Mesti hiti í febrúar

Mesti hiti á Íslandi í febrúar mældist á Dalatanga þ. 17. 1998, 18,1 stig. Ekkert óskaplega hlýtt var þó á landinu nema á Dalatanga. Þessi hiti á Dalatanga var lesinn af mæli við athugun klukkan 15 í vestan átt og kom vitaskuld einnig fram á hámarksmæli. Meðalhitinn á stöðinni þennan sólarhring var 9,1 stig. 

Febrúarhitabylgjan árið 1960 var eiginlega merkilegri. Þá mældust 16,9 stig á Dalatanga og Seyðisfirði þ. 8., einhvern tíma frá kl. 9 að morgni til hádegis. Meðalhitinn á Dalatanga var 11,1 stig sem nærri meðalhita í Reykjavík á hlýjasta tíma ársins. Lægð með óvenjulega hlýju lofti fór vestur fyrir land dagana 6.-8. Landsmeðalhitinn var 8,45 stig þann 7. og hefur frá 1949 aldrei verið hærri nokkurn dag í febrúar, kringum 9 stig yfir meðallagi allra daga frá 1949. Daginn eftir var landshitinn 7,5 stig og það var þá sem hitinn naut sín best á austfjörðunum. Fjölmargar veðurstöðvar eiga sitt febrúarhitamet frá þeim 7. svo sem 15,3 stig á Siglunesi  11,3 stig í Grímsey, 10,9  á Grímsstöðum, 14,0 á Húsavík, 11,1 á Raufarhöfn, 12,4 á Þorvaldsstöðum við Bakkafjörð og 9,9 stig í Möðrudal. Úrhellisrigning og hvassviðri var sunnanlands og vestan. Veðrinu fylgdi mikil asahláka svo af  hlutust flóð á öllu svæðinu frá suðvesturlandi til norðurlands. Ölfusá flæddi t.d. yfir bakka sína svo flæddi vatn í kjallara á Selfossi og jakaburður í Blöndu sleit símalínur. 

Þriðji mesti hitinn í febrúar er 17,2 stig aðfaranótt þess  21. árið 2006 á Sauðanesvita í rífandi sunnanátt. Á athugunartíma kl. 6  um morguninn voru 16,0 stig. Þennan dag var einna mest þykkt nærri landinu í febrúar, 5478 metrar. Þann 24. 1984 mældist 16,0 stig á Seyðisfirði. Þann dag var mikil lægð á hreyfingu við norðausturströnd Grænlands og fylgdi henni regnsvæði og asahláka úr suðvestri. Meðalhitinn á Hallormsstað var 12,2 stig en 11,3 á Akureyri, sá hæsti fyrir nokkurn febrúardag.

Á suður og vesturlandi verður hámarkshiti að vetrarlagi yfirleitt ekki jafn mikill og fyrir norðan. Á þessu geta þó orðið hálf fríkaðar undantekningar. Þann 14. febrúar 1955 færðist hlý hæð sem hafði verið suður af landinu vestur fyrir það og olli norðvestlægri átt. Þann 15. fór hitinn í Vík í Mýrdal í 15,0 stig. Það er langmesti hiti í febrúar sem mælst hefur á suðurlandi. Þessa dagana mældist einnig mesti febrúarhiti á Loftssölum (1952-1978) í Dyrhólahreppi og á Stórhöfða í Vestmannaeyjum, 10,0 stig á báðum stöðvunum. Í febrúar 2005 gerðust í annari norðvestanátt merkileg tíðindi þ. 21. á suðausturlandi, alveg frá Hornafirði vestur um til Mýrdals settu stöðvarnar þá hitamet fyrir febrúar, 13,6 stig á Hólum í Hornafirði, 13,0 á Fagurhólsmýri, 13,5 á Kirkjubæjarklaustri, 12,6 í Norðurhjáleigu og 11,6 stig á Vatnsskarðshólum í Dyrhólahreppi og kom sú stöð í stað Loftsala frá 1978. Meðalhitinn þennan dag á Klaustri var 10,6 stig. Ágætur síðsumarsdagur! Á suðurlandsundirlendi hafa mest mælst í febrúar 12,0 stig þ. 26. 1964 á Sámsstöðum í Fljótshlíð í austanátt. 

Mesti hiti í Stykkishólmi, þar sem athugað hefur verið frá 1846, kom þ. 17. 1942, 11,0 og þá mældist einnig mesti febrúarhiti í Reykjavík, 10,1 stig (ásamt þ. 7. 1935). Daginn áður mældust 13,7 stig á Sandi í Aðaldal og þá kom einnig metið í Miðfirði, 11,7 stig í Núpsdalstungu og 10,1 stig á Þingvöllum. Í hlýindum dagana 14.-15. febrúar 1965, þeim næsta  hlýjasta á landinu, mældist mesti febrúarhiti á vestfjörðum, 12,5 stig á Suðureyri við Súgandafjörð og þá komu 13, 3 stig á Blönduósi.

Í hinum ofurhlýja febrúar 1932, lang hlýjasta febrúar á landinu, fór hitinn í Fagrdal í Vopnafirði tvisvar í 15,0 stig, þ. 20. og 23. Þá voru engar hámarksmælingar niðri á austfjörðunum en eitthvað mun þar þá væntanlega hafa gengið á. Geysileg fyrirstöðuhæð var viðloðandi þennan mánuð. Loftvægi hefur aldrei verið jafn hátt í febrúar og mældist  loftvægi þ. 10. á Teigarhorni 1047,4 hPa kl. 10 um morguninn.

Hér má sjá kort frá hádegi 7. febrúar 1960 og frá 850 hPa fletinum þar sem sjá má  hitann í háloftunum í kringum 1400 m hæð.  

1960-02-07_12

Rrea00219600207

Rrea00219600208



« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Sæll Sigurður. Ég sendi smá fyrir spurn í Gestabókina þína værir þú til að kíkja á það. Kv Valdimar.

Valdimar Samúelsson, 19.2.2013 kl. 22:58

2 Smámynd: Birnuson

Valdimar, í setningunni "að hvor frelsti sig, er iij dræpi seka" stendur iij fyrir "þrjá". (Jafngildir "iii".)

Með öðrum orðum geta skógarmenn öðlast frelsi með því að drepa þrjá seka.

Birnuson, 19.2.2013 kl. 23:23

3 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Gæti þetta átt alveg eins við ef sagt er heilög þrenning. Sem sagt þrír. Það trúa sumir að Newport turninn á Rhode Island sé partur eða byrjun á Kirkjubyggingu.  

Valdimar Samúelsson, 19.2.2013 kl. 23:30

4 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Meinti líka þakka fyrir skjót svör.

Valdimar Samúelsson, 19.2.2013 kl. 23:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband