30.5.2008 | 12:59
Leiðum þá til hjálpræðis!
Nú þarf bara að vinda bráðan bug að því að kristna þessa vesalings heiðingja svo þeir öðlist hið eina sanna hjálpræði Jesú Krists. Ó, hans blessaða síðusár! Það frelsar alla menn frá ljótri synd og argri villu.
Myndir nást af óþekktum ættbálki í Brasilíu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkur: Guð sé oss næstur | Breytt 6.12.2008 kl. 17:45 | Facebook
Færsluflokkar
- Allt í plati
- Blogg
- Bloggar
- Bækur
- Efnisyfirlit um veður
- Ég
- Guð sé oss næstur
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hlýustu og köldustu mánuðir
- Íslensk veðurmet
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Mali
- Mannlífið
- Mánaðarvöktun veðurs
- Menning og listir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Veðurfar
- Veður í annálum og öðrum gömlum heimildum
- Veður um allan heim
- Vísindi og fræði
Tenglar
Blogg
Ýmsir vefir
- Gjósandi eldfjöll
- Kantötur Bachs
- Schubert
- Stjörnuskoðun
- Nótnasafnið
- Torfusamtökin
- Lilta-Ávík
- Blogggáttin
- Doctor E
Blogg
Síður
- Sólarminnstu júlímánuðir
- Þíðukaflar að vetrarlagi í Reykjavík
- Jóla og áramótaveðrið frá 1880
- Sólrík sumur og sólarsnauð
- Sólskin á Íslandi
- Hámarkshiti á landinu um verslunarmannahelgina frá 1949 og veðrið í Reykjavík
- Slær júlí hitamet í Reykjavík
- Óvenju hlý júlíbyrjun
- Nokkrir kaldir janúarmánuðir og kuldadagar
- Hret og snjóar í ágúst
- [ Fleiri fastar síður ]
Eldri færslur
- Mars 2023
- Ágúst 2019
- Desember 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Desember 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Athugasemdir
Eru þetta þínar nýjustu veðurfréttir, lagsi? En að gamni slepptu, hefurðu aldrei aldrei hugsað út í hitt, að Guð hafi leiðir til að bjóða í náð sinni gjafir og ávinning endurlausnarinnar þjóðum sem hafa ekki heyrt af Kristi? "Nafnlausan kristindóm" kallaði Karl Rahner það og byggði í þessu efni ekki á lakari arfleifð en t.d. frá Thómasi frá Aquino. Kynntu þér málið, Sigurður.
Jón Valur Jensson, 30.5.2008 kl. 13:09
Er þetta þá ekki kaþólski skilningurinn Jón Valur? Trúin ein bjargar samkvæmt Lúther.
Óli Gneisti (IP-tala skráð) 30.5.2008 kl. 13:13
Þetta er eiginlega bara vinarkveðja til þín og þú tókst líka við þér! En í alvöru talað: Þetta hlýtur að bylta lífi þessa ættflokks. Það er hætt við því að menn fari að nálgast þá og troða upp á þá nútímamenningu og rannsóknum mannfræðinga, trú og svo framvegis.
Sigurður Þór Guðjónsson, 30.5.2008 kl. 13:15
Ég skil þig vel, Sigurður, en af því, sem Vesturlandamenn færa slíkum þjóðum, er vel boðuð og sönn trú á Krist með albeztu gjöfunum.
Gneisti, já, þetta er kaþólski skilningurinn. En hjálpræðið verður ekki án trúar í einhverjum skilningi, trúar/trausts á æðri mátt, bænar/óskar um liðveizlu hans (hvernig sem Hann fari að því; en í reynd er Kristur sá vegur hans, leið Guðs) og opnum hug//vilja til að fara að leiðsögn hans.
Jón Valur Jensson, 30.5.2008 kl. 14:05
Ég býst við að þessi ættflokkur iðki einhverja trú. Vandinn byrjar þegar einhverjir sem þykjast eiga hina einu sáluhjálparlegu trú reyna að troða sinni trú upp á þá. Ég hugsa til þeirrar menningarlegu og félagslegu katastrófu fyrir þennan ættflokk með hryllingi, hvort sem þar fara kristnir menn, múslimar eða einhverjir aðrir.
Sigurður Þór Guðjónsson, 30.5.2008 kl. 14:24
Ertu að vitna í þann Aquinas, nafni, sem sagði eftirfarandi:
As regards the individual nature, woman is defective and misbegotten, for the active power of the male seed tends to the production of a perfect likeness in the masculine sex; while the production of a woman comes from defect in the active power.
Og þessa skemmtilegu setningu:
Beware of the person of one book.
Eða:
If forgers and malefactors are put to death by the secular power, there is much more reason for excommunicating and even putting to death one convicted of heresy.
Ekki Skrítið að þú dáir hann, þótt þú sért maður einnar bókar.
Marteinn okkar Lúter:
"Be a sinner and sin strongly, but more strongly have faith and rejoice in Christ."
"Faith must trample under foot all reason, sense, and understanding."
"Reason is a whore, the greatest enemy that faith has."
Raunar allt mjög Kaþólskt í anda og því illskiljanlegt að Lúter skuli enn bannfærður af Páfa, sem þverneitar enn að aflétta því. Merkilegt einnig að Lúterska kirkjan í því ljósi, skuli bjóða Kaþólskuni að nota Krikjur sínar.
Annars varðandi trúboð og efni greinarinnar:
Það er skiljanlegt að kirkjan sæki þangað, sem algert þekkingarleysi ríkir eins og í saklaus og hrein smábörn og frumstæða þjóðflokka. Það er jú mikilvægt að ná til þeirra áður en heilbrigð skynsemi nær að festa rætur. Er einhver önnur ástæða fyrir áheslunni á þessa markhópa nafni?
Jón Steinar Ragnarsson, 30.5.2008 kl. 14:57
Þessi vísun í "opinn hug" hjá þér Jón er einnig mög tvafasöm og víst að kristnin leyfir ekki nema glufu í þann enda, sem að henni snýr, eins og sjá má t.d. af orðum Lúters hér að ofan, nú eða viðhorfi þínu til ótrúklyfjaðra.
Jón Steinar Ragnarsson, 30.5.2008 kl. 15:04
Þetta er fín tilvitnun líka Rafn:
...ég, Drottinn Guð þinn, er vandlátur Guð, sem vitja misgjörða feðranna á börnunum, já í þriðja og fjórða lið, þeirra sem mig hata,... (2Mós 20.5)
Og til staðfestingar þessu að börn eigi að líða fyrir syndir feðranna, þá stendur þetta í trúarjátningu hinnar Lútersku Íslensku kirkju:
Eftir fall Adams fæðast allir menn, sem getnir eru á eðlilegan hátt, með synd, en það merkir án guðsótta, án guðstrausts og með girnd. Þessi upprunasjúkdómur eða spilling er raunveruleg synd, sem dæmir seka og steypir í eilífa glötun þeim sem ekki endurfæðast fyrir skírn og heilagan anda.
Semsagt, bara þeir sem eru eingetnir og hafa ekki orðið til fyrir eðlileg náttúrueg vessaskipti skulu undir þennan dóm felldir syndugir án undantekningar. Skil því ekki til hvers trúboð á að hafa eitthvað upp á sig.
Maður deilir ekki við almáttugann. Og þegar ég minnist á það...Skyldi guð geta gert svo þungan stein að hann geti ekki lyft honum?
Jón Steinar Ragnarsson, 30.5.2008 kl. 18:31
Kostirnir eru ekki margir. Maður verður að segjast vera í liðinu og láta skvetta á sig vatni til að eiga séns, en það er þó ekki algilt að það dugi samkvæmt t.d. orðum Lúters og raunar bókarinnar líka. Ef þú hendir ekki allri skynsemi og rökhyggju út um gluggann, þá ertu búinn að vera.
Úff...
Jón Steinar Ragnarsson, 30.5.2008 kl. 18:34
Ef að þetta er ekki sviðsett þá skal ég hundur heita.
Rigor (IP-tala skráð) 30.5.2008 kl. 19:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.