24.4.2011 | 20:49
Vorið góða grænt og hlýtt
Ég sé ekki betur en sá apríl sem nú er að líða standi sem sá tíundi hlýjasti sem mælst hefur á landinu.
Hann er samt ekki búinn. Kannski stígur hann enn.
Hvergi er alhvít jörð á veðurstöð og víðast hvar alautt. En það er reyndar snjór á jöklunum!
Úrkoman er komin yfir 100 mm í Reykjavík og verður spennandi að sjá hvort úrkomumetið frá 1921, 150 mm, verður slegið.
Svo spyr fréttamaður Ríkisútvarpsins í fréttatíma veðurfræðing hvort vorið sé ekkert að koma. Í þessu felst það álit að enn hafi ekki vorað neitt.
Ef ekki er enn farið að vora í langt liðnum apríl sem stendur sem sá tíundi hlýjasti hve nær í andskotanum hefur þá eiginlega vorað áður fyrr?
Páll Bergþórsson hefur á fasbókarsíðu sinni nokkru sinnum bent á augljós vormerki hvar sem litið er: gott ástand jarðvegsins og gróðurins. Fyrir nú utan tölulegar staðreyndir.
En sumir virðast blindir fyrir öllu nema einhverri andvormúgsefjun sem leidd er af fjölmiðlum.
Það er heilmikið vor. En það er talsvert sérkennilegt í háttum og fer sínar eigin leiðir og ætti fyrir það einmitt að fá greinagóða athygli í fjölmiðlum fremur en marklaust fuss og svei.
Færsluflokkar
- Allt í plati
- Blogg
- Bloggar
- Bækur
- Efnisyfirlit um veður
- Ég
- Guð sé oss næstur
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hlýustu og köldustu mánuðir
- Íslensk veðurmet
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Mali
- Mannlífið
- Mánaðarvöktun veðurs
- Menning og listir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Veðurfar
- Veður í annálum og öðrum gömlum heimildum
- Veður um allan heim
- Vísindi og fræði
Tenglar
Blogg
Ýmsir vefir
- Gjósandi eldfjöll
- Kantötur Bachs
- Schubert
- Stjörnuskoðun
- Nótnasafnið
- Torfusamtökin
- Lilta-Ávík
- Blogggáttin
- Doctor E
Blogg
Síður
- Sólarminnstu júlímánuðir
- Þíðukaflar að vetrarlagi í Reykjavík
- Jóla og áramótaveðrið frá 1880
- Sólrík sumur og sólarsnauð
- Sólskin á Íslandi
- Hámarkshiti á landinu um verslunarmannahelgina frá 1949 og veðrið í Reykjavík
- Slær júlí hitamet í Reykjavík
- Óvenju hlý júlíbyrjun
- Nokkrir kaldir janúarmánuðir og kuldadagar
- Hret og snjóar í ágúst
- [ Fleiri fastar síður ]
Eldri færslur
- Mars 2023
- Ágúst 2019
- Desember 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Desember 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Athugasemdir
Ég er reyndar á góðri leið með að gefa þessum mánuði algera falleinkun.
Emil Hannes Valgeirsson, 25.4.2011 kl. 12:20
Það gildir þá væntanlega bara um Reykjavík. Annars gæti ég trúað að erfitt sé að gefa mánuði eins og apríl einkunnir. Hvor er betri kyrr norðanáttadagur með mikilli sól en talsverðum næturfrostum og 2-3 stiga dagshita eða alskýjaður dagur með rigningu og nokkrum vindi en hita allan sólarhringinn 4-7 stig? Við hvað á að miða? Góðan göngutúr, golfspil eða ástand gróðursins t.d.? Í mínum huga er þetta ekki slæmur apríl í Reykjavík, en heldur ekki yndislegur, en í heild á landinu er hann frábær enn sem komið er. Gaman verður annars að sjá hvaða einkunn hann fær hjá þér að lokum og hvernig þeim ber þá saman við tölulegsar staðreyndir. Í gömlum veðureimildum er algengt að menn hafi gefið mánuðum einkanir sem manni finnst ekki stemma við mælingar sem líka voru gerðar. T.d. fá einhver köldustu sumur allra tíma, 1887 og 1888 minnir mig, fínar umsagnir hjá Þorvaldi Thoroddsem sem hann tekur auðvitað eftir öðrum sem upplifðu veðrið sjálfir. Hvað er það þá eignlega sem fær menn til að finnast veðurfar í vissan tíma gott eða vont?
Sigurður Þór Guðjónsson, 25.4.2011 kl. 12:50
Í kaldasta maí allra tíma, 1979, má sjá blöðin lofa blíðuna í upphafi mánaðarins en þá skein sól alla daga sem allir voru langt undir frostmarki að meðaltali en frostlausir og varla það um hádaginn.
Sigurður Þór Guðjónsson, 25.4.2011 kl. 13:04
Þetta er ágætis umhugsunarefni. Ætli veðurgerðir séu ekki misvinsælar og hitinn bara einn þáttur. Sólríkir hægviðrisdagar í apríl teljast yfirleitt góðir enda er þá aðalkuldinn á nóttinni og fer framhjá flestum. Gluggaveður spila þarna líka inní. Skoðum þetta í lok mánaðar.
Emil Hannes Valgeirsson, 25.4.2011 kl. 13:16
Apríl og maí eru viðkvæmir mánuðir. Sólríkir dagar syðra í þeim mánuðum með frábæru gluggaveðri eru ekkert sérlega hagstæðir fyrir komu gróðurs og ýmislegt annað vorlegt vegna þurrka og frosta og þá er oft hreint vetrarríki fyrir norðan. Næturfrost fara ekki framhjá jarðveginum. Rakar sunnanáttir eru þá betri en eru samt kannski ekki sérlega vel séðar. Þetta breytist svo þegar kemur vel fram á sumarið. Þá má mæla eindregið með sólardögum.
Sigurður Þór Guðjónsson, 25.4.2011 kl. 13:26
Hef verið að skoða gömul veðurkort inná vedur.is og árin 2009 og 2010 voru frekar köld vor en þar á undan hlý þó sérstaklega 2007 og 2008.
Í fyrra man ég samt að sólríkt var og runnarnir í garðinum mínum voru allaufgaðir í lok mars og þurfti ég að vernda þá þegar leiðindarfrost og hvassviðri kom í lok mars 2010. Nú í ár eru þeir rétt að byrja og það er 25 april. Þó það sé hlýtt og allt það þá er veðráttan leiðinleg ☺
Ég var að spá: hefurðu tekið saman gæði þeirra sumra þegar vetur og sumar hafa frosið saman og svo þeirra sumra þegar vetur og sumar hefur ekki frosið saman ?
"Skildi eitthvað vera til í þessari þjóðtrú" ☺☺☺ nei grín
Rabbi (IP-tala skráð) 25.4.2011 kl. 17:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.