson, 29.12.2011 kl. 16:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.