Heimsfrægar á netinu

Nú er hún Zoa búin að gera dagbækurnar mínar heimsfrægar á netinu. Ég vissi að þær myndu slá í gegn áður en þær verða lesnar. En svo verða þær lesnar þegar ég er dauður og allir missa alveg andlitið og breytast bara í asna.  

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: gerður rósa gunnarsdóttir

Helvítis asninn þinn að vera að auglýsa mig svona. Ég sem ætlaði að æfa mig í rólegheitunum að röfla við myndavélina án þess að nokkur fattaði. Þetta er svoddan hörmung hjá mér ennþá (gleraugun eru samt flott!!) að það er hvorki á þetta horfandi né hlustandi.
Skrifaðu nú eitt velútlátið veðurblogg í snarheitum svo það sjái þetta ekki nokkur maður!

gerður rósa gunnarsdóttir, 26.3.2007 kl. 00:30

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég skil vel hæversku þína og lítillæti. Mér finnst alveg frábært hjá þér að vera að blogga svona til þess að enginn sjái það. Miklu sniðugra en blogga ekki en þá sér auðvitað enginn neitt heldur. En þar sem ég læt allt eftir þér, asninn þinn, þá færðu snarlega eitt verðurblogg til að leiða athyglina frá þér og að mér í staðinn.

Sigurður Þór Guðjónsson, 26.3.2007 kl. 08:54

3 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Hvað var í pottinum????

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 26.3.2007 kl. 15:13

4 Smámynd: gerður rósa gunnarsdóttir

Já maður þorir varla að opna munninn lengur af hræðslu við að móðga einhvern. Ætli ég fái ekki einhver dýraverndunarsamtök í hausinn fyrir að vera að gera grín að alsaklausum ösnum. Býst við því.
Uppskriftirnar mínar eru svo mikið hernaðarleyndarmál að ég veit þær ekki einu sinni sjálf.

gerður rósa gunnarsdóttir, 26.3.2007 kl. 15:48

5 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Fáránlega frumleg sem þú ert.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 29.3.2007 kl. 00:13

6 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

P.S. Ég var sko að meina þetta, - hér var eigi um kalhæðni að ræða, eins og er svo mikið í tísku víða í bloggheimum....

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 29.3.2007 kl. 00:13

7 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Já, öllum er alveg guðvelkomið að kommentera á þessari síðu á hana Zou sem mest þeir mega úr því hún hefur ekki opið á komment á sinni eigin asnalegu síðu. Það verður þá til þess að einhverjir nenna að koma inn á mína síðu með öllu sínu veðurtuði og kærleikssnauða húmorsleysi.

Sigurður Þór Guðjónsson, 29.3.2007 kl. 09:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband