26.5.2011 | 12:59
Leyndarhyggja Landlæknis
Rannsókn hefur leitt í ljós að á einum þriðja hjúkrunarheimila fyrir aldraða - ekki einum tíunda - sé ástandið óviðunandi. Nýlega komu fram fréttir um hræðilega vonda umönnun á heilabiluðum gömlum manni á hjúkrunarheimili.
Landlæknir vill ekki opinbera hvaða heimili koma verst út. Hann segist óttast að það muni leiða til þess að ekki fáist þá mannskapur til að vinna á þeim.
Og hvað með það? Ætti bara ekki að loka þeim ''hjúkrunarheimilum'' sem búa þannig að heilabiluðu fólki eins og lýst hefur verið með gamla manninn sem lá í eigin saur og óhreinindum dögum saman?
Og hvað með aðstandendur þeirra sem horfa fram til þess að neyðast til að setja ættingja sína á hjúkrunarheimili? Eiga þeir ekki rétt á að vita hvaða heimili eru viðunandi áður en þeir vista ættingja sína á þeim?
Leyndarhyggja Landlæknis er óboðleg á okkar tímum. Það er augljóst að Landlæknir tekur hagsmuni heimilanna fram yfir hagsmuni almennings. Hann er bara að hlífa heimilunum. Þetta er ekkert flóknara en það.
Velferðarráðherra hefur sagt að ábyrgðin á þessu ófremdarástandi hvíli á hjúkrunarheimilunum og eftirliti Landlæknis. Féskortur sé svo engin afsökun. Og þetta liggur hreinlega í augum uppi.
Það sem nú er að gerast með leyndina er hins vegar skólabókardæmi um það hvernig menn ætla að leysa þá sem ábyrgð bera undan ábyrgð. Allt bendir til að enginn mun þurfi að bera minnstu ábyrgð á þessu ástandi og ekki verði blakað á neinn hátt við þeim hjúkrunarheimilum sem frekar ætti að kalla pyntingastofnanir en hjúkrunarheimili svo við hættum allri yfirborðskurteisi og orðum hlutina eins og þeir eru.
Þessi gamli maður er ekki einn. Fjöldi annarra býr við svipað ástand ef marka má rannsóknina. Það er einnig sláandi að aðstandendur gamla mannsins þora ekki að nefna hjúkrunarheimilið af ótta við að það muni bitna á gamla manninum.
Svona lagað er að gerast beint fyrir framan nefnið á okkur og Landlæknir sýnir þjóðinni bara fingurinn!
Í dag mun heilbrigðisnefnd Alþingis funda með Landlækni. Við skulum vona að þingmennirnir þori að mæta embættinu af fullum þunga. Hugsi sjálfstætt gagnvart kennivaldinu.
Það er líka hægt að ætlast til að fjölmiðlar taki fram fyrir hendurnar á Landlækni og komist yfir listann yfir vondu heimilin og birti hann svo fólk geti forðast þau ef Landlæknisembættið ætlar ekki að gera það.
Færsluflokkar
- Allt í plati
- Blogg
- Bloggar
- Bækur
- Efnisyfirlit um veður
- Ég
- Guð sé oss næstur
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hlýustu og köldustu mánuðir
- Íslensk veðurmet
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Mali
- Mannlífið
- Mánaðarvöktun veðurs
- Menning og listir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Veðurfar
- Veður í annálum og öðrum gömlum heimildum
- Veður um allan heim
- Vísindi og fræði
Tenglar
Blogg
Ýmsir vefir
- Gjósandi eldfjöll
- Kantötur Bachs
- Schubert
- Stjörnuskoðun
- Nótnasafnið
- Torfusamtökin
- Lilta-Ávík
- Blogggáttin
- Doctor E
Blogg
Síður
- Sólarminnstu júlímánuðir
- Þíðukaflar að vetrarlagi í Reykjavík
- Jóla og áramótaveðrið frá 1880
- Sólrík sumur og sólarsnauð
- Sólskin á Íslandi
- Hámarkshiti á landinu um verslunarmannahelgina frá 1949 og veðrið í Reykjavík
- Slær júlí hitamet í Reykjavík
- Óvenju hlý júlíbyrjun
- Nokkrir kaldir janúarmánuðir og kuldadagar
- Hret og snjóar í ágúst
- [ Fleiri fastar síður ]
Eldri færslur
- Desember 2024
- Mars 2023
- Ágúst 2019
- Desember 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Desember 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Athugasemdir
Ég þekki vel til á einu hjúkrunarheimili í Reykjavík og þar þarf að skera niður launakostnað um 15% frá í fyrra.
Heimilismenn fá mjög takmarkað af ávöxtum og matarskammtar hafa verið minnkaðir. Aðstandendur eru farnir að kaupa inn á hjúkrunarheimilin fagmenntað fólk til að hugsa um ættingja sína.
Eru aldraðir, sjúklingar, atvinnulausir, öryrkjar afgangsstærðir sem ríkið kærir sig ekkert um ? Væri þá ekki nær að skjóta alla sem eru baggi á ríkinu og spara fúlgur.
Rabbi (IP-tala skráð) 27.5.2011 kl. 20:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.