Við búum nefnilega á Íslandi!

Á þessu fréttamyndbandi sést hvar borgarstarfsmenn ryðja snjó af gangstéttum í Rómaborg. 

Þar snjóar nú ekki oft og mikið. En eigi að síður finnst mönnum þar sjálfsagt að hreinsa sjóinn af gangstéttunum þá sjaldan að hann sýnir sig.

En ekki hér, enda með orðum borgarstjórans þegar hann var að verja að ekki væru vel ruddar gangstéttir í Reykjavík í snjóakastinu:

Við búum á Íslandi! 

 


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Nú, jæja. Þetta mistókst en myndbandið sýnir borgarstarfsmenn ryðja snjó af götum Rómaborgar.

Sigurður Þór Guðjónsson, 5.2.2012 kl. 01:14

2 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Góðan dag Sigurður þór.

Kíktu á þessa grein sem birtist 1. febrúar síðastliðinn.  Þarna er verið að spá fyrir um ástandið næstu áratugi. Ekki beinlínis hnatthlýnun í boði.

Sjá hér, hér og hér.

"We can expect the onset of a deep bicentennial minimum of total solar irradiance (TSI) in approximately 2042±11 and the 19th deep minimum of global temperature in the past 7500 years – in 2055±11. After the maximum of solar cycle 24, from approximately 2014 we can expect the start of deep cooling with a Little Ice Age in 2055±11."
--Habibullo I. Abdussamatov, Russian Academy of Science, 1 February 2012

Ágúst H Bjarnason, 5.2.2012 kl. 08:32

3 Smámynd: Höskuldur Búi Jónsson

Ágúst: Þú varst fyrir nokkrum dögum að mæra tilgátur um að eldvirkni hefði valdið litlu ísöldina - en í þeirri grein stóð meðal annars:

The persistence of cold summers is best explained by consequent sea-ice/ocean feedbacks during a hemispheric summer insolation minimum; large changes in solar irradiance are not required.

Sem sagt, breyting á sólvirkni á Maunder minimum (sambærilegt við það sem á að valda kólnun samkvæmt Abdussamatov) olli ekki litlu ísöldinni samkvæmt þeirri grein.

Vísindamenn eru líka almennt sammála um að geislunarálag vegna hnattrænnar hlýnunar sé nú orðið langtum meiri en breyting á geislunarálagi sem yrði vegna minnkandi sólvirkni (sjá t.d. Við minni virkni sólar).

Það er mjög óvenjulegt ef Abdussamatov hefur hitt á að spá rétt um sólvirknina, en það er samt ekki nóg að spá um hana því mér sýnist hann ekki taka með í reikninginn aukið geislunarálag vegna áhrifa manna - því er hann í raun bara að spá því um kólnun ef engin iðnbylting hefði orðið.

Höskuldur Búi Jónsson, 5.2.2012 kl. 14:33

4 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Satt er það Höskuldur Búi.

Mér þótti greinin mjög áhugaverð, en það er ekki það sama og að ég sé sammála öllu því sem þar stendur.

Mér finnst hún áhugaverð meðal annars vegna þess að þarna koma fram nýjar ferskar kenningar. Hugsanlega réttar og kannski ekki. Það er ekki aðalatriðið í mínum huga, heldaur það að svona  frjó hugsun ber vott um alvöru vísindamennsku. Góð lesning.

Látum það ekki koma okkur á óvart þó  í ljós komi á allra næstu árum að hnatthlýnunin sé að ganga til baka og að þetta hafi nánast allt verið náttúruleg sveifla sem við höfum auðvitað kunnað að njóta

Ágúst H Bjarnason, 5.2.2012 kl. 15:18

5 Smámynd: Höskuldur Búi Jónsson

Náttúruleg sveifla er þessi hnattræna hlýnun ekki - allavega ekki samkvæmt því sem vísindamenn segja, sjá Áhrifaþættir hinnar hnattrænu hlýnunar. Skoðaðu vísindagreinarnar sem þar er vísað í - þar er einmitt mikið um fjóa hugsun og alvöru vísindamennsku, sem er einmitt það sem þú segist hafa gaman af.

Höskuldur Búi Jónsson, 5.2.2012 kl. 15:38

6 Smámynd: Sveinn Atli Gunnarsson

Ágúst - ferðu ekki að gefast upp á því að "spá" því að hnatthlýnunin sé að ganga til baka? Síðan þú byrjaðir á því að ræða um meinta kólnun (1998 eða jafnvel fyrr) hefur hlýnun haldið áfram og ekkert bólar á hinni meintu kólnun, sem er þó alltaf handan við hornið ef marka má þínar "kenningar"... Annars langar mig einnig að biðja þig um að lesa færsluna sem Höskuldur bendir á, enda mikið af vísindagreinum sem vísað er í þar. Þú ættir að hafa gaman að alvöru vísindum eins og Höskuldur bendir á...en alvöru vísindi eru í órafjarlæg frá þeirri hugmyndafræði sem sést "efasemdasíðum" eins og icecap, WUWT, climate4you o.fl. sem þú vísar oft til og ekki má rugla svoleiðis síðum saman við gagnrýna alvöru vísindamennsku og vísindalegar rannsóknir.

Sveinn Atli Gunnarsson, 6.2.2012 kl. 02:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband