4.6.2010 | 14:36
Gleymdist að setja á myndbandið
Svifryk fer yfir heilsuverndarmörk í Reykjavík í dag og jafnvel líka á morgun.
Mistrið er augljóst í Reykjavík núna og ekki sérlega geðslegt að líta í kringum sig en ekki sést til fjalla.
Fólk sem er veikt í lungum, eins og ég t.d. núna, er hvatt til að vera heima. Nú er 18 stiga hiti á öllu Reykjavíkursvæðinu og um og yfir 20 stig í Borgarfirði. Það er alls ekki útilokað að þetta verði mesti hiti sumarsins á þessum slóðum.
En fólk er hvatt til að vera inni!
Reykjavík er ansi langt frá upptökum öskunnar. Samt er hún hér svona augsýnileg. Og það mun hún líklega verða í allt sumar hér og hvar á landinu, jafnvel dögum saman, eftir því hvernig vindur blæs á hverjum stað. Mest þó sem nær dregur elstöðvunum. Heilsufarsmörk svifryks eru 50 mikrógrömm en voru áðan 3000 á Hvolsvelli en 440 í Reykjavík.
Þetta er hin eldfjallalega og veðurfarslega staðreynd málsins.
Það gleymdist samt alveg að minnast á hana í þessu myndbandi sem á að telja útlendinga á að koma til Íslands.
Í rauninni er verið að blekkja þá og ljúga að þeim um þann náttúrufarslega veruleika sem hér ríkir. Meira um öskuna.
Myndin af vefmyndavél Veðurstofunnar sem snýr upp í vindáttina segir sína sögu. Myndin stækkar ef smellt er nettlega á hana.
Aska svífur yfir Reykjavík | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Færsluflokkar
- Allt í plati
- Blogg
- Bloggar
- Bækur
- Efnisyfirlit um veður
- Ég
- Guð sé oss næstur
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hlýustu og köldustu mánuðir
- Íslensk veðurmet
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Mali
- Mannlífið
- Mánaðarvöktun veðurs
- Menning og listir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Veðurfar
- Veður í annálum og öðrum gömlum heimildum
- Veður um allan heim
- Vísindi og fræði
Tenglar
Blogg
Ýmsir vefir
- Gjósandi eldfjöll
- Kantötur Bachs
- Schubert
- Stjörnuskoðun
- Nótnasafnið
- Torfusamtökin
- Lilta-Ávík
- Blogggáttin
- Doctor E
Blogg
Síður
- Sólarminnstu júlímánuðir
- Þíðukaflar að vetrarlagi í Reykjavík
- Jóla og áramótaveðrið frá 1880
- Sólrík sumur og sólarsnauð
- Sólskin á Íslandi
- Hámarkshiti á landinu um verslunarmannahelgina frá 1949 og veðrið í Reykjavík
- Slær júlí hitamet í Reykjavík
- Óvenju hlý júlíbyrjun
- Nokkrir kaldir janúarmánuðir og kuldadagar
- Hret og snjóar í ágúst
- [ Fleiri fastar síður ]
Eldri færslur
- Desember 2024
- Mars 2023
- Ágúst 2019
- Desember 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Desember 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Athugasemdir
En það gleymdist ekki að setja berrassað par - því líkt hallæris hugarfar - óviðeigandi með öllu.
Benedikta E, 4.6.2010 kl. 16:43
Mér finnst nú svo sem allt í lagi með bera bossa!
Sigurður Þór Guðjónsson, 4.6.2010 kl. 16:53
Já bossar eru nauðsynlegir, ekki skemma þeir tilveruna nema fyrir strangtrúaða og kanann auðvitað.
Finnur Bárðarson, 4.6.2010 kl. 17:29
Útlendingar eru á annarri skoðun - ég fékk strax viðbrögð á berrassaða parið - frá útlöndum - það þykir óviðeigandi í svona landkynningar efni - ég er sammála því -
Við ættum ekkert að gera í því að halda í Sódóma og Gómóra ímyndina sem R -listinn kom á Reykjavík - Sódóma Reykjavík.
Berrassað fólk á ekki allstaðar við .........................Glætan.
Benedikta E, 4.6.2010 kl. 17:49
Always look on the bright side of life. Hugsaðu þér bara ef myndin af berrassaða fólkinu hefði verið tekin framan frá!
Sigurður Þór Guðjónsson, 4.6.2010 kl. 18:39
Þá hefði áróðursbragðið algjörlega misheppnast fyrir - ferðaþjónustuna - margir þeir útlendingar sem hafa fengið þetta kynningarefni yfir sig hefðu tekið það með eldtöng - það á eftir að koma í ljós hvort -berrassarnir - trekkja.
Benedikta E, 4.6.2010 kl. 19:20
Áfram bossar í öllum löndum !
Finnur Bárðarson, 4.6.2010 kl. 20:19
Ég hef heyrt í útlendingum sem hrósa þessu myndbandi sérstaklega vegna þess að framleiðendur þess þorðu að vera örlítið djarfir sem er óvenjulegt í hefðbundinni „landkynningu“. Ég giska á að þeir séu fleiri á þeirri skoðun en þær teprur sem fá áfall yfir því að berir bossar og smá brjóst sjáist í 4 sekúndur, og að þeir séu líka skemmtilegri ferðamenn (sem er mikilvægt fyrir geðheilsu þeirra Íslendinga sem vinna við ferðaþjónustu).
Vonandi fáum við annars miklar stórrigningar á suðurlandið fljótlega til að hreinsa burt skítinn. Ef það verður alveg ólíft á Suðurlandi út af þessu næstu mánuðina þá er líka vert að minna á að Ísland er stærra en bara suður og suðvesturland. Ótrúlegt en satt.
Bjarki (IP-tala skráð) 4.6.2010 kl. 22:22
Íslendingar eru rassálfar.
Svava frá Strandbergi , 5.6.2010 kl. 01:33
þarf ekki að bæti við á vidoið rappandi öskuköllum í þéttbýli?
Sigurður örn brynjólffson (IP-tala skráð) 5.6.2010 kl. 07:29
Ef vindur blæs þannig getur aska hæglega borist til suðausturlands og jafnvel austurlands og upp á hálendið, jafnvel yfir það til byggða fyrir norðan. Öskufall sem kemur úr loftinu, en fýkur ekki af jörðunni, berst mjög oft norður og veldur þar vandræðum. Mest af Hekluösku fyrr og síðar hefur fallið á norðurlandi. Þetta er því engan veginn spurning um suður og suðvesturland.
Sigurður Þór Guðjónsson, 5.6.2010 kl. 11:17
Ja þetta þynnist nú nokkuð skarpt með meiri fjarlægð frá gosstöðvunum. Höfuðborgarsvæðið er í ca. 120 km fjarlægð frá jöklinum en mistrið þyrfti að berast 190 km norður á bóginn til að ná í innstu byggðir í Skagafirði eða 240 km til að ná til Akureyrar. Það má vera að slíkar aðstæður skapist en það verður þá aldrei neitt í líkingu við það sem við sjáum á Suðurlandi. Hvað þá á Austurlandi eða Vestfjörðum.
Bjarki (IP-tala skráð) 5.6.2010 kl. 16:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.