29.4.2018 | 18:48
Hitamet í apríl
Þennan mánaðardag, 29. apríl, árið 2007 mældist mesti hiti sem mælst hefur á landinu í apríl, slétt 23 stig á sjálfvirku veðurstöðinni í Ásbyrgi. Þá mældust 22,2 stig á sjálfvirku stöðinni á Möðruvöllum i Hörgárdal og 21,9 stig á mönnuðu stöðinni á Staðarhóli í Aðaldal sem er mesti aprílhiti sem mælst hefur á mannaðri veðurstöð í apríl en þær stöðvar eru nú óðum að týna tölunni. Á Akureyri fór hitinn í 21,5 stig á mönnuðu stöðinni við lögreglustöðina en 21,8 stig á sjálfvirku stöðinni við Krossanesbraut. Alls mældist 20 stiga hiti eða meira þennan dag á 14 stöðvum, þar af fjórum mönnuðum stöðvum sem er 9% allra mannaðra stöðva. Það er hæsta tuttugustigahlutfall nokkurs dags í apríl. Þetta er næst hlýjasti apríldagur á landinu frá 1949 að meðalhita á eftir þeim 18. árið 2003, 10,8 stig. Hámarkshiti að meðaltali hefur aldrei orðið hærri á landinu í apríl en þann 29. en hann var þá 15 stig. Veðurlag var ekki ósvipað og í hitabygjunni 1984 og sagt er frá hér að neðan. Morgunblaðið sagði frá þessum hlýindum 2007.
Daginn eftir mældist 20 stiga hiti eða meira á fjórum veðurstöðvum. mest 21,6 stig á Végeirsstöðum í Fnjóskadal. Og 1. maí mældist reyndar rúmlega 20 stiga hiti á tveimur veðurstöðum.
En þennan aprílmánuð mældist einnig strax þann 3. meira en 20 stiga hiti á þremur sjálfvirkum stöðum, mest 21,9 stig á Neskaupstað,en hvergi á mannaðri stöð. Svona mikill hiti á landinu svo snemma vors er nánast einsdæmi. En á Kvískerjum í Öræfum mældust reyndar 20,5 stig 29. mars 2012 og er það í eina skipti í mars sem hiti á landinu hefur náð 20 stigum. Þennan apríl dag var þykkt og blautt á suðurlandi í suðvestanátt.
Dagana 18. og 19. apríl 2003 mældist 20 stiga hiti á nokkrum stöðum. Fyrri daginn komu 21,1 stig á Sauðanesi en daginn eftir 21,4 á Hallormsstað. Alls mældist 20 stiga hiti eða meira á einum 13 veðurstöðvum þessa daga. Sól var víða fyrri daginn, þar á meðal í Reykjavík með 12 stiga hámarkshita í suðaustanátt en síðari daginn kólnaði mjög á vestanverðu landinu þegar lægðardrag gekk þar yfir en áfram var hlýtt á norðausturlandi og nokkuð sólfar. Sá 18. er hlýjasti aprildagur á landinu í heild að meðalhita a.m.k. frá 1949 en meðaltihinn var 11,2 stig.
Það var 25. apríl 1984 sem 20 stig mældust fyrst á hámarkshitamæli í apríl á landinu. Þá voru 20,1° á Neskaupstað en 20,0° á Seyðisfirði. Daginn eftir bætti Seyðisfjörður um betur með sléttu 21 stigi en Vopnafjörður var með 20.4 stig. Það var rakin sunnanátt með nokkurri rigningu og súld sunnanlans en björtu veðri fyrir norðan og austan. Hæð var suðaustan við land en lægðasvæði fyrir sunnan Grænland og mikill hlýindastrengur langt norður í haf. Meðalhitinn á Akureyri þann 25. var 14,7 stig og er það mesti meðalhiti þar nokkurn dag í apríl en næst er sá 18. 2003 með 14,6 stig í annarri og enn meiri aprílhitabylgju sem sagt er frá hér að ofan.
Á þessum apríldögum sem sagt hefur verið frá hér hafa fjölmörg mánaðarmet fallið á veðurstöðvum en of langt mál yrði að tíunda það.
Þann 16. apríl árið 1908 var lesið á hitamæli á athugunartíma á Seyðisfirði 21,4 stig. Suðvestan og vestanátt var í lofti og hæð sunnan við Færeyjar.
Sérstakt tilvik átti sér hins vegar stað 20.apríl 1933. Þann dag mældist mesti hiti á landinu á hámarksmæli 12,5 stig í Stykkishólmi sem var reyndar næst mesti hiti mánaðarins þannig lesin. Á Fagurhólsmýri var þá ekki hámarksmælir en lesið á mæla á þremur föstum athugunartímum. En viti menn! Þennan dag segir athugunarmaður frá því að klukkan 1 eftir hádegi (kl. 2 að okkar tíma) hafi hiti verið 20,5 stig. Aldrei var neitt grunamlegt við hitamælingar á stöðinni á þessum árum og er ekki hægt annað en taka þessa mælingu trúanlega hjá athugunarmanni sem hefur skynjað óvenjulegan hita og litið á mælinn! Hæð var yfir landinu og nokkru svæði umhverfis það og hægviðri og fremur hlýtt í háloftunum.
Síðast mældist 20 stiga hiti í apríl landinu þann 9. árið 2011, 20,2 stig á Skjaldþingsstöðum í Vopnafirði.
Tuttugu stiga hiti eða meira í apríl hefur aðeins mælst á veðurstöðvum frá Dalvik austur og suður um að Fagurhólsmýri, fyrir utan eitt tilvik, árið 2007, á sjálfvirku stöðinni í Ásgarði í Dölum, en mannaða stöðin þar mældi minni hita, 19,2 stig. Mesti aprílhiti sem annars hefur mælst á suður og vesturlandi, frá Mýrdal upp í Borgarfjörð, er 17,6 stig þ. 28. árið 2007 á Stafholtsey í Borgfirði og 17,6° á Húsafelli þ. 30. 2007 en þess verður að geta að 31. mars 1965 mældust 17,9 stig á Sámsstöðum í Fljótshlíð og 17,5 stig á Akurhóli á Rangárvöllum. Á Reykhólum mældust svo 17,5 stig 30.apríl 1965 sem er mesti hiti sem mækst hefur á vestfjarðarkjálkanum i april.
Meðaltal hæsta mánaðar hámarskshita í öllum apríl á landinu á þessari öld er 17,4 stig en 14,9 tímabilið 1931-1960 og 15,0 árin 1961-1990 en þess ber að gæta að veðurstöðvar eru nú miklu fleiri en var á fyrri tímaskeiðum.
Í fylgiskjalinu er skrá yfir allar tuttugustiga mælingar á landinu í aprílmánuði.
Meginflokkur: Veðurfar | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt 30.4.2018 kl. 11:05 | Facebook
Færsluflokkar
- Allt í plati
- Blogg
- Bloggar
- Bækur
- Efnisyfirlit um veður
- Ég
- Guð sé oss næstur
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hlýustu og köldustu mánuðir
- Íslensk veðurmet
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Mali
- Mannlífið
- Mánaðarvöktun veðurs
- Menning og listir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Veðurfar
- Veður í annálum og öðrum gömlum heimildum
- Veður um allan heim
- Vísindi og fræði
Tenglar
Blogg
Ýmsir vefir
- Gjósandi eldfjöll
- Kantötur Bachs
- Schubert
- Stjörnuskoðun
- Nótnasafnið
- Torfusamtökin
- Lilta-Ávík
- Blogggáttin
- Doctor E
Blogg
Síður
- Sólarminnstu júlímánuðir
- Þíðukaflar að vetrarlagi í Reykjavík
- Jóla og áramótaveðrið frá 1880
- Sólrík sumur og sólarsnauð
- Sólskin á Íslandi
- Hámarkshiti á landinu um verslunarmannahelgina frá 1949 og veðrið í Reykjavík
- Slær júlí hitamet í Reykjavík
- Óvenju hlý júlíbyrjun
- Nokkrir kaldir janúarmánuðir og kuldadagar
- Hret og snjóar í ágúst
- [ Fleiri fastar síður ]
Eldri færslur
- Desember 2024
- Mars 2023
- Ágúst 2019
- Desember 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Desember 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Athugasemdir
Skemmtilegur fróðleikur. Þakka fyrir.
Spurning með hitan inn í Ásbyrgi en þar er nær alltaf heitt.Ef ám má spyrja hvar finnur maður skrá yfir staðsetningu á hitamælum á Norður hveli heimsins.
Ég las stutt frétt sem ég heyrði svo ekkert meira af fyrir um mánuð að það væri að bæta við hitamælum á þessum norður svæðum vegna þess að menn hafa verið að geta sér til um hitastig í reiknilíkön vegna Global Warming.
Valdimar Samúelsson, 1.5.2018 kl. 10:00
Það var ekki mælt inni í Ásbrgi heldur við það þó venjan sé að kalla það Ásbyrgi. Held að skrá um hitamæla á öllu norðuhvveli sé vandfundin.
Sigurður Þór Guðjónsson, 2.5.2018 kl. 00:54
Þakka Sigurður. Datt þetta bara í hug en hafði heyrt að það ætti að auka staðina með þessa hitamæla.
Valdimar Samúelsson, 2.5.2018 kl. 07:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.