Ögmundur hittir naglann á höfuðið

Ögmundur hittir hér einmitt naglann á höfuðið.

Hvar sem maður talar við fólk finnur maður einmitt að það heldur að eitthvað mikið sé framundan í eldgosamálum. Allan tímann sem gaus á Fimmvörðuhálsi fannst mér t.d.að aðalgosið væri eftir.

Þessar hugsanir fólks eru byggðar í bland á skoðunum vísindamanna og svo er bara eins og fólk finni eitthvað á sér.Ég er á móti hvers kyns hjátrúardellu og þvættingi. En grunur margra um meiri eldgos á næstunni er eigi að síður ósköp skynsamlegur og raunhæfur.

Forsetinn hefur verið skammaður fyrir það að spá stóru Kötlugosi sem hann gerði reyndar aldrei. En Kötlugos eru alltaf Kötlugos og það væri þá eitthvað nýtt ef næsta Kötlugos yrði lítilmótlegra en þetta smágos í Eyjafjallajökli.

Nú ætla ég láta uppi mitt óskeikula hugboð um framhaldið:

Ég held að þetta sé bara rétt að byrja! Frown

Það er fyrst og fremst einhver óvild af stjórnmálalegum toga og svo peningalegir hagsmunir sem stjórna viðbrögðum manna vegna orða forsetans.

Hann er náttúrlega orðinn hrein plága svona almennt talað og þjóðin metur hann lítils. En oft ratast samt kjöftugum satt á munn.

Sú krafa frá sumum að engir megi ljúka upp munni um hugsanleg eldgos nema jarðvísindamenn er ansi ritskoðunarleg og hlægilega ofgerð kennivaldadýrkun í þokkabót.

 


mbl.is Ögmundur kemur forsetanum til varnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sævar Helgason

Eg held að sú alda sem reis á móti forsetanum útaf þessu BBC viðtali eigi sér þær rætur að að það sé ekki í verkahring forsetans að gefa út svona yfirlýsingar. Við höfum stjórnvöld sem að baki sér eru með almannavarnir og allt fræðasamfélagi sem á að koma svona upplýsingum á framfæri við erlendar þjóðir. Hér eru allar jarðhræringar í gjörgæslu og hafa verið um áratugaskeið. T.d er vefur Veðurstofu Íslands á heimsmælikvarða og er mikið nýttur um allan heim í þessum jarðhræringum. Í upphafi gossins á Fimmvörðuhálsi var t.d mikið fjallað um mögulegt Kötlugos og afleiðingar þess- í Bandaríkunum...og víðar.

Sævar Helgason, 24.4.2010 kl. 11:58

2 Smámynd: Þórir Kjartansson

Ég er af gamla skólanum og hef alltaf borið mikla virðingu fyrir forsetaembættinu. En ÓRG er alveg búinn að gera út af við þá virðingu og það mun ekki breytast á meðan hann situr á Bessastöðum. Tek svo undir það sem Sævar segir hér að ofan.

Þórir Kjartansson, 24.4.2010 kl. 13:10

3 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Ég sé ekki betur en að gosið í Eyjafjallajökli sé ágætis æfing fyrir Evrópubúa vegna næsta Kötlugoss, hvenær sem það verður. Það er annars athyglisvert að sjá hvernig mismunandi viðbrögð Ögmundar og Steingríms endurspegla það sem þeim finnst um afgreiðslu forsetann á Icesave málinu.

Emil Hannes Valgeirsson, 24.4.2010 kl. 13:48

4 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Ögmundur er hvorki betri eða verri en hann er, sem er og með okkur öll og það hendir eflaust alla að slá á puttana á sér af og til.  En ég hef tilhneigingu til að taka undir orð tveggja stuttorðra manna þeirra Þóris og Emils hér í athugasemdum.

Hrólfur Þ Hraundal, 24.4.2010 kl. 16:25

5 Smámynd: Kama Sutra

Ég tek undir með Jenný Önnu, ÓRG verður hér eftir í mínum huga ekkert annað en Hrunforsetinn.

Sorrý Ólafur.

Ég vil nýjan forseta, takk!

Kama Sutra, 24.4.2010 kl. 18:00

6 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Mjá!

Sigurður Þór Guðjónsson, 24.4.2010 kl. 18:25

7 Smámynd: Kama Sutra

Mjá mjá, segir Mali - Mali segir mjá.

Trallalla... 

Kama Sutra, 24.4.2010 kl. 18:30

8 identicon

Ólafur og Ögmundur eru bullarar.....að vara útlendinga við Kötlugosi er bara hræðsluáróður því það er engum í útlöndum hætta búin af Kötlu......jafnvel þótt hann fari til Íslands.....hætta af Kötlu annarstaðar er ekki eitthvað sem fólk getur forðast eins og að eiga viðskipti við íslenskan banka...........t.d.  af því að forsetinn mærir hann

stefan benediktsson (IP-tala skráð) 24.4.2010 kl. 20:17

9 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég veit ekki hvort það er kallað ''hætta'' ef flugsamgöngur truflast. En það var það sem forsetinn átti við. 

Sigurður Þór Guðjónsson, 24.4.2010 kl. 20:21

10 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Meiri ástæða til þess að hafa áhyggjur af vegasamgöngum en flugsamgöngum. Bílaröð fólks á flótta úr borginni hreyfist varla í örtröðinni ofan Ártúnsbrekku á leið norður í átt að Mosfellssveit í þreifandi öskubyl.

Aðeins tveir fólksbílar á akreinunum í átt að borginni, annar bíllinn er eineygur. Katla gamla er saklaus.

Kolbrún Hilmars, 24.4.2010 kl. 21:52

11 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Það eru undarlegar sumar athugasemdirnar við þessu bloggi Sigurðar. Það er engu líkara en margir þeirra sem tjá sig hafi ekki séð eða heyrt viðtal Ólafs við fréttamann BBC. Ég ráðlegg fólki að skoða þetta viðtal áður en það tjáir sig, það er ekkert í því sem er ekki satt og rétt, það er ekkert í því sem ætti að vekja ótta og það er ekkert í því sem Ólafur þarf að afsaka eð skammast sín fyrir. 

Gunnar Heiðarsson, 25.4.2010 kl. 04:33

12 Smámynd: Gísli Ingvarsson

það er alveg rétt að ÓRG þarf ekkert að skammast sín. ég skammast mín hinsvegar fyrir hann. þetta svolítið einog að skammast sín fyrir nákominn ættingja sem hefur gert meira úr sínu hlutverki en til stendur. Sammála Kama Sutra að við þurfum nýjan forseta eða leggja embættið niður sem mér sýnist engin vanþörf á svona persónulega. forsetaembættið var hannað sem statisti fyrir kóng. það verður að endurhanna það hlutverk frá grunni.

Gísli Ingvarsson, 25.4.2010 kl. 10:00

13 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Algjörlega á sama máli og Gísli og Kama Sutra um forsetann!

Sigurður Þór Guðjónsson, 25.4.2010 kl. 13:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband