5.12.2010 | 17:47
Bréf til Borgarráðs
Borgarráð hefur ákveðið að breyta nafninu á götunni þar sem ég hef búið í áratugi.
Um þetta vissi ég ekki fyrr en ég sá það og las í fjölmiðlum. Þar sem ég bý hefur engin tilkynning komið um eitt né neitt. Það hefði ekki farið framhjá mér og ég hefði strax brugðist við. Enginn í næstu húsum kannast heldur ekki við neitt.
Þegar ég gúglaði málið eftir að það kom núna í fjölmiðlum rakst ég í Pressunni á viðtal frá því í vor við Júlíus Vífil Ingvarsson, formann skipulagsnefndar Reykjavíkurborgar. Eftirfarandi er þar haft eftir honum:
''Málið hefur hlotið talsverða umræðu og skoðanir eru skiptar meðal íbúa. Það hefur ekki verið afgreitt í borgarráði því eftir afgreiðslu skipulagsráðs var ákveðið að beiðni íbúa á svæðinu að efna til samráðsfundar með þeim til að ræða tillögurnar en ekki eru allir íbúar sáttir við þær.''
Ekki kannast ég við neitt af þessu eins og ég hef áður sagt. Engar upplýsingar eða boð um fundi eða nokkurn skapaðan hlut hafa borist í húsið þar sem ég bý og ekki heldur næstu hús. Við höfum því ekki haft tækifæri til neins samráðs.
Júlíus Vífill segir þarna vonast til að hægt verði að ná breiðri sátt um þetta mál. En hún er greinilega ekki svo breið að hún hafi náð til allra íbúa sem málið varðar.
Hins vegar hefur Júlíus Vífill gert sér grein fyrir því að þessar fyrirætlanir myndu mæta andstöðu. Í fyrsta lagi eru þetta rótgrónar götur og mörgum almennum borgarbúum er illa við að verið sé að hringla með gömul götunöfn í borg sem þeim þykir vænt um og tengjast sögu hennar sterkum böndum. Í öðru lagi eru þeir sem lengi hafa búið í sömu götu oft viðkvæmir fyrir því að nafni götunnar sé breytt allt í einu. Þegar það svo gerist, eins og í þessu tilfelli, án þess að það sé svo mikið sem nefnt við íbúana, að minnsta kosti suma þeirra, eins og þeim komi það bara ekki hið minnsta við, líður þeim nánast eins og einhver sé að ryðjast inn í einkalíf þeirra og ráðskast með það að þeim forspurðum. Þetta er líking, því þetta tvennt er auðvitað ekki alveg eins. En ég er að reyna að benda á hvernig þeim verður við sem lenda í þvíum líku. Þetta hlýtur óhjákvæmilega alltaf að vera tilfinningamál. Og ekki síður þegar fólki er sýnd bein lítilsvirðing.
Vegna andstöðunnar virðist af fréttinni í Pressunni, sem hér er vísað til, að Borgarráð hafi ætlað að hverfa frá því að breyta götunöfnunum en það hefur greinilega ekki orðið ofan á eftir allt saman. Ég hef séð í öðrum nýlegum fréttum að það hafi ekki þótt góður kostur að nefna nýjar götur í höfuðið á þessum konum. En það þykir greinilega betri kostur að breyta rótgrónum götunöfnum og lenda í útistöðum við íbúa. Ég lýsi yfir undrun minni á því að Reykjavíkurborg þyki það álitlegri kostur heldur en að fara í aðgerðir sem ekki hefðu mætt andstöðu neins staðar frá.
Tilefni nafnbreytinganna, virðingarvottur við merkiskonur, er góðra gjalda verður. En fyrir þá sem mótmæla nafnbreytingunum sjálfum getur tilefnið einmitt verið býsna óþægilegt. Aldrei að vita nema þeir verði stimplaðir sem andvígir kynjajafnrétti, skorti virðingu fyrir konum eða séu jafnvel haldnir karlrembu.
Ég fer fram á skriflegar skýringar frá Reykjavíkurborg á því hvers vegna íbúum þess húss þar sem ég bý og reyndar fleirum í grennd var ekki gefinn minnsti kostur á neins konar samráði eða sátt í þessu máli.
Að lokum leyfi ég mér að mælast til þess að borgin dragi þessar nafnbreytingar til baka svo ekki fari nú fyrir þessum nöfnum eins og þegar Klambratún var formlega endurnefnt Miklatún, nafn sem enginn tók sér í munn, bara til þess að verða aftur skírt Klambratún af núverandi borgarstjóra. Ég er reyndar illa svikinn ef hann sér ekki hve absúrd það er að ætlast til að nokkur fari að kalla gömlu góðu Skúlagötuna Bríetartún!
Með bestu kveðjumSigurður Þór Guðjónsson
Þetta bréf mun ég senda með pósti til Borgarráðs á morgun. En þar sem efni þess snertir borgarmál almennt og hvernig borgaryfirvöld umgangast íbúana læt ég það hér líka koma fyrir almenningssjónir.
Færsluflokkar
- Allt í plati
- Blogg
- Bloggar
- Bækur
- Efnisyfirlit um veður
- Ég
- Guð sé oss næstur
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hlýustu og köldustu mánuðir
- Íslensk veðurmet
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Mali
- Mannlífið
- Mánaðarvöktun veðurs
- Menning og listir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Veðurfar
- Veður í annálum og öðrum gömlum heimildum
- Veður um allan heim
- Vísindi og fræði
Tenglar
Blogg
Ýmsir vefir
- Gjósandi eldfjöll
- Kantötur Bachs
- Schubert
- Stjörnuskoðun
- Nótnasafnið
- Torfusamtökin
- Lilta-Ávík
- Blogggáttin
- Doctor E
Blogg
Síður
- Sólarminnstu júlímánuðir
- Þíðukaflar að vetrarlagi í Reykjavík
- Jóla og áramótaveðrið frá 1880
- Sólrík sumur og sólarsnauð
- Sólskin á Íslandi
- Hámarkshiti á landinu um verslunarmannahelgina frá 1949 og veðrið í Reykjavík
- Slær júlí hitamet í Reykjavík
- Óvenju hlý júlíbyrjun
- Nokkrir kaldir janúarmánuðir og kuldadagar
- Hret og snjóar í ágúst
- [ Fleiri fastar síður ]
Eldri færslur
- Mars 2023
- Ágúst 2019
- Desember 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Desember 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006