4.9.2007 | 14:21
Vel valið
Nú er ég búinn að velja. Hann eltir mig hvert sem ég fer, kemur hlaupandi til mín þegar ég kalla á hann, fer að mala þegar ég snerti hann og líka þegar ég tala til hans. Og hann lúrir við brjóstið á mér öllum stundum.
Ég hef greinilega valið vel.
Ég er ekki búinn að finna nafn á hann. Það kemur bara af sjálfu sér þegar ég fer að kynnast honum betur.
Ég ætla að veita honum strangt en kristilegt uppeldi.
Við eigum eftir að verða góðir saman.
Meginflokkur: Mali | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt 5.12.2008 kl. 01:11 | Facebook
Færsluflokkar
- Allt í plati
- Blogg
- Bloggar
- Bækur
- Efnisyfirlit um veður
- Ég
- Guð sé oss næstur
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hlýustu og köldustu mánuðir
- Íslensk veðurmet
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Mali
- Mannlífið
- Mánaðarvöktun veðurs
- Menning og listir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Veðurfar
- Veður í annálum og öðrum gömlum heimildum
- Veður um allan heim
- Vísindi og fræði
Tenglar
Blogg
Ýmsir vefir
- Gjósandi eldfjöll
- Kantötur Bachs
- Schubert
- Stjörnuskoðun
- Nótnasafnið
- Torfusamtökin
- Lilta-Ávík
- Blogggáttin
- Doctor E
Blogg
Síður
- Sólarminnstu júlímánuðir
- Þíðukaflar að vetrarlagi í Reykjavík
- Jóla og áramótaveðrið frá 1880
- Sólrík sumur og sólarsnauð
- Sólskin á Íslandi
- Hámarkshiti á landinu um verslunarmannahelgina frá 1949 og veðrið í Reykjavík
- Slær júlí hitamet í Reykjavík
- Óvenju hlý júlíbyrjun
- Nokkrir kaldir janúarmánuðir og kuldadagar
- Hret og snjóar í ágúst
- [ Fleiri fastar síður ]
Eldri færslur
- Mars 2023
- Ágúst 2019
- Desember 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Desember 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Athugasemdir
ji hvað mér líst vel á ykkur! sérstaklega með kristilega uppeldið. Mín kisa er múslimi, eða hún var það amk, ég held að hún sé eitthvað að draga í land með það blessunin litla, hún er amk byrjuð að fara útúr húsi.
halkatla, 4.9.2007 kl. 15:16
Óska þér innilega til hamingju með kisa. Hann gæti heitað Bjartur, miðað við birtuna sem hann gefur eiganda sínum. Þú baðst ekki um tillögur svo að ég sting ekki upp á neinu. Gangi þér vel með uppeldið. Þið verðið frábærir saman.
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 4.9.2007 kl. 16:01
Ég myndi kalla hann Trítil - hann er eitthvað svo óttalega lítill og sætur (ennþá). En láttu gelda hann þegar hann stækkar, þeir verða svo erfiðir fresskettirnir þegar þeir verða kynþroska - þekki það sjálf af biturri reynslu
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 4.9.2007 kl. 16:35
Kannski verður hann stór rumur, tala nú ekki um eftir að ég læt gelda hann. Það finnst mér reyndar ansi nasistalegt en nauðsyn verður víst að brjóta góð siðferðislög.
Sigurður Þór Guðjónsson, 4.9.2007 kl. 16:50
Kristilegt uppeldi = gelding?
Jamm.... góður punktur
Púkinn, 4.9.2007 kl. 19:13
Jamm!
Sigurður Þór Guðjónsson, 4.9.2007 kl. 19:16
Árétting: Kisinn, sem er enn alveg fáránlega lítill, mun fá mjöög strangt og mjöööög kristilegt uppeldi og mun haga sér eftir því þegar hann verður stór.
Sigurður Þór Guðjónsson, 4.9.2007 kl. 21:12
Ég er í kasti yfir að kötturinn hennar Önnu Karenar sé múslimi LOL
Til hamingju með félagann. Athugaðu hvaða músík hann fílar best og skírðu hann svo í höfuðið á tónskáldinu. Schubert (Sjúbbi), Beethoven (Biddi) ...?
Annars hef ég þá reynslu að nöfnin koma af sjálfu sér eftir smá tíma. Einu sinni reyndi ég að finna nafn á kettling sem ég hafði fengið af dýraspítalanum - grindhorað grey sem fannst uppþornað úti í vegkanti einhversstaðar (maður skar sig á herðablöðunum) - þetta var læða og ég rembdist við að finna eitthvað nafn, en ekkert gekk. Ég varð voða hissa því nöfn á öðrum dýrum í minni umsjá höfðu yfirleitt opinberast mér án fyrirhafnar. Það var ekki fyrr en eftir nokkrar vikur þegar ég fór að skoða betur að málið upplýstist: Þetta var þá engin læða. Dýralæknarnir þarna uppfrá höfðu kyngreint hann vitlaust. Anyways - í kjölfarið kom nafnið um leið - Snúður (Snúlli). Glatað nafn, en þetta hét nú bara aumingjans kötturinn.
gerður rósa gunnarsdóttir, 4.9.2007 kl. 21:28
Ein vinkona mín hefur reyndar þegar stungið á upp á nafninu Sjúbert - það er algjört leyndarmál hver hún er - en mér var að detta í hug nafnið Pönkari, en ég trúi líka á að nafnið komi af sjálfu sér. Annars datt mér áðan í hug nafnið Snúður af minni víðfrægu telepatíu. En nú sleppurðu ekki Gerður Rósa: Hvað þýðir þetta LOL sem er á annarri hverri bloggíðu? Mér finnst svo í lagi að kisan hennar Önnu Karenar sé múslimi því þá er hann ekki kaþólskari en andskotinn.
Sigurður Þór Guðjónsson, 4.9.2007 kl. 21:41
Til hamingju með nýja vininn þinn. Þér á eftir að finnast hann ómissandi.
Sjúbbi er fínt nafn. En hvernig finnst þér Mússi? Hann er svo'músalegur'
Manstu ekki að þegar við vorum börn kölluðum við allt músalegt sem okkur fannst krúttlegt.
Katrín Snæhólm bloggvinkona mín upplýsti mig um hvað LOL þýðir. Það er skammstöfun á Laugh of loudly eða á íslensku, hlæja upphátt, nú eða skella uppúr. Við getum þá notað HU eða Skeupp. Mér finnst HU betra.
Svava frá Strandbergi , 4.9.2007 kl. 22:17
Mjá.
Sigurður Þór Guðjónsson, 4.9.2007 kl. 22:20
Ef þú lætur gelda hann sem yngstan getur hann haldið kettlingseðlinu og ekki hætta á að hann verði einhver rumur. Sjáðu Gosa minn Hann er grannur og stæltur þó hann sé geldur.
Svava frá Strandbergi , 4.9.2007 kl. 22:22
Ég horfði á myndina í góða stund og þá kom þetta nafn; Snúður. Svo las ég kommentin og sá að það er komið fram.
Jóna Á. Gísladóttir, 4.9.2007 kl. 22:33
Til hamingju með kisa. Hann ætti að heita surtur.
Frábært comment frá
Halla Rut , 4.9.2007 kl. 22:33
Til hamingju! Auðvitað kemur nafnið - og auðvitað valdi hann þig en ekki þú hann. Mér fannst hann svo fallegur á myndinni að ég kallaði á konuna og dæturnar til að þær fengju að sjá. Það tísti í þeim og þeim fannst hann "ógeðslega mikið krútt". Er ekki amalegt að eiga bloggvini sem eru svona miklir smekkmenn á ketti.
Kall úti í Ólafsfirði á feitan kött sem heitir Bubbi Mortens. Hversu lengi á að láta Björgvin liggja óbættan?
Svavar Alfreð Jónsson, 4.9.2007 kl. 23:17
En Elvis?
Sigurður Þór Guðjónsson, 5.9.2007 kl. 00:06
Ég hef átt tvo ketti um ævina. Sá fyrri hét Skúli skræfa sá síðari var kolsvört læða og skírð Skýla í höfuðið á þeim fyrri. Ekki var hugmyndaflugið meira á mínum bæ. En þessi er svo skínandi bjartur -það þarf að vera einhver ljómi í nafninu sem hann fær. Til hamingju!
María Kristjánsdóttir, 5.9.2007 kl. 01:46
Gott að þú komst María til að kommentera á þetta mikilvæga þjóðþrifamál. Þar með eru hér mættir allir uppáhaldsbloggararnir mínir!
Og takk fyrir allar uppástungunar.
Sigurður Þór Guðjónsson, 5.9.2007 kl. 01:57
Til hamingju.
Ég á 2 ketti og heitir annar Snati og er læða, hinn heitir Gormur. Það var búið að ákveða Snata-nafnið en Gorms-nafnið bara kom alveg óvart.
Þegar þú talar um að kisinn þinn komi þegar þú kallar, mali við það að sjá þig minnir mig dálítið á mínar kisur. Reyndar er búið að kenna Snata að sækja bolta eins og hundur og Gormur spilar fótbolta og er það hin besta skemmtun að fylgjast með.
Fjóla Æ., 5.9.2007 kl. 11:02
Bæði Gosi og Tító þegar hann var heilsuhraustari koma með hluti til mín gagngert til þess að ég hendi þeim svo þeir geti sótt þá og komið með þa´aftur til min.
Gosi er líka góður í handbolta ef ég bind mjúkan bolta í teygju og sveifla honum til hans grípur hann alltaf boltann. Svo hoppar hann um á afturfótunum í æsingnum.
Tító er farinn að borða eftir að hann fékk sterana.
Svava frá Strandbergi , 5.9.2007 kl. 22:37
Minn kisi er strax byrjaður að spila Chopinvalsa á píanóið. Ég held hann sé undrabarn, undraköttur.
Sigurður Þór Guðjónsson, 5.9.2007 kl. 22:57
Ég heyrði Chopin einusinni borið fram eins og Skæjopin - hvernig lýst þér á það nafn?
Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 6.9.2007 kl. 13:42
Við systur erum alveg ótrúlega sammála um að nafnið Matthías ætti að halda sig hjá honum! Það fer honum svo voðalega vel :):)
Lilja og Halldóra fyrrverandi mæður Matthíasar! (IP-tala skráð) 10.9.2007 kl. 20:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.